Hæstiréttur íslands

Mál nr. 49/2016


Lykilorð

  • Kærumál
  • Farbann


                                            

Fimmtudaginn 21. janúar 2016.

Nr. 49/2016.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H.B. Snorrason saksóknari)

gegn

X

(Þorgils Þorgilsson hdl.)

Kærumál. Farbann.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta farbanni á grundvelli 1. mgr. 100. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sbr. 2. mgr. 95. gr. sömu laga.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma Helgi I. Jónsson hæstaréttardómari og Guðrún Erlendsdóttir og Ingveldur Einarsdóttir settir hæstaréttardómarar.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 19. janúar 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 19. janúar 2016, þar sem varnaraðila var gert að sæta farbanni allt til þriðjudagsins 16. febrúar 2016 klukkan 16, en kröfum hans varðandi framkvæmd farbannsins vísað frá dómi. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að farbanninu verði markaður skemmri tími en gert var með hinum kærða úrskurði.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 19. janúar 2016.

                Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess fyrir dóminum í dag að kærða, X, fæddum [...], verði með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness gert að sæta farbanni allt til þriðjudagsins 16. febrúar 2016, kl. 16:00.

Kærði mótmælir kröfu lögreglustjóra og krefst þess aðallega að henni verði hafnað en til vara að farbanni verði markaður skemmri tími en krafist er. Þá gerir kærði kröfu um hærri framfærslueyri, verði á farbannskröfuna fallist, og að kærða verði einungis gert að tilkynna sig á lögreglustöð einu sinni í viku en ekki þrisvar eins og verið hafi.

I

                Í greinargerð með kröfu lögreglustjóra segir að lögregla hafi til rannsóknar stórfellt fíkniefnalagabrot er varði innflutning á sterkum fíkniefnum hingað til lands.

                Hinn 22. september sl. hafi meðkærði Y komið hingað til lands ásamt erlendri konu á bifreiðinni [...] með ferjunni Norrænu. Lögregla hafi haft eftirlit með bifreiðinni á meðan henni var ekið til Reykjavíkur og þaðan til Keflavíkur á tímabilinu 22.–25. september 2015. Föstudaginn 25. september hafi Y farið með flugi frá Íslandi en skilið bifreiðina eftir á bifreiðastæði við Keflavíkurflugvöll. Y hafi komið aftur til landsins 28. sama mánaðar og sótt bifreiðina. Kærði X hafi einnig komið með flugi til landsins þennan sama dag og hafi tvímenningarnir ekið, hvor á sinni bifreið, sem leið lá inn í [...] að gistiheimili við [...]. Þar hafi þeir báðir verið handteknir stuttu síðar. Lögregla hafi haldlagt bifreiðina sem Y ók og við leit í henni hafi fundist rúmlega 19,5 kg af amfetamíni og rúmlega 2,5 kg af kókaíni, falin í bifreiðinni. Alls hafi fjórir aðilar verið handteknir vegna málsins og hafi þeir allir sætt gæsluvarðhaldi um tíma í þágu rannsóknar þess.

                Kærði hafi í fyrstu neitað sök við skýrslutöku hjá lögreglu. Nú hafi hann hins vegar játað að hafa tekið þátt í því að flytja inn ofangreinda bifreið en hann segist ekki hafa vitað að í bifreiðinni væru falin fíkniefni. Kærði hafi lýst fyrir lögreglu hvernig skipulagningu innflutningsins hafi verið háttað og að hann hafi áður tekið þátt í sambærilegum innflutningi. Kærði hafi greint lögreglu frá því að tveir Hollendingar hafi átt þátt í skipulagningu innflutningsins. Hlutverk kærða hafi verið að koma til landsins, fjarlægja það sem í bifreiðinni var og afhenda það aðila við [...]. Hann  hafi  síðan átt að fá skilaboð varðandi peningagreiðslu fyrir sinn þátt. Kærði hafi einnig upplýst lögreglu um að hann hafi nokkrum sinnum hitt samverkamenn sína á fundum í Hollandi, áður en haldið var til Íslands, þar sem ferðin var skipulögð.

