Hæstiréttur íslands
Mál nr. 404/1999
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Þriðjudaginn 5. október 1999. |
|
Nr. 404/1999. |
Lögreglustjórinn í Reykjavík (Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Björgvin Jónsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður l. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
dómur:
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Arnljótur Björnsson og Haraldur Henrysson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 1. október 1999, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 4. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 29. september 1999, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 1. desember nk. kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að úrskurður héraðsdómara verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst þess að úrskurðurinn verði staðfestur.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 29. september 1999.
Lögreglustjórinn í Reykjavík krefst þess að X, [...] verði á grundvelli a liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 1. desember nk., kl. 16.00.
[...]
Niðurstaða.
Verið er að rannsaka meint brot gegn fíkniefnalöggjöfinni og varðaði háttsemi kærða ef sönnuð væri við 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þar sem hámarksrefsing er 10 ára fangelsi. Rannsókn máls þessa er á frumstigi og ráða má af rannsóknargögnum að rannsóknin verður bæði flókin og tímafrek, en hún teygir anga sína út fyrir landsteinana.
Rannsóknargögn málsins sem tengja kærða við meint brot eru einkum endurrit úr þremur símahlerunum auk framburðarskýrslu Y. Benda gögn þessi sterklega til þess að kærði sé viðriðinn brot þetta og er því fallist á nauðsyn þess að kærði sæti gæslu svo koma megi í veg fyrir að hann torveldi rannsókn málsins, sem er, eins og að framan greinir, umfangsmikil og skammt á veg komin.
Með vísan til þessa svo og með vísan til a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 er fallist á kröfu lögreglustjórans í Reykjavík eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.
Sigríður Ólafsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Kærði, X sæti gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 1. desember 1999 kl. 16.00.