Hæstiréttur íslands

Mál nr. 524/2008


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
  • Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Fimmtudaginn 25

 

Fimmtudaginn 25. september 2008.

Nr. 524/2008.

Sýslumaðurinn á Akureyri

(Eyþór Þorbergsson, fulltrúi)

gegn

X

(Ásgeir H. Jóhannsson hdl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991. C. liður 1. mgr.

103. gr. laga nr. 19/1991.

 

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. og c. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Páll Hreinsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 22. september 2008, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 24. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Norðurlands eystra 20. september 2008, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 26. september 2008 kl. 13.30. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.

Sóknaraðili krefst aðallega staðfestingar hins kærða úrskurðar en til vara að varnaraðila verði gert að sæta farbanni.

Fallist verður á með héraðsdómi að fram sé kominn rökstuddur grunur um að varnaraðili hafi framið afbrot sem fangelsisrefsing er lögð við. Að þessu athuguðu og að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur, sbr. 3. mgr. 169. gr. laga nr. 19/1991.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Norðurlands eystra 20. september 2008.

Mál þetta barst dómnum í dag og var tekið til úrskurðar samdægurs.

Sýslumaðurinn á Akureyri krefst þess að kærