Hæstiréttur íslands

Mál nr. 412/2015


Lykilorð

  • Kærumál
  • Brottvísun af heimili
  • Nálgunarbann


Miðvikudaginn 24. júní 2015.

Nr. 412/2015.

Lögreglustjórinn á Suðurlandi

(Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi)

gegn

X

(Sigurður Sigurjónsson hrl.)

Kærumál. Brottvísun af heimili. Nálgunarbann.

Staðfest var ákvörðun L um að X skyldi sæta brottvísun af heimili og nálgunarbanni á grundvelli laga nr. 85/2011 að öðru leyti en því að X skyldi sæta nálgunarbanni í fjórar vikur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Benedikt Bogason og Helgi I. Jónsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 19. júní 2015, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 22. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 16. júní 2015, þar sem varnaraðila var gert að sæta brottvísun af heimili og nálgunarbanni eins og nánar greinir í úrskurðarorði. Kæruheimild er í 3. mgr. 15. gr. laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að brottvísun af heimili og nálgunarbanni verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Eftir 2. mgr. 5. gr. laga nr. 85/2011 er heimilt að beita nálgunarbanni samhliða brottvísun af heimili ef það þykir nauðsynlegt til að tryggja hagsmuni brotaþola. Samkvæmt því verður nálgunarbanni markaður sami tími og brottvísun af heimili. Að þessu gættu, en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur á þann hátt sem í dómsorði greinir.

Þóknun verjanda varnaraðila fyrir Hæstarétti, sem ákveðin verður að meðtöldum virðisaukaskatti eins og í dómsorði segir, greiðist úr ríkissjóði samkvæmt 2. mgr. 38. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sbr. 14. gr. laga nr. 85/2011.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur að öðru leyti en því að varnaraðili, X, sæti nálgunarbanni í fjórar vikur frá 11. júní 2015 klukkan 16.45.

Þóknun verjanda varnaraðila, Sigurðar Sigurjónssonar hæstaréttarlögmanns, fyrir Hæstarétti, 124.000 krónur, greiðist úr ríkissjóði.

Úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 16. júní 2015.

Ár 2015, þriðjudaginn 16. júní er á dómþingi Héraðsdóms Suðurlands sem háð er að Austurvegi 4, Selfossi, af Sigurði G. Gíslasyni héraðsdómara kveðinn upp úrskurður þessi. 

                Lögreglustjórinn á Suðurlandi hefur, með vísan til 1. mgr. 12. gr. laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili, krafist þess að staðfest verði ákvörðun lögreglustjórans sem tekin var þann 11. júní 2015, með vísan 4. og 5. gr. laga um nálgunarbann og brottvísun af heimili nr. 85/2011.

                Samkvæmt framangreindri ákvörðun lögreglustjóra var X, kt. [...], (kærði) gert að yfirgefa heimili sitt að [...] á [...], þar sem hann bjó ásamt eiginkonu sinni A, kt. [...], (brotaþoli) og tveimur ungum börnum: B, kt. [...], og C, kt. [...], í fjórar vikur frá og með birtingu ákvörðunar. Þá var honum jafnframt gert að sæta nálgunarbanni, sbr. 4. gr. sömu laga, frá og með sama tíma í sex mánuði þannig að lagt var bann við því að hann komi að eða sé við [...] á [...], á svæði sem afmarkast af 50 metra radíus mælt frá miðju hússins, og jafnframt verði honum bannað að veita eftirför, heimsækja eða vera með nokkru öðru móti í beinu sambandi við A, kt. [...], svo sem með símtölum, tölvupósti eða með öðrum hætti.

                Afrit kröfunnar barst héraðsdómi föstudaginn 12. júní 2015, en frumrit ásamt gögnum málsins barst dóminum mánudaginn 15. júní og var hún tekin fyrir á dómþingi þriðjudaginn 16. júní 2015. Varnaraðili sótti þing ásamt Steinunni Kolbeinsdóttur hdl. í stað Sigurðar Sigurjónssonar hrl., sem var skipaður verjandi varnaraðila í þinghaldinu, en sem hafði lögmæt forföll. Hafði varnaraðili ekki athugasemdir við að skipaður verjandi hans væri ekki viðstaddur þinghaldið. Krefst varnaraðili þess að kröfu lögreglustjóra verði hafnað. Þá er krafist þóknunar skipaðs verjanda.

                Þá sótti Kristrún Elsa Harðardóttir hdl. þing vegna brotaþola og óskaði eftir fyrir hönd brotaþola að hún yrði skipuð réttargæslumaður brotaþola og var það gert. Af hálfu brotaþola er þess krafist að fallist verði á kröfu lögreglustjóra. Þá er krafist þóknunar.            

Málavextir

Í ákvörðun lögreglustjóra um nálgunarbann og brottvísun af heimili segir að Lögreglustjórinn á Suðurlandi hafi, með vísan til 4. og 5. gr. laga um nálgunarbann og brottvísun af heimili nr. 85/2011 sem birt hafi verið í A-deild Stjórnartíðinda þann 29. júní 2011, ákveðið að X, kt. [...], verði gert að yfirgefa heimili sitt að [...], [...], þar sem hann búi ásamt eiginkonu sinni A, kt. [...], og tveimur ungum börnum: B, kt. [...], og C, kt. [...], og jafnframt ákveðið að X skuli sæta nálgunarbanni gagnvart A í sex mánuði að telja frá birtingu ákvörðunarinnar.

Þann 10. júní 2015 hafi embætti lögreglustjórans á Suðurlandi borist tilkynning frá félagsmálayfirvöldum í [...] um slæmar aðstæður á heimili framangreindra aðila, vegna ofríkis X og ítrekaðs ofbeldis af hans hálfu gagnvart A, sem börnin á heimilinu verði vitni að. Sé tilkynningin komin fram í kjölfar þess að A hafi þann dag leitað aðstoðar félagsþjónustunnar vegna framangreindra aðstæðna á heimilinu vegna hegðunar eiginmanns hennar. Öll framangreind hafi [...] ríkisfang og hafi samskipti lögreglu við A og X farið fram fyrir milligöngu túlks.

Skýrsla hafi verið tekin af A sama dag og tilkynning hafi borist til lögreglu. Í skýrslu hennar hafi komið fram að sambúð þeirra hafi staðið yfir í ellefu ár og þar af hafi þau verið gift í tíu ár, og eigi saman tvö börn, 5 ára og 9 ára. Þau hafi flust hingað til lands fyrir um það bil einu og hálfu ári síðan. Ofbeldi, bæði líkamlegt og andlegt, hafi verið viðvarandi í sambandinu síðastliðin ár og hafi hún lýst því að í fjögur skipti hafi hann beitt hana líkamlegu ofbeldi: í apríl 2013 (í [...]), 5. desember 2013, 5. desember 2014 og nú síðast þann 10. apríl 2015. Hafi ofbeldið falist í því að hann hafi: slegið og sparkað í hana, þ.á m. þegar hún hafi legið í gólfinu, hent henni til og ítrekað kýlt hana með krepptum hnefa í andlit og höfuð. Börn þeirra hafi orðið vitni að ofbeldinu, og auk þess vinir þeirra í a.m.k. tvö síðustu skiptin sem ofbeldi hafi átt sér stað. A hafi skýrt frá því að ofbeldishegðun X hafi stigmagnast nú undanfarið, jafnhliða aukinni drykkju hans. Nú væri svo komið að bæði hún og börnin óttuðust X, og reyndu öll að láta lítið fyrir sér fara í þeirri von að þannig takist að halda friðinn á heimilinu.

Skýrslur hafi verið teknar af þremur vitnum: D, kt. [...], E, kt. [...], og F, kt. [...], sem öll staðfesti framburð A, að svo miklu leyti sem þau hafi orðið vitni af ofbeldisatvikum, sem A hafi lýst.

Hafi verið tekin skýrsla af X 11. júní 2015, þar sem hann hafni alfarið öllum ásökunum um að hann beiti eiginkonu sína ofbeldi eða að hann sýni af sér ofbeldisfulla hegðun á heimilinu. Þvert á móti kveði hann eiginkonu sína uppstökka og ofbeldisfulla gagnvart honum sjálfum og börnunum og að hún beiti þau öll m.a. líkamlegu ofbeldi og þvingunum. Sérstaklega hafi verið borinn undir hann framburður vitna sem lýsi því að þau hafi orðið vitni að ofbeldi af hans hálfu gagnvart A og hafi hann kveðið vitnin ljúga upp á hann sökum.

Brotaþoli (A) hafi gert kröfu um brottvísun og nálgunarbann, sbr. 1. mgr. 3. gr. laga um nálgunarbann og brottvísun af heimili nr. 85/2011. Að mati lögreglustjóra sé í málinu fram kominn rökstuddur grunur að kærði (X) hafi beitt brotaþola líkamlegu ofbeldi og raskað friði hennar. Ennfremur sé það mat lögreglustjóra að hætta sé á því að kærði brjóti á ný gegn brotaþola. Það sé mat lögreglustjórans á Suðurlandi að vægari úrræði en brottvísun kærða af heimili sínu og brotaþola og að honum verði jafnframt gert að sæta nálgunarbanni gagnvart brotaþola muni ekki vernda friðhelgi og tryggja öryggi og hagsmuni brotaþola, sbr. 1. gr. 6. gr. laga um nálgunarbann og brottvísun af heimili.

Með vísan til ofangreinds og fyrirliggjandi gagna í máli lögreglu nr. 318-2015-[...] hafi lögreglustjórinn á Suðurlandi ákveðið að X, kt. [...], verði gert að yfirgefa heimili sitt að [...], [...], þar sem hann búi ásamt eiginkonu sinni og tveimur börnum, í fjórar vikur frá og með birtingu ákvörðunar, sbr. 5. gr. laga um nálgunarbann og brottvísun af heimili nr. 85/2011. Þá sé honum jafnframt gert að sæta nálgunarbanni, sbr. 4. gr. sömu laga, frá og birtingu ákvörðunar í sex mánuði þannig að lagt sé bann við því að hann komi að eða sé við [...], [...], á svæði sem afmarkast af 50 metra radíus mælt frá miðju hússins, og jafnframt verði honum bannað að veita eftirför, heimsækja eða vera með nokkru öðru móti í beinu sambandi við A, kt. [...], svo sem með símtölum, tölvupósti eða með öðrum hætti.

Var ofangreind ákvörðun birt varnaraðila 11. júní 2015 kl. 16:45.

Forsendur og niðurstaða

Fyrir dóminn hafa verið lögð afrit rannsóknargagna vegna þeirra atvika sem urðu tilefni þess að framangreint nálgunarbann og brottvísun af heimili var ákveðið af lögreglustjóra. Auk þess sem að framan greinir liggja fyrir í rannsóknargögnum hljóð- og myndupptökur af skýrslutökum af börnum kærða og brotaþola, 5 ára dreng og 9 ára telpu, í Barnahúsi 12. júní sl., sem dómari hefur kynnt sér. Framburður telpunnar rennir frekari stoðum undir það að rökstuddur grunur sé um að kærði hafi gerst sekur um líkamsárás eða líkamsárásir gegn brotaþola. Að virtum gögnum málsins ber að fallast á það með lögreglustjóra að varnaraðili sé undir rökstuddum grun um að hafa framið refsiverð brot umrædd sinn og raskað með því friði brotaþola og að hætta sé á að hann endurtaki það. Ber að geta þess hér að í rannsóknargögnum er lögregluskýrsla um að þann 12. júní sl. hafi varnaraðili sent brotaþola sms skeyti, en ákvörðun um nálgunarbann var birt honum daginn áður.

Samkvæmt a-lið 4. gr. laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili er heimilt að beita nálgunarbanni ef rökstuddur grunur er um að sakborningur hafi framið refsivert brot eða raskað á annan hátt friði brotaþola eða hætta sé á að viðkomandi muni fremja háttsemi samkvæmt framanlýstum a-lið gagnvart brotaþola. Samkvæmt a-lið 5. gr. síðastnefndra laga er heimilt að beita brottvísun af heimili ef  rökstuddur grunur er um að sakborningur hafi framið refsivert brot gegn ákvæðum XXII.–XXIV. kafla almennra hegningarlaga og/eða 108. gr., 233. gr., 233. gr. b, 253. gr. og/eða 257. gr. sömu laga og verknaður hefur beinst að öðrum sem er honum nákominn og tengsl þeirra þykja hafa aukið á grófleika verknaðarins, enda varði brotið fangelsi allt að sex mánuðum, eða skv. b lið ef hætta er á að viðkomandi brjóti gegn brotaþola skv. a-lið. Þykir verða að fallast á það með lögreglustjóra að rökstuddur grunur sé um að varnaraðili hafi gerst sekur um refsiverð brot skv. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1949 gagnvart brotaþola, en brot gegn ákvæðinu geta varðað fangelsi allt að 6 mánuðum en fangelsi allt að einu ári ef háttsemin er sérstaklega vítaverð. Þá verður að telja tengsl varnaraðila og brotaþola með þeim hætti að auki á grófleika verknaða sem varnaraðili er grunaður um.  

Er þannig fullnægt skilyrðum til að varnaraðila verði gert að sæta nálgunarbanni gagnvart brotaþola eins og krafist er. Er jafnframt fullnægt skilyrðum þess að varnaraðila verði vísað af heimilinu eins og krafist er. Tímalengd beggja úrræða þykir í hóf stillt, en hvorki hefur verið sýnt fram á, né gert líklegt, að vægari úrræði geti komið að notum til að tryggja lögverndaða hagsmuni brotaþola.

            Verður þannig fallist á kröfu lögreglustjóra eins og nánar greinir í úrskurðarorði.

            Þóknun skipaðs verjanda varnaraðila, Sigurðar Sigurjónssonar hrl., ákveðst kr. 265.980. Þóknun skipaðs réttargæslumanns brotaþola, Kristrúnar Elsu Harðardóttur hdl., ákveðst kr. 265.980 að teknu tilliti til virðisaukaskatts. Báðar þóknanirnar greiðist úr ríkissjóði og teljast til sakarkostnaðar sbr. 3. mgr. 38. gr. og 3. mgr. 48. gr. laga nr. 88/2008. 

            Sigurður G. Gíslason héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Ú r s k u r ð a r o r ð :

                Staðfest er ákvörðun lögreglustjórans á Suðurlandi um að varnaraðila, X, kt. [...], verði gert að yfirgefa heimili sitt að [...], [...], þar sem hann býr ásamt eiginkonu sinni og tveimur börnum, í fjórar vikur frá og með birtingu ákvörðunarinnar 11. júní 2015 kl. 16:45, sbr. 5. gr. laga um nálgunarbann og brottvísun af heimili nr. 85/2011. Þá er honum jafnframt gert að sæta nálgunarbanni, sbr. 4. gr. sömu laga, frá og með birtingu ákvörðunarinnar í sex mánuði þannig að lagt er bann við því að hann komi að eða sé við [...], [...], á svæði sem afmarkast af 50 metra radíus mælt frá miðju hússins, og jafnframt verði honum bannað að veita eftirför, heimsækja eða vera með nokkru öðru móti í beinu sambandi við A, kt. [...], svo sem með símtölum, tölvupósti eða með öðrum hætti.

Úr ríkissjóði greiðist þóknun skipaðs verjanda varnaraðila, Sigurðar Sigurjónssonar hrl., kr. 265.980, sem og þóknun skipaðs réttargæslumanns brotaþola, Kristrúnar Elsu Harðardóttur hdl., kr. 265.980, en báðar þóknanir eru að meðtöldum virðisaukaskatti.