Hæstiréttur íslands
Mál nr. 80/2011
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
Þriðjudaginn 8. febrúar 2011. |
|
|
|
Nr. 80/2011. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H.B. Snorrason saksóknari) gegn X (Bjarni Hauksson hrl.) |
|
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Páll Hreinsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 4. febrúar 2011, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 7. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 4. febrúar 2011, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 11. febrúar 2011, klukkan 16 og einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Fallist verður á með sóknaraðila að fram sé kominn rökstuddur grunur um að varnaraðili hafi gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing er lögð við. Verður hinn kærði úrskurður því staðfestur með vísan til forsendna hans.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 4. febrúar 2011.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 11. febrúar 2011 kl. 16:00. Þá er gerð krafa um að kærði sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.
Í greinargerð lögreglu kemur fram að lögreglan hafi að undanförnu haft til rannsóknar innbrot sem framin hafi verið á heimilum og í gistihúsum á höfuðborgarsvæðinu. Við rannsókn málsins hafi fjórir aðilar setið í gæsluvarðhaldi. Einum þeirra, Y, hefur verið birt ákvörðun um brottvísun sem hann hefur tilkynnt að hann uni og sé því gert ráð fyrir brottför hans af landinu á næstu dögum. Hann sé talinn hafa verið sendur hingað til lands í þeim tilgangi að brjótast inn og koma þýfi í sölu. Þrír einstaklingar, hafi setið í gæsluvarðhaldi og hafa nú viðurkennt um 70 innbrot, þar sem gífurlegum verðmætum hefur verið stolið. Umtalsverð vinna er eftir við frekari greiningu á hverju innbroti og því hverjir þar standi að baki. Eins liggur ekki fyrir hvað hefur orðið um allt það þýfi sem var tekið en í framburðarskýrslum þeirra aðila sem setið hafa í gæsluvarðhaldi hefur komið fram að megnið af þýfinu hafi farið til kærða X og að hann hafi staðgreitt fyrir þýfið með reiðufé. Fyrir liggi símagögn sem staðfesta samskipti á milli þeirra aðila sem sitja í gæsluvarðhaldi og kærða og beri gögnin það með sér að aðilarnir hafi verið að eiga viðskipti með þýfi.
Kærði X hafi verið handtekinn í morgun, 4. febrúar, á heimili sínu að [...] í [...] ásamt bróður sínum Z og framkvæmdi lögregla húsleit á vettvangi í kjölfar handtökunnar. Við húsleitina hafi lögregla fundið ýmsa muni sem grunur er um að sé þýfi þar á meðal tölvur, sjónvarp og peninga. Þá hafi lögregla einnig fundið á heimili þeirra bræðra kvittanir sem bendi til útflutnings á peningum og séu flestar kvittanirnar stílaðar á nafn Z.
Lögregla eigi eftir að rannsaka frekar þátt, kærða X og bróður hans í þessum málum og bíði lögregla m.a. eftir bankaupplýsingum um kærða, fara á betur yfir símagögn kærða, athuga póstsendingar og þá er nánast allt þýfið ófundið og hefur lögregla sterkan grun um að kærði kunni að búa yfir upplýsingum sem kunna verða til þess að það finnist.
Við skýrslutöku hjá lögreglu kvaðst kærði X ekki hafa vitað að munirnir væru stolnir. Hann kvaðst hafa keypt sjónvarp og fartölvu á pólskum spjallvef, aðrar tölvur sem lögregla fann á heimili hans eru í eigu vinar hans. Þá hafi sami vinur komið með fleiri muni til hans og beðið hann um að reyna að selja þá, m.a. leikjatölvu og fatnað. Aðspurður um nafn og nánari deili á þessum vini kvaðst hann ekkert vita. Þá kvaðst kærði ekki kannast við að vera með aðgang að húsnæði við [...] en lögregla hefur upplýsingar sem tengja hann við framangreint húsnæði.
Um mjög umfangsmikla rannsókn sé að ræða sem sé þó komin vel á veg hvað varði þá þrjá aðila sem setið hafa í gæsluvarðhaldi. Þáttur kærða X og bróður hans í málinu sé enn á frumstigi og ljóst að mikil vinna sé framundan hjá lögreglu að hafa upp á öllu því þýfi sem kærði er grunaður um að hafa átt viðskipti með og aðra þætti málsins er snúa að honum.
Verið sé að rannsaka fjöldamörg innbrot sem kunni að tengjast kærða og samverkamönnum hans. Það sé því mat lögreglu að brýnt sé að vernda rannsóknarhagsmuni á þessu stigi málsins með því að varna því að kærði gangi laus en veruleg hætta er talin vera á að hann kunni að torveldi rannsókn málsins gangi hann laus. Þá þarf lögregla ráðrúm til að ná utan um alla anga þessa máls.
Til rannsóknar í máli þessu sé ætlað brot gegn 254. gr. og/eða 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 hvað kærða varðar, sem varðað getur allt að 6 ára fangelsi. Það sé því brýnt og nauðsynlegt með vísan til alls framanritaðs og gagna málsins að öðru leyti að kærði verði með vísan til a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 gert að sæta gæsluvarðhaldi til föstudagsins 11. febrúar 2011 kl. 16.00 og til að sæta einangrun samkvæmt b. lið 1. mgr. 99. gr. sömu laga.
Svo sem fram kemur í greinargerð lögreglu og rannsóknargögnum málsins hefur lögregla til meðferðar rannsókn mála sem beinast að ætluðum brotum kærða gegn 244. gr. og 254. gr. laga nr. 19/1940. Eru málin nánast í frumrannsókn, en kærði var handtekinn nú í morgun. Á grundvelli þess er kærði undir rökstuddum grun um að hafa framið brot sem fangelsisrefsing liggur við. Hefur hann staðhæft að brotin hafi hann framið að undirlagi annarra, sem skipulagt hafi för ákærða hingað til lands. Dómurinn hefur fyrr í dag úrskurðað tiltekna einstaklinga í gæsluvarðhald á þeim grundvelli að þeir höfðu framið fjölda innbrota og stolið þaðan gríðarlegu þýfi að verðmæti. Vísast til mála nr. R-96/2011, R-97/2011 og R-98/2011 í því sambandi. Sýnt þykir að refsing ákærða muni verða óskilorðsbundið fangelsi liggi fyrir að málum sé háttað á þann veg er lögregla hefur gert grein fyrir. Með vísan til þess og a- liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, eru skilyrði fyrir því að kærði verði úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald. Er því fallist á kröfu lögreglustjóra eins og nánar greinir í úrskurðarorði. Með vísan til þeirra rannsóknarhagsmuna sem fyrir liggja í málinu er ákveðið að kærði sæti einangrun á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.
Úrskurð þennan kveður upp Símon Sigvaldason héraðsdómari.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð:
Kærði, X, kt. [...], skal sæta gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 11. febrúar 2011 kl. 16:00.
Þá skal kærði sæt einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.