II

Lögreglustjóri segir kærða vera undir sterkum grun um aðild að broti sem varðað geti allt að 12 ára fangelsi. Lögregla telji kærða eiga mikla aðild að málinu og tengjast skipulagningu og flutningi fíkniefnanna hingað til lands. Um mjög mikið magn hættulegra fíkniefna sé að ræða. Því verði að telja ætlað brot kærða mjög alvarlegt og þess eðlis að uppfyllt séu í ljósi dómaframkvæmdar skilyrði 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, svo fallist verði á kröfu lögreglustjóra.

                Kærði hafi sætt gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar málsins frá 29. september sl. í fullar 12 vikur. Þar sem mál hafi enn ekki verið höfðað á hendur honum telji lögreglustjóri í samræmi við 4. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 að ekki sé heimilt að úrskurða hann nú í gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna. Lagaskilyrði séu hins vegar uppfyllt til þess að úrskurða hann í farbann til dagsins í dag, svo sem slagið hafi verið föstu í dómi Hæstaréttar Íslands í máli nr. 851/2015 uppkveðnum 23. desember 2015.

Lögreglustjóri vísar til þess að til rannsóknar sé ætlað brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sem varðað geti allt að 12 ára fangelsi. Krafa lögreglustjóra byggist bæði á því að skilyrði 2. mgr. 95. gr. séu uppfyllt, svo sem áður var rakið, og að fyrir hendi séu skilyrði til að úrskurða kærða í farbann á grundvelli b-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Kærði sé erlendur ríkisborgari sem engin sérstök tengsl hafi við landið. Sæti hann ekki farbanni megi ætla að hann reyni að komast úr landi til að komast undan málssókn eða fullnustu refsingar. Því telji lögreglustjóri brýnt að tryggja nærveru kærða á meðan mál hans sé til meðferðar fyrir yfirvöldum hér á landi. Nauðsynlegt sé því að honum verði gert að sæta farbanni þar til mál hans er til lykta leitt.

                 Lögreglustjóri segir rannsókn lögreglu vera vel á veg komna. Hún sé að hluta til unnin í samstarfi við erlend yfirvöld og beinist meðal annars að því að hafa uppi á samverkamönnum kærðu í Hollandi. Einnig hafi verið óskað eftir aðstoð annarra erlendra lögregluyfirvalda. Óskað hafi verið eftir húsleitum og skýrslutökum og vinni lögregla nú að þeim aðgerðum í samstarfi við erlend yfirvöld.

III

Kærði sótti ekki þing við fyrirtöku kröfu lögreglustjóra heldur mætti skipaður verjandi fyrir hans hönd. Mótmælti verjandi kröfum lögreglustjóra samkvæmt áðursögðu og setti einnig fram sjálfstæðar kröfur af hálfu kærða. Af hálfu lögreglustjóra var ekki gerð krafa um að kærði kæmi fyrir dóm til skýrslugjafar, sbr. 2. mgr. 106. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

IV

Með dómi Hæstaréttar Íslands 27. nóvember 2015 í máli nr. 792/2015 var því slegið föstu að fullnægt væri skilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála um gæsluvarðhald yfir kærða. Sú niðurstaða að skilyrði ákvæðisins væru uppfyllt í hans tilviki var áréttuð í dómi réttarins 23. desember 2015 í máli nr. 851/2015 þegar kærða var gert að sæta farbanni. Að þessu gættu þykja vera uppfyllt lagaskilyrði til að kærða verði gert að sæta farbanni, sbr. 1. mgr. 100. gr. laganna. Verður því fallist á kröfu lögreglustjóra, svo sem hún er fram sett.

Kærði á þess kost að bera kröfur um framkvæmd farbanns undir dóm í sérstöku máli á grundvelli 4. mgr. 100. gr. laga  nr. 88/2008. Ekki verður hins vegar leyst úr slíkum kröfum í máli sem tilkomið er vegna kröfu lögreglustjóra um að kærða verði gert að sæta farbanni. Verður umræddum kröfum kærða því vísað frá dómi.

Úrskurð þennan kveður upp Kristinn Halldórsson héraðsdómari.

Úrskurðarorð:

                Kærði, X, fd. [...], skal sæta farbanni allt til þriðjudagsins 16. febrúar 2016, kl. 16:00.

                Kröfum kærða er varða framkvæmd farbannsins er vísað frá dómi.