Hæstiréttur íslands

Mál nr. 660/2015

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Guðmundur Þórir Steinþórsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (Bjarni Hauksson hrl.)

Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008

Reifun

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir og Helgi I. Jónsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 1. október 2015 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 1. október 2015 þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 9. október 2015 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.

Sóknaraðili krefst þess aðallega að varnaraðila verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 15. október 2015 klukkan 16, en það er sama krafa og hann gerði í héraði, en til vara að hinn kærði úrskurður verði staðfestur. Þessi kröfugerð er sóknaraðila heimil samkvæmt 4. mgr. 199. gr., sbr. 4. mgr. 195. gr. laga nr. 88/2008.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 1. október 2015.

                Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur krafist þess með vísan til a- og d-liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála að kærðu verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 15. október 2015, kl. 16:00, og að henni verði gert að sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur.

 Kærða mótmælir kröfunni. Hún krefst þess aðallega að kröfunni verði hafnað en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími en krafist er.

I

                Í greinargerð lögreglustjórans á Suðurnesjum segir meðal annars að lögregla hafi til rannsóknar innflutning kærðu á ætluðum ávana- og fíkniefnum. Laust eftir miðnætti í nótt hafi tilkynning borist frá tollgæslunni í Flugstöð Leifs Eiríkssonar vegna gruns um að kærða kynni að hafa fíkniefni falin í fórum sínum. Kærða hefði þá verið nýkomin til landsins með flugi [...] frá [...]. Við gegnumlýsingu og leit tollvarða í farangri kærðu hafi fundist nokkrar pakkningar, sem svarað hafi jákvætt við kókaíni. Hafi hin ætluðu fíkniefni verið falin í hljómflutningstækjum. Í kjölfarið hafi kærða verið handtekin og færð á lögreglustöðina við Hringbraut, Reykjanesbæ.

Að mati lögreglustjóra hafi kærða gefið ótrúverðugar skýringar á ferðum sínum hingað til lands. Þá hafi hún hafi kannast við að eiga hljómflutningstækin en sagst hafa keypt þau notuð.

Lögreglustjóri segir endanlegt magn hinna ætluðu fíkniefna ekki liggja fyrir en einn pakki hafi verið vigtaður og reynst innihalda um 170 g af ætluðum fíkniefnum. Munum úr farangri kærðu hafi verið komið til frekari rannsóknar hjá tæknideild lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.

II

                Í kröfu lögreglustjóra kemur fram að rannsókn málsins sé í fullum gangi og taki mið af því að kærða hafi flutt töluvert magn ætlaðra ávana- og fíkniefna hingað til lands og að efnin hafi verið ætluð til sölu og dreifingar. Rannsókn lögreglu beinist meðal annars að því að upplýsa um tengsl kærðu við vitorðsmenn. Telji lögregla einsýnt að kærða hafi ekki staðið ein að innflutningnum. Þá beinist rannsóknin að því að rannsaka nánar skipulagningu og hlutverk kærðu í innflutningnum, aðdraganda hans og loks fjármögnun ferðar kærðu hingað til lands.

                Lögregla þurfi svigrúm til að vinna nánar úr þeim gögnum sem hún hafi undir höndum og séu til þess fallin að upplýsa um framangreind atriði. Enn fremur þurfi að afla frekari gagna, bæði hér á landi og erlendis. 

                Til rannsóknar sé innflutningur á hættulegum ávana- og fíkniefnum sem lögregla telji að flutt hafi verið hingað til lands í þeim tilgangi að selja þau til ótiltekins fjölda fólks. Að mati lögreglustjóra sé fyrir hendi rökstuddur grunur um að kærða hafi gerst brotleg við ákvæði laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

                Að mati lögreglustjóra séu lagaskilyrði uppfyllt fyrir því að kærðu verði gert að sæta gæsluvarðhaldi á meðan mál hennar sé til meðferðar. Ætla megi að kærða kunni að torvelda áframhaldandi rannsókn málsins og hafa áhrif á samseka, gangi hún laus. Að sama skapi sé hætta á að kærða kunni að verða beitt þrýstingi og að reynt verði að hafa áhrif á hana af hendi samverkamanna.

                Með vísan til alls framangreinds, rannsóknarhagsmuna, a- og d-liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/ 2008 um meðferð sakamála, 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni telji lögreglustjóri brýna rannsóknar- og refsivörsluhagsmuni standa til að fallist verði á kröfuna og kærðu verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 15. október 2015, kl. 16:00.

                Lögreglustjóri krefjist þess enn fremur að kærðu verði gert að sæta einangrun, sbr. b-lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, meðan á gæsluvarðhaldi stendur með vísan til rannsóknarhagsmuna.

III

Með vísan til alls framanritaðs, svo og gagna málsins, er fallist á það með lögreglustjóra að kærða sé undir rökstuddum grun um að hafa framið brot sem fangelsisrefsing liggur við.

Rannsókn málsins er á frumstigi. Ætla verður lögreglu nokkuð svigrúm til þess að rannsaka aðdragandann að ferð kærðu hingað til lands og möguleg tengsl hennar við vitorðsmenn, bæði hér á landi og erlendis. Gangi kærða laus má ætla að hún muni torvelda rannsókn málsins með því að afmá merki eftir brot, skjóta undan munum ellegar hafa áhrif á samseka eða vitni. Samkvæmt þessu telst skilyrðum a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála fullnægt til þess að kærðu verði gert að sæta gæsluvarðhaldi. Er krafa lögreglustjóra því tekin til greina með þeim hætti sem nánar greinir í úrskurðarorði.

Með vísan til framangreinds er jafnframt fallist á kröfu um að kærðu verði gert að sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldsvist hennar stendur, sbr. b-lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Úrskurð þennan kveður upp Kristinn Halldórsson héraðsdómari.

 

Úrskurðarorð:

                Kærða, X, fædd [...], skal sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 9. október  nk., kl. 16:00.

                Kærðu er gert að sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.