Hæstiréttur íslands

Mál nr. 101/2013


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


                                              

Fimmtudaginn 14. febrúar 2013.

Nr. 101/2013.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H.B. Snorrason saksóknari)

gegn

X

(Sveinn Andri Sveinsson hrl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir, Benedikt Bogason og Helgi I. Jónsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 12. febrúar 2013, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 12. febrúar 2013 þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 21. febrúar 2013 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími og honum ekki gert að sæta einangrun.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 12. febrúar 2013.

                Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess fyrir dóminum í dag að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 21. febrúar 2013 kl. 16:00.  Þá er þess krafist að honum verði gert að sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.

                Kærði hefur mótmælt gæsluvarðahaldskröfunni og til vara krafist þess að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Í greinargerð lögreglustjóra segir að ávana- og fíkniefnadeild lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hafi haft til rannsóknar póstsendingar hingað til lands frá Kaupmannahöfn í Danmörku.  Í póstsendingunum hafi verið að finna mjög mikið magn sterkra fíkniefna, nánar um tegund og magn er vísað til meðfylgjandi efnaskýrslu. Lögregla hafi undir höndum myndbandsupptökur frá pósthúsi í Kaupmannahöfn þar sem sjá megi þrjá aðila, þ.e. A, B og C, sem nú sæta allir gæsluvarðhaldi vegna málsins, póstleggja umræddar sendingar.

Mánudaginn 28. janúar sl. hafi meðkærði, D, sótt eina sendingu í póstafgreiðslu við Stórhöfða í Reykjavík. Fylgdist lögregla með því hvar hann afhendi sendinguna ofangreindum B, við Domino´s við Stórhöfða 17. Fylgdist lögregla með hvar B gekk með póstsendinguna áleiðis að Elliðaám, þar sem hann losaði sig við hana og hafi hann verið handtekinn strax í kjölfarið.  Þá fylgdist lögregla einnig með því hvar meðkærði E hélt sig í námunda við pósthúsið og virtist fylgjast með afhendingu pakkans.

Í skýrslutöku hjá lögreglu hefur A greint frá því að hann hafi verið fenginn til að fara til Kaupmannahafnar og koma umræddum sendingum í póst.  Hann kvaðst hafa átt að fá átta hundruð þúsund krónur fyrir verkið.  Hann kvaðst ekki hafa komið að pökkun efnanna í kassana.  Hann hafi hins vegar verslað potta og vínkæla, sem efnin voru sett í, með þeim aðila sem fékk hann til verksins.

Lögregla hafi undir höndum upplýsingar um að A og kærði X hafi ferðast saman til Kaupmannahafnar og dvalið þar saman á hóteli.  Þá hafi lögregla undir höndum ljósmynd úr öryggismyndavélkerfi verslunar er ofangreindir pottar voru keyptir, þar sem sjá megi kærða og A saman.

Kærði var yfirheyrður nú í morgun, þar sem hann neitar allri aðild að málinu.  Hann kannast þó við að hafa farið út með meðkærða A og verið með honum í Kaupmannahöfn á umræddum tíma.

Mál þetta sé stórt í sniðum og allumfangsmikið.  Það sé því afar brýnt að lögregla fái frekara svigrúm til að ná utan um rannsókn málsins. Enn gæti mikils ósamræmis í framburðum sakborninga og vitna og liggi því næst fyrir lögreglu að taka frekari skýrslur af málsaðilum, jafnframt sem afla þarf frekari gagna frá Danmörku.

Það sé mat lögreglustjóra að lagaskilyrðum rannsóknargæslu sé fullnægt í máli þessu enda sé kærði X nú undir rökstuddum grun um aðild að stórfelldum innflutningi fíkniefna hingað til lands, þannig að varði við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.  Þá sé rannsókn málsins hvergi nærri lokið og því afar brýnt að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi, þannig að hann fái ekki tækifæri til að  torvelda rannsókninni, s.s. með því að koma undan munum, hafa áhrif á aðra samseka eða vitni. 

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a. liðar 1. mgr. 95. gr. og b. liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamálamála er þess krafist að krafan nái fram að ganga.

 Með vísan til rannsóknargagna og þess sem nú hefur verið rakið, a. liðar 1. mgr. 95. gr. og b. liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamálamála, er fallist á kröfu lögreglustjóra eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.

                Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Úrskurðarorð:

                Kærði, X, kt. [...], skal sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 21. febrúar nk. kl. 16:00.

                Kærði skal sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.