Hæstiréttur íslands
Mál nr. 8/2010
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Föstudaginn 8. janúar 2010. |
|
Nr. 8/2010. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu(Jón H.B. Snorrason saksóknari) gegn X (Sveinn Andri Sveinsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95 gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Jón Steinar Gunnlaugsson og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 6. janúar 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 7. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 6. janúar 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 13. janúar 2010 klukkan 16 og sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími og að hafnað verði kröfu um einangrun.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 6. janúar 2010.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], dvalarstaður [...] verði gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, allt til miðvikudagsins 13. janúar 2010, kl. 16.00. Þá er gerð krafa um að kærði sæti einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.
Í greinargerð lögreglu kemur fram vegna máls lögreglu nr. 007-2010-542 hafi kærði X verið handtekinn í gær 5. janúar kl. 18.37, en tilefnið hafi verið ofangreint mál lögreglu og tengsl við aðra aðila er tengdust því innbroti. Um hafi verið að ræða innbrot í A í Reykjavík en að morgni 4. janúar 2010 kl. 9.39 hafi lögregla verið kölluð að íbúðarhúsnæði að A. Þar hafði verið farið inn í íbúðarhúsnæði með því að spenna upp glugga og höfðu heimilismenn komið að einum aðila við þjófnaðinn. Sá aðili hafi horfið af vettvangi, en hafi náðst skömmu síðar og hafi hann gefið upp nöfn nokkurra aðila. Höfðu íbúar heyrt í fleirum og hafi ummerki bent til þess. Í kjölfarið hafi fleiri verið handteknir og hafi kærði verið handtekinn í gær eins og áður greini.
Á kærða hafi fundist skartgripir sem reynst hafi verið úr innbroti að B, mál nr. 007-2010-884 sem tilkynnt hafi verið til lögreglu kl. 16.23 í gær. Kærði hafi ekki getað gefið neinar haldbærar skýringar á af hverju þessi skartgripir voru í fórum hans.
Mál lögreglu nr. 007-2010-884.
Í gærkvöldi kl. 16.23 hafi lögreglu verið tilkynnt um að brotist hefði verið inn í íbúðarhúsnæði að B en þar hafði verið brotist inn með því að spenna upp svalahurð. Farið hafði verið inn fyrr um daginn en heimilisfólk hafi verið í vinnu þegar innbrotið hafi átt sér stað. Stolið hafi verið tölvum, myndavélum, og skartgripum og hafði verið rótað í skápum og skúffum.
Kærði X hafi verið yfirheyrður í morgun og neiti aðild sinni að innbrotinu að B, og hafi hann ekki gefið haldbærar skýringar á hvers vegna þessir skartgripir voru í fórum hans. Ekki hafi tekist að endurheimta allt þýfið og neiti hann að upplýsa hvar það sé. Að mati lögreglu sé nauðsynlegt að taka frekari skýrslu af kærða en vitni hafi séð bíl kærða [...] í grennd við innbrotsstað kvöldið áður og hafi hann verið þar ásamt öðrum aðila.
Að mati lögreglu sé gæsluvarðhald nauðsynlegt til að unnt verði að vinna að rannsókn málsins án þess að kærði nái að tala við ætlaða vitorðsmenn og spilla sönnunargögnum. Einnig eigi eftir að taka skýrslu af vitni eða vitnum og frekari skýrslutöku af kærða.
Rannsókn lögreglu sé á frumstigi og þurfi lögreglan ráðrúm til að vinna að rannsókn málsins og að mati lögreglu séu miklir hagsmunir af því að orðið verði við kröfum hennar.
X sé grunaður um brot gegn 244. og 254. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með vísan til framanritaðs, framlagðra gagna og loks með vísan til a-liðar 1. mgr. 95. gr. og b-liðar 1. mgr. 99. gr. nr. 88, 2008, sé þess farið á leit að krafan verði tekin til greina eins og hún sé sett fram.
Með vísan til þess sem fram kemur í greinargerð lögreglustjóra og þess sem rannsóknargögn bera með sér er fallist á að kærði sé undir rökstuddum grun um að hafa framið verknað sem varðað getur fangelsisrefsingu. Rannsókn málsins er á frumstigi og er fallist á að kærði geti torveldað rannsókn málsins með því að koma undan sönnunargögnum eða hafa áhrif á vitni eða samseka, gangi hann laus. Þegar litið er til framanritaðs telur dómurinn að uppfyllt séu skilyrði a liðar 1. mgr. 95. gr. laga 88/2008, um meðferð sakamála, og er því fallist á kröfu um gæsluvarðhald eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði en ekki þykja efni til að marka gæsluvarðhaldinu skemmri tíma. Þá er með sömu rökum fallist á að kærði verði látinn vera í einrúmi á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.
Greta Baldursdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kærði, X, kt. [...], skal sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 13. janúar 2010, kl. 16.00.
Kærði skal vera látinn í einrúmi á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.