Hæstiréttur íslands
Mál nr. 64/2010
Lykilorð
- Ávana- og fíkniefni
|
|
Fimmtudaginn 16. september 2010. |
|
Nr. 64/2010. |
Ákæruvaldið (Daði Kristjánsson saksóknari) gegn Chandis Þór Marshall (Guðmundur Ágústsson hrl.) |
Ávana- og fíkniefni.
C var sakfelldur fyrir vörslur á 322 kannabisplöntum ætluðum til söludreifingar og fyrir að hafa um nokkuð skeið staðið að ræktun þeirra. Samkvæmt matsgerð sem lá fyrir í málinu mátti ætla að plönturnar gætu gefið af sér frá um 19 kg af marihuana og 322 g af hassolíu, miðað við 60% innihald THC. Við ákvörðun refsingar C var litið til eðlis og umfangs brots hans. Var brotið vel skipulagt og þurfti C að koma sér upp sérútbúnu húsnæði og leggja vinnu í ræktun plantnanna. Þá var litið til þess að um umfangsmikla framleiðslu á fíkniefnum í sölu- og dreifingarskyni var að ræða. Á hinn bóginn hafði það einnig áhrif á ákvörðun refsingar að C hafði játað brot sitt greiðlega auk þess sem hann hafði ekki áður sætt refsingu sem áhrif hafði á ákvörðun refsingar nú. Var refsing hans ákveðin fangelsi í 12 mánuði, en að öllu virtu þótti ekki efni til að skilorðsbinda refsingu hans.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson og Benedikt Bogason dómstjóri.
Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 4. janúar 2010. Af hálfu ákæruvalds er krafist þyngingar á refsingu og þess að hún verði óskilorðsbundin. Jafnframt er krafist staðfestingar á niðurstöðu héraðsdóms um upptöku.
Ákærði krefst staðfestingar hins áfrýjaða dóms.
Með hinum áfrýjaða dómi var ákærði sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa föstudaginn 27. mars 2009 haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 322 kannabisplöntur og að hafa um nokkurt skeið fram til þess dags ræktað þær. Ákærði játaði brotið og var farið með málið samkvæmt 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Í gögnum málsins er að finna efnaskýrslu lögreglunnar um þær 322 plöntur sem haldlagðar voru, en þar er getið um hæð þeirra og þyngd. Í matsgerð Jakobs Kristinssonar dósents 30. apríl 2009 kemur fram að rannsökuð hafi verið ein tilgreind planta. Þyngd plöntunnar hafi verið 160 g, en eftir þurrkun 91,04 g. Magn tetrahydrocannabinols í þurru sýni hafi verið 12 mg/g, sem samsvari 6,8 mg/g í sýninu fyrir þurrkun. Eftir að héraðsdómur gekk var Þóroddur Sveinsson, lektor við Landbúnaðarháskóla Íslands, dómkvaddur til að leggja mat á umfang ræktunarinnar. Í matsgerð hans 7. júní 2010 kemur meðal annars fram að hann dragi þá ályktun af fjölmörgum ljósmyndum lögreglu af plöntunum að þær hafi verið á svipuðu þroskastigi. Mikið hafi verið um kvenkyns plöntur, sem gefi meiri uppskeru en karlkyns plöntur, og hafi þær verið að hefja blómmyndun en átt talsvert í að ná fullum þroska með hámarksuppskeru, eða um tvo mánuði við hagstæðustu skilyrði. Einnig kemur fram í matsgerðinni að unnt hafi verið að nýta til fíkniefnaframleiðslu alla hluta plantnanna þegar á því þroskastigi sem þær voru á við upptöku. Erfitt sé á hinn bóginn að áætla magn fíkniefna sem fengist hefði á þeim tíma þar sem þurrefnisinnihald plantnanna við vigtun hafi ekki komið fram í skýrslu tæknideildar lögreglu. Að því gefnu að plönturnar hefðu verið vigtaðar ferskar væri eðlilegt þurrefnisinnihald þeirra um 15% sem gefur um 23 þurrefniskíló. Úr því mætti vinna um 450 g af marihuana og 370 g af hassolíu. Þá kemur fram hjá matsmanni að hver fullvaxin og vel ættuð kvenkynsplanta ræktuð í mold innandyra við kjöraðstæður gefi af sér frá 60 til 120 g af marihuana. Þar að auki gefi hver planta af sér um 60 til 120 g í blöðum og stönglum. Því gætu 322 kannabisplöntur gefið af sér frá um 19 kg af marihuana og 322 g af hassolíu, miðað við 60% innihald tetrahydrocannabinols, THC.
Brot ákærða er réttilega heimfært til refsiákvæða en brot gegn ákvæðum laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni geta varðað allt að 6 ára fangelsi, sbr. 5. gr. laganna. Við ákvörðun refsingar ákærða verður litið til eðlis og umfangs brots hans. Brotið var vel skipulagt og þurfti ákærði að koma sér upp sérútbúnu húsnæði og leggja vinnu í ræktun þeirra plantna sem um ræðir. Þótt ræktunin hafi ekki verið langt komin er upp komst um brot ákærða og nokkuð hafi skort á að fíkniefnin hefðu náð því magni og styrkleika sem að var stefnt var um að ræða umfangsmikla framleiðslu á fíkniefnum í sölu- og dreifingarskyni. Á hinn bóginn verður að hafa í huga við ákvörðun refsingar að ákærði játaði greiðlega brot sitt og hefur hann ekki áður sætt refsingu sem áhrif hefur á ákvörðun refsingar nú. Verður refsing hans ákveðin fangelsi í 12 mánuði, en að öllu virtu þykja ekki efni til að skilorðsbinda refsingu hans.
Ákvæði héraðsdóms um upptöku og sakarkostnað skulu vera óröskuð.
Ákærði verður dæmdur til að greiða allan áfrýjunarkostnað málsins, þar með talin málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns sem ákveðin verða að meðtöldum virðisaukaskatti eins og nánar greinir í dómsorði.
Dómsorð:
Ákærði, Chandis Þór Marshall, sæti fangelsi í 12 mánuði.
Ákvæði héraðsdóms um upptöku og sakarkostnað skulu vera óröskuð.
Ákærði greiði allan áfrýjunarkostnað málsins 406.907 krónur, þar með talin málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns fyrir Hæstarétti, Guðmundar Ágústssonar hæstaréttarlögmanns, 225.900 krónur
Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur 9. desember 2009.
Mál þetta var höfðað með ákæru Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dags. 27. október 2009, á hendur Chandis Þór Marshall, kt. 031269-4159, Straumsölum 2, Kópavogi. Honum er gefið að sök fíkniefnalagabrot,
með því að hafa föstudaginn 27. mars 2009 að Skógarási 6 í Reykjavík, haft í vörslum sínum í sölu og dreifingarskyni 322 kannabisplöntur og hafa um nokkurt skeið fram til þess dags ræktað greindar plöntur.
Þetta er talið varða við 4., 5. og 6. gr. laga nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.
Ákæruvald krefst refsingar, greiðslu sakarkostnaðar og upptöku á greindum kannabisplöntum og 81 gróðurhúsalampa.
Ákærði játaði brot sitt fyrir dómi og mótmælti hann ekki upptökukröfu ákæruvalds. Verður hann sakfelldur samkvæmt ákæru, en brot hans er þar réttilega heimfært til refsiákvæða.
Ákærði hefur áður verið sektaður fyrir brot gegn 217. gr. almennra hegningarlaga og umferðarlögum. Refsing hans er hæfilega ákveðin fangelsi í þrjá mánuði. Vegna þess að ákærði hefur ekki áður sætt refsingum, sem áhrif hafa hér á ákvörðun viðurlaga og hann hefur játað brot sitt greiðlega, verður fullnustu frestað undir almennu skilorði til tveggja ára. Þá verða umræddar plöntur og lampar gerð upptæk. Loks verður ákærða gert að greiða sakarkostnað eins og í dómsorði greinir. Við ákvörðun þóknunar verjanda er tekið tillit til virðisaukaskatts.
Jón Finnbjörnsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð
Ákærði Chandis Þór Marshall, sæti fangelsi í 3 mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.
Upptækar eru gerðar 322 kannabisplöntur og 81 gróðurhúsalampi.
Ákærða greiði 93.539 krónur í sakarkostnað og þóknun skipaðs verjanda síns 62.000 krónur.