Hæstiréttur íslands

Mál nr. 442/2010


Lykilorð

  • Niðurfelling máls
  • Málskostnaður


Fimmtudaginn 18. nóvember 2010.

Nr. 442/2010.

H&A eignarhaldsfélag ehf. og

Arnar Sölvason

(Heiðar Ásberg Atlason hrl.)

gegn

NBI hf.

(Indriði Þorkelsson hrl.)

Niðurfelling máls. Málskostnaður.

Mál H og A gegn N var fellt niður fyrir Hæstarétti að kröfu hinna fyrrnefndu og þau dæmd óskipt, að kröfu N, til greiðslu málskostnaðar.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson, Páll Hreinsson og Viðar Már Matthíasson.

Áfrýjendur skutu málinu til Hæstaréttar 13. júlí 2010. Með bréfi til réttarins 15. nóvember 2010 tilkynntu áfrýjendur að þeir féllu frá áfrýjun málsins. Með bréfi sama dag var af hálfu stefnda gerð krafa um málskostnað fyrir Hæstarétti.

Með vísan til c. liðar 1. mgr. 105. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, sbr. 2. mgr. 164. gr. og 166. gr. þeirra, verður málið fellt niður fyrir Hæstarétti.

Samkvæmt 2. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991, sbr. 166. gr. sömu laga, verða áfrýjendur dæmdir til að greiða málskostnað fyrir Hæstarétti svo sem í dómsorði segir.  

Dómsorð:

Mál þetta er fellt niður.

Áfrýjendur, H&A eignarhaldsfélag ehf. og Arnar Sölvason, greiði óskipt stefnda, NBI hf., 150.000 krónur í málskostnað fyrir Hæstarétti.