Hæstiréttur íslands
Mál nr. 136/2000
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Mánudaginn 3. apríl 2000. |
|
Nr. 136/2000. |
Ákæruvaldið(Kolbrún Sævarsdóttir settur saksóknari) gegn Guðmundi Inga Þóroddssyni (Hallvarður Einvarðsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að G skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur, en G var grunaður um brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Arnljótur Björnsson og Gunnlaugur Claessen.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 30. mars 2000, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 31. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 30. mars 2000, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt þar til dómur fellur í máli hans, þó eigi lengur en til miðvikudagsins 10. maí nk. kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.
Með vísun til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 30. mars 2000.
Ríkissaksóknari hefur gert þá kröfu að Guðmundi Inga Þóroddssyni verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur fellur í máli hans, þó eigi lengur en til miðvikudagsins 10. maí nk., kl. 16.00.
[...]
Samkvæmt því sem nú hefur verið rakið er fallist á það með ríkissaksóknara að sterkur grunur sé um að kærði hafi framið afbrot er geti varðað hann allt að 10 ára fangelsi sbr. tilvitnaða grein almennra hegningarlaga og að brotið sé þess eðlis að gæsluvarðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Skilyrðum 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála er því fullnægt og verður fallist á kröfu ríkissaksóknara og kærði úrskurðaður til að sæta gæsluvarðhaldi þar til dómur fellur í máli hans, þó eigi lengur en til miðvikudagsins 10. maí nk. kl. 16:00.
Arngrímur Ísberg héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Kærða, Guðmundi Inga Þóroddssyni, kt. 290574-4639, nú gæslufanga á Litla Hrauni, er gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur fellur í máli hans, þó eigi lengur en til miðvikudagsins 10. maí nk. kl. 16:00.