Hæstiréttur íslands
Mál nr. 829/2016
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Reifun
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir og Benedikt Bogason og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 13. desember 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 14. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 11. desember 2016 þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 16. desember 2016 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður fallist á að fullnægt sé skilyrðum a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 til að varnaraðili sæti gæsluvarðhaldi og einangrun meðan á því stendur, sbr. 2. mgr. 98. gr. sömu laga. Verður hinn kærði úrskurður því staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 12. desember 2016
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag krafist þess að að X kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 16. desember nk. klukkan 16. Þá er þess krafist að kærða verði gert að sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.
Kærði hefur mótmælt kröfunni og krafist þess að henni verði hafnað, en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími en krafist sé af lögreglu.
Í greinargerð með kröfunni kemur fram að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsaki nú ætlaða nauðgun og frelsissviptingu í húsnæði við [...] í [...] laugardaginn 10. desember sl. Brotaþoli hafi lýst atvikum á þann veg að hún hafi farið með kærða X á dvalarstað hans við [...] í [...] að morgni 10. desember sl. Hafi vinur kærða skutlað þeim á dvalarstað kærða þar sem þau hafi stundað kynlíf með samþykki beggja. Hafi kærði síðan orðið pirraður sökum þess að hann fékk ekki sáðlát við samfarirnar. Brotaþoli hafi þá viljað fara heim til sín, en kærði hafi orðið viðskotaillur og ekki leyft henni að fara. Brotaþoli hafi þá farið í bað og þar sem hún hafi verið í baði hafi kærði gefið henni tvo kosti, annað hvort að "totta á honum tittlinginn" eða leyfa honum að "ríða sér í endaþarm". Brotaþoli kveðst hafa harðneitað kærða, en hann hafi brugðist illur við og rekið henni bylmingskinnhest, farið ofan í baðið til hennar, skellt henni á fjórar fætur og haft við hana endaþarmsmök. Brotaþoli kveðst hafa öskrað á kærða að hætta og gert honum grein fyrir að hún fyndi mikið til, en hann hefði ekki hætt heldur rifið fast í hár hennar. Brotaþoli hafi öskrað og grátið og kærði sagt henni að hætta að gráta og haldið áfram. Hann hafi síðan hætt án þess að fá fullnægingu. Brotaþoli hafi vilja fara heim, en kærði hefði neitað henni um það og sagt að hún fengi ekki að fara fyrr en hann hefði fengið fullnægingu. Brotaþoli kveður kærða þá hafa tekið í hana og lyft henni á axlirnar á sér og farið með hana inn í svefnherbergi sitt og lagt hana á rúmið þar sem hann hafi þvingað hana til kynmaka gegn hennar vilja. Brotaþoli kveðst hafa öskrað og grátið og beðið hann um að hætta, en kærði hafi brugðist við með því að glotta, horft á hana gráta og beðið hana um að gráta hærra. Kærði hafi að lokum hætt og brotaþoli upplifað að hann hefði áttað sig á því hvað hann væri að gera og hafi hann þá haft munnmök við brotaþola. Hann hafi ítrekað spurt brotaþola hvort henni fyndist hegðun hans vera nauðgun og hann síðan farið að gráta. Kærði hafi síðan fallist á að leyfa henni að fara heim til sín klukkan 21 í gærkvöldi og hafi hann þá fengið vin sinn til að skutla henni. Eftir að heim var komið kveðst brotaþoli hafi hringt í systur sína sem hefði komið til hennar og þær farið saman á neyðarmóttöku Landspítalans og í kjölfarið hafi brotaþoli gefið skýrslu hjá lögreglu
Í greinargerð lögreglu segir að í vottorði frá neyðarmóttöku Landspítalans komi fram að við skoðun hafi brotaþoli verið með áverka á endaþarmi og þá hafi hún verið blá og marin á báðum hnjám.
Snemma í morgun hafi lögregla handtekið kærða á dvalarstað hans og framkvæmt húsleit í kjölfarið. Við húsleitina hafi fundist brjóstahaldari og hár á baði sem telja megi líklegt að sé frá brotaþola. Þá hafi verið lagt hald á upptökuvél sem beint hafi verið að svefnherbergi kærða, sem og tölvur og nokkra síma, en tækin séu talin geta varpað ljósi á málsatvik. Við húsleitina hafi einnig fundist rúmar 5.000.000 króna í reiðufé, talsvert magn af ætluðum fíkniefnum og mikið magn stera.
Tekin hafi verið skýrsla af kærða síðdegis í dag þar sem hann hafi neitað sök að því er varði nauðgunina og frelsissviptinguna og borið um að það sem honum og brotaþola hefði farið á milli hafi verið með samþykki þeirra beggja. Þá hafi kærði sagst geta gert grein fyrir 2.000.000 króna af þeim peningum sem fundust á heimili hans, en ekki viljað skýra það frekar. Að því er varðaði 3.000.000 króna sagði kærði að hann hefði fengið þá peninga að láni hjá vini sínum, sem hann hefði þó ekki viljað gera grein fyrir hver væri. Lögregla hafi óskað eftir því við kærða að fá að skoða innihald þeirra tækja sem haldlögð hafi verið á heimili hans, en kærði hafi ekki viljað heimila lögreglu slíka skoðun.
Í greinargerð lögreglu segir að kærði liggi undir rökstuddum grun um nauðgun, frelsissviptingu og fíkniefnalagabrot, en framangreind brot geti varðað fangelsi allt að 16 árum. Rannsókn málsins sé á frumstigi. Kærði neiti sök. Ljóst sé að brotaþoli hafi skýrt frá grófu kynferðisofbeldi kærða í hennar garð og lýst því að hafa verið haldið á heimili kærða gegn vilja sínum. Af gögnum frá neyðarmóttöku megi sjá að brotaþoli hafi verið með umtalsverða áverka sem samræmist lýsingum brotaþola af því ofbeldi sem kærði hafi beitt hana. Á þessari stundu hafi lögreglan enn ekki náð á vin kærða sem eigi að hafa ekið brotaþola á heimili kærða og síðan sótt hana þangað og ekið henni heim. Þá liggi fyrir að yfirheyra þurfi fleira fólk vegna málsins. Þá eigi lögreglan eftir að rannsaka lífsýni, muni og upptökur sem haldlögð hafi verið vegna málsins, sem og gögn sem finna megi á símum kærða. Ljóst sé að ef kærði gengur laus þá geti hann haft mikil áhrif á rannsókn málsins, m.a. með því að setja sig í samband við vitni sem tengist málinu og komið undan sönnunargögnum sem ekki hafi enn verið haldlögð nú þegar. Þá þyki nauðsynlegt að bera undir kærða sjálfstætt þau gögn sem lagt hefur verið hald á, bæði að því er varði ætlaða nauðgun, en einnig peninga og fíkniefni sem fundist hafi á heimili kærða og talin séu tengjast ætluðu fíkniefnamisferli kærða. Samkvæmt framansögðu sé brýnt að vernda rannsóknarhagsmuni málsins á þessu stigi og sé það mat lögreglu að lagaskilyrðum rannsóknargæslu sé fullnægt.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 og b-liðar 1. mgr. 99. gr. sömu laga sé þess krafist að krafan nái fram að ganga eins og hún er sett fram.
Samkvæmt framansögðu og fyrirliggjandi rannsóknargögnum er kærði undir rökstuddum grun um háttsemi sem varðað getur fangelsi. Ákærði neitar sök. Rannsókn málsins er á frumstigi og á eftir að yfirheyra vitni og rannsaka muni og tæki sem haldlögð voru á heimili kærða fyrr í dag, sem og að bera upplýsingar sem í þeim kunna að felast undir kærða. Gangi kærði laus þykir hætta á að hann muni torvelda rannsókn málsins, svo sem með því að skjóta undan munum eða hafa áhrif á vitni og hugsanlega samseka. Þykja því vera fyrir hendi skilyrði a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og b-lið 1. mgr. 99. gr. sömu laga, til að taka til greina kröfu lögreglustjóra eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.
Úrskurð þennan kveður upp Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, sæti gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 16. desember nk. klukkan 16.
Kærði sæti einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.