Hæstiréttur íslands

Mál nr. 223/2009


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald


Föstudaginn 8

 

Föstudaginn 8. maí 2009.

Nr. 223/2009.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H. B. Snorrason, saksóknari)

gegn

X

(Stefán Karl Kristjánsson hdl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Jón Steinar Gunnlaugsson og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.  

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 7. maí 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 8. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 7. maí 2009, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hans, þó ekki lengur en til fimmtudagsins 4. júní kl. 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.

Sóknaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði staðfestur.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 7. maí 2009.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykja­víkur úrskurði að úrskurði að kærða X, kt. [...], verði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi, allt til fimmtudagsins 4. júní 2009 kl. 16:00.

Í greinargerð lögreglustjóra kemur fram að kærði hafi verið handtekinn 12. apríl sl. í kjölfar þess að lögregla hafi haft af honum afskipti þar sem hann hafi verið grunaður um þjófnað fyrr um morguninn en á honum hafi fundist farsími sem tilkynntur hafi verið stolinn. Kærði hafi margsinnis komið við sögu lögreglu og sé nú grunaður um sjö innbrot og þjófnaði frá því síðasta fimmtudag, þann 9. apríl sl. Kærði hafi hlotið fjöldamarga fangelsisdóma fyrir samskonar brot. Þykir að mati lögreglu ljóst að kærði hafi einbeittan brotavilja og virðist ekkert lát vera á brotastarfsemi hans. Ákæra hafi verið gefin út vegna meintra brota kærða á tímabilinu 9.-11. apríl sl. og hafi hún verið sameinuð máli nr. s-153-2009. Nýja ákæran hafi verið þingfest fyrr í dag og málið í heild sinni tekið fyrir. Með ákæruskjali dagsettu 5. maí sl. hafi  lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu höfðað mál á hendur kærða vegna eftirfarandi brota:

“007-2009-21152

Þann 10. apríl sl. var tilkynnt um innbrot og þjófnað úr hótelherbergi á Fosshóteli við Rauðarárstíg í Reykjavík. Mun þjófnaðurinn hafa átt sér stað á tímabilinu kl. 11:40 – 12:05 þann 9. apríl sl. Úr herberginu var stolið svörtum Nokia farsíma og þremur greiðslukortum. Við skoðun á upptökum úr eftirlitsmyndavélum þekktu lögreglumenn kærða, þar sem hann sást á herbergjagangi og sást fara inn í herbergi á hótelinu á sama tíma og þjófnaðurinn átti sér stað. Kærði hefur viðurkennt í skýrslutöku að hafa farið inn í umrætt herbergi og stolið þaðan framangreindum síma og greiðslukortum.

007-2009-21249

Þann 10. apríl sl. fékk lögregla tilkynningu um innbrot í afgreiðslu veitingastaðarins Grillsins á Hótel Sögu við Hagatorg í Reykjavík. Þaðan hafði verið spennt upp hurð að afgreiðslunni og teknar fimm vínflöskur. Við skýrslutöku þann 13. apríl, viðurkenndi kærði að hafa farið inn á Hótel Sögu og tekið þaðan nokkrar flöskur af áfengi og fartölvu. Hann kveðst hafa skilið framangreinda muni eftir í plastpoka fyrir utan Y, þar sem þeir fundust síðar um kvöldið.

007-2009-21256

Þann 10. apríl sl. fékk lögregla tilkynningu um innbrot í húsnæði Bændasamtakanna á 3. hæð í húsnæði Hótel Sögu við Hagatorg í Reykjavík. Þar hafði verið farið inn um miðdyr á skrifstofu samtakanna og stolið fartölvu. Þá lágu vínflöskur á borði í húsnæðinu. Ætlaður innbrotstími er á milli kl. 17:00 og 20:00 þann 9. apríl sl.

Fartölvan fannst í plastpoka fyrir utan Y, Reykjavík kl. 23:33 þann 9. apríl sl. Kærði hafði þá skömmu áður verið handtekinn vegna gruns um innbrot að Z, Reykjavík. Er kærði grunaður um innbrotið í húsnæði Bændasamtakanna að kvöldi 9. apríl sl. og að hafa skilið fartölvuna eftir á þeim stað er hún fannst er hann varð lögreglu var í þeirri von að hann yrði ekki tengdur við innbrotið. Við skýrslutöku þann 13. apríl, viðurkenndi kærði að hafa farið inn á Hótel Sögu og tekið þaðan nokkrar flöskur af áfengi og fartölvu. Hann kveðst hafa skilið framangreinda muni eftir í plastpoka fyrir utan Y, þar sem þeir fundust síðar um kvöldið.

007-2009-21559

Að morgni 12. apríl sl. fékk lögregla tilkynningu um þjófnað á Hótel 1919 við Pósthússtræti 2, Reykjavík. Kvaðst starfsmaður veitingastaðarins hafa mætt til vinnu um morguninn og lagt veski sitt á bak við barborðið. Skömmu síðar veitti hún því athygli að það lá á hliðinni og var þá búið að stela þaðan greiðslukortum, kr. 8.000 í reiðufé og Sony Ericsson farsíma. Kvaðst starfsmaðurinn hafa veitt einum manni athygli og lýsti honum sem meðalháum, klæddum svörtum jakka og svörtum buxum með úfið hár.

Síðar um morguninn veittu lögreglumenn kærða athygli og svaraði hann til lýsingar grunuðum aðila í máli þessu. Aðspurður kvaðst kærði ekki hafa verið nálægt hótelinu á umræddum tíma en við leit á honum fannst m.a. framangreindur farsími.

Við skýrslutöku þann 13. apríl, viðurkenndi kærði að hafa stolið framangreindum munum, en kveður þó að aðeins hafi verið kr. 3.000 í reiðufé í veskinu. Þá kveðst hann hafa stolið áfengisflösku af barnum á sama tíma.

007-2009-21559

Er lögregla hafði afskipti af kærða þann 12. apríl sl. fundust á honum pappírar og lyfjaglas með nafni A, ásamt sjónauka. Var haft samband við A og kom þá í ljós að framangreindir munir höfðu verið í bifreiðinni Þ og hafði verið farið inn í hana þar sem hún stóð í bifreiðastæði við Æ, Reykjavík og framangreindum munum stolið úr hanskahólfi bifreiðarinnar. Er kærði því grunaður um að hafa farið inn í framangreinda bifreið aðfaranótt eða að morgni 12. apríl sl.

Við skýrslutöku þann 13. apríl, viðurkenndi kærði að hafa farið inn í bifreiðina og stolið framangreindum munum.

007-2009-21559

Er lögregla hafði afskipti af kærða að morgni 12. apríl sl. fannst á honum afsal fyrir bifreiðinni Ö og sólgleraugu. Var haft samband við eiganda Ö og kom þá í ljós að framangreindir munir höfðu verið í bifreiðinni Ö og hafði verið farið inn í hana þar sem hún stóð í bifreiðastæði við W, Reykjavík og framangreindum munum stolið úr bifreiðinni. Er kærði því grunaður um að hafa farið inn í framangreinda bifreið aðfaranótt eða að morgni 12. apríl sl.

Við skýrslutöku þann 13. apríl, viðurkenndi kærði að hafa farið inn í bifreiðina og stolið framangreindum munum.

007-2009-21567

Að morgni 12. apríl sl. fékk lögregla tilkynningu um að brotist hefði verið inn í þvottahús í kjallara að Ý, Reykjavík um nóttina. Þaðan var stolið einkennisskyrtum merktum Securitas, tveimur fartölvum, annarri af gerðinni Fujitsu Simens og hinni af gerðinni Toshiba, ásamt fleiri verðmætum eins og nánar greinir í ákæru. Aðspurð kváðust húsráðendur gruna [...], þar sem þau höfðu rekið hann út úr sameigninni um kl. 21:30 fyrr um kvöldið þar sem hann hafði verið að snuðra en hann gaf þeim þá skýringu að hann hefði verið að týna ánamaðka. Innangengt er í þvottahúsið úr sameigninni.

Við skýrslutöku þann 13. apríl, viðurkenndi kærði að hafa brotist inn í húsið við Ý og stolið þaðan tveimur fartölvum.”

Kærði eigi langan sakaferil að baki og hafi margsinnis hlotið fangelsisdóma fyrir þjófnaði og innbrot. Þá hafi lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu höfðað sakamál á hendur kærða fyrir þjófnaði, eignaspjöll og húsbrot framin á árinu 2008, og er það mál nr. s-153-2009 og hafi ákæra dagssett 5. maí sl. verið sameinuð því máli.  

Með vísan til framangreinds og ferils kærða telur lögregla yfirgnæfandi líkur á því að kærði muni halda brotastarfsemi áfram fari hann frjáls ferða sinna og því nauðsynlegt að kærði sæti áframhaldandi gæsluvarðhaldi á meðan mál hans sæta dómsmeðferð.

Sakarefni málsins sé talið varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, en brot gegn ákvæðinu geti varðað fangelsi allt að 6 árum ef sök sannast. Um heimild til gæsluvarðhalds er vísað til c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

Kærði hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 13. apríl sl. á grundvelli síbrotagæslu. Fyrr í dag voru þingfest mál á hendur kærða sem varða brot er ákærði var úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna. Hefur sækjandi lýst yfir að unnt verði að ljúka meðferð þeirra mála með dómi innan þess tíma er gæsluvarðhaldskrafan lýtur að. Með vísan til þess og á grundvelli c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 er skilyrðum fyrir áframhaldandi gæsluvarðhaldi kærða fullnægt og verður krafa sækjanda um áframhaldandi gæsluvarðhald tekin til greina svo sem í úrskurðarorði er kveðið á um. 

Símon Sigvaldason héraðsdómari kvað upp dóminn.

Úrskurðarorð:

Kærða X kt. [...], er gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi, allt þar til dómur fellur í máli hans en þó eigi lengur en til fimmtudagsins 4. júní 2009 kl. 16:00.