Hæstiréttur íslands

Mál nr. 176/2013


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


                                              

Mánudaginn 18. mars 2013.

Nr. 176/2013.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H.B. Snorrason saksóknari)

gegn

X

(Bjarni Hauksson hrl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi áfram sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir og Helgi I. Jónsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 14. mars 2013, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 14. mars 2013, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 28. mars 2013 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Svo sem greinir í hinum kærða úrskurði er varnaraðili undir rökstuddum grun um að hafa framið brot sem varðað getur að lögum 12 ára fangelsi. Er því fullnægt skilyrði 3. málsliðar 2. mgr. 98. gr. laga nr. 88/2008 til að varnaraðila verði gert að sæta einangrun í gæsluvarðhaldi lengur en fjórar vikur. Að þessu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

                                             Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 14. mars 2013.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess fyrir í dag fyrir Héraðsdómi Reykjaness með vísan til a. liðar 1. mgr. 95 gr., b. liðar 1. mgr. 99. gr. og 3. ml. 2. mgr.  98. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 að X, kt. [...], skuli áfram sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 28. mars 2013, kl. 16:00.  Þá er þess krafist að honum verði gert að sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.

Kærði mótmælir kröfunni. Hann krefst þess að gæsluvarðhaldinu verði hafnað en til vara að því verði markaður skemmri tími en krafist er. Þá er þess krafist að einangrun verði aflétt.

Krafan er reist á því að kærði sé undir grun um brot gegn lögum nr. 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. nr. 19/1940.

Í kröfu lögreglustjórans segir m.a. að ávana- og fíkniefnadeild lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hafi nú til rannsóknar stórfelldan innflutning fíkniefna frá Kaupmannahöfn. Um sé að ræða tæp 20 kíló af amfetamíni og tæpa 2 lítra af amfetamínvökva, sem flutt hafi verið hingað til lands með pósti, en lögregla hafi lagt hald á sendingarnar 21. og 24. janúar sl.  

Í þágu rannsóknar málsins hafi lögregla handtekið og yfirheyrt átta sakborninga, þ.m.t. kærða X og sæti nú alls sex einstaklingar gæsluvarðhaldi.

Lögregla hafi undir höndum myndbandsupptökur þar sem sjá megi kærða X og meðkærðu A og B, póstleggja þann 18. janúar sl. þær sendingar er innihéldu umrædd 20 kíló af amfetamíni. Lögregla bíði hins vegar enn myndbandsupptaka úr pósthúsi þar sem amfetamínvökvinn hafi verið póstlagður þann 22. janúar sl.

Kærði X hafi komið til landsins 23. janúar og hafi lögregla þá fylgst með ferðum hans, m.a. er meðkærði C, tollvörður, sótti X á Keflavíkurflugvöll og ók honum að heimili hans við [...] í Hafnarfirði þaðan sem þeir óku upp í Hádegismóa í Reykjavík, þar sem lögregla fylgdist með þeim ganga um móana.

Í málinu liggi fyrir mikil símasamskipti milli kærða X og meðkærða C, þá daga sem X var staddur í Kaupmannahöfn í umrætt sinn.  Af símagögnum megi sjá nokkurn fjölda SMS-skeyta þeirra á milli þá daga sem innflutningurinn átti sér stað og hafi þeim skeytum verið eytt úr símum þeirra. Hvorki X né C hafi getað upplýst lögreglu um innihald skeytanna.

Við rannsókn málsins hafi komið fram, í framburði tveggja sakborninga, þ.e. D og A, að X hafi greint þeim frá því að hann væri með mann á sínum vegum, starfsmann tollsins, sem ætti að tryggja að umræddar póstsendingar kæmust í gegnum tollafgreiðslu. Kváðu þeir báðir að umræddur starfsmaður tollsins væri frændi X, hann væri með fíkniefnahund, hann væri sköllóttur og æki um á [...] bifreið.

Í málinu liggi fyrir að eftir samskipti X og meðkærða C, tollvarðar, þann 23. janúar hafi X greint meðkærða A frá því að lögregla væri búin að haldleggja póstsendingarnar og jafnframt að lögregla fylgdist með ferðum X.  Sé það grunur lögreglu að kærði C hafi upplýst X um haldlagningu fíkniefnanna og að lögregla fylgdist með ferðum hans.

Kærði hafi verið handtekinn 24. janúar sl. grunaður um aðild að fíkniefnainnflutningnum og hafi hann sætt gæsluvarðhaldi síðan, nú síðast með dómi Hæstaréttar Íslands nr. 151/2013.

Kærði hafi að nokkru leyti viðurkennt aðild sína að málinu.  Hann kveðst hafa verið fenginn til verksins af meðkærða D. Hann hafi ekki tekið þátt í að koma efnunum fyrir í póstsendingarnar, heldur hafi hann þá verið beðinn um að yfirgefa hótelherbergið þegar kom að pökkun efnanna. Hann hafi ekki lagt nokkurn pening í þennan innflutning heldur hafi aðrir séð um fjármögnunina. Þá kannist hann ekki við að tollvörðurinn C hafi verið á hans vegum og átt að tryggja að sendingarnar kæmust í gegnum tollafgreiðslu. Þessi framburður kærða sé í mótsögn við framburði annarra sakborninga og þá liggi m.a. fyrir bankagögn er sýna að kærði X kaupir danskar krónur, að fjárhæð um 350 þúsund íslenskar krónur,  á Keflavíkurflugvelli er hann fór til Kaupmannahafnar 14. janúar.

Í framburði D komi fram að ónafngreindur þriðji aðili hafi afhent honum fíkniefnin úti í Danmörku. Við skýrslutökur hjá lögreglu hafi meðkærði A borið um að hann hafi fengið peninga frá D til að greiða fyrir farmiða og uppihald út í Danmörku. Við skýrslutöku hjá lögreglu í gær hafi A sagt að þessir peningar hafi komið frá öðrum aðila, sem sé vinur D, en A kjósi að nafngreina ekki þann aðila. Tekin hafi verið skýrsla af D í kjölfarið í gær og hafi hann neitað því í fyrstu að þriðji aðili hefði afhent A peninga. Síðar í skýrslunni hefði D játað það að peningarnir hefðu komið frá aðila að nafni E, kallaður [...]. D kvað þá A, X og E hafa hist upp í Skalla í Árbæ og að þar hefði verið rætt um að E myndi láta A fá peninga fyrir ferðinni, um 800 þúsund eða eina milljón. D kvað þá A og X hafa boðið E aðstoð við þennan hlut, þ.e. að koma þessum fíkniefnum til landsins.

Um sé að ræða mjög umfangsmikið og stórt fíkniefnamál sem hafi að hluta til verið unnið í samstarfi við lögregluna í Danmörku. Í ljósi ofangreinds framburðar er ljóst að taka þurfi frekari skýrslur af kærðu, þá þurfi að kanna með aðild annarra aðila að málinu, frekari yfirheyrslur og að afla enn frekari gagna. Það sé því nauðsynlegt að lögregla fái frekara svigrúm til að ná utan um rannsókn málsins. Þá gæti ennþá mikils ósamræmis í framburði kærða og annarra sakborninga. Enn eigi eftir að afla frekari gagna, vinna úr þeim og bera sjálfstætt undir aðila málsins.

Málið teljist á engan hátt upplýst og því afar brýnt að vernda rannsóknarhagmuni þess.  Ljóst megi vera að gangi kærði frjáls ferða sinna þá kunni hann að torvelda og spilla rannsókninni, s.s. með því að koma undan munum sem hafa sönnunargildi í málinu eða haft áhrif á aðra samverkamenn.

Með vísan til framangreinds sé það mat lögreglustjóra að lagaskilyrðum rannsóknargæslu sé fullnægt. Með skírskotun til þess, framlagðra gagna, a.liðar 1. mgr. 95. gr., b. liðar 1. mgr. 99. gr. og 3. ml. 2. mgr. 98. gr laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.

Kærði var handtekinn 23. janúar sl. og úrskurðaður í gæsluvarðhald í framhaldi af því. Rökstuddur grunur er kominn fram um að kærði hafi gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing er lögð við. Ljóst þykir að lögregla þurfi frekara svigrúm til þess að ná utan um rannsóknina og tryggja rannsóknarhagsmuni málsins, enda er málið mjög umfangsmikið. Verður því að telja brýnt að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi þannig að hann fái ekki tækifæri til að torvelda rannsókn málsins með því að hafa áhrif á aðra samseka eða vitni. Með vísan til a. liðar 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála er því fallist á kröfu lögreglustjórans um gæsluvarðhald eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði. Jafnframt er fallist á þá kröfu lögreglustjóra  að kærði sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.

Finnbogi H. Alexandersson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, skal sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 28. mars 2013, kl. 16:00. 

Kærði skal sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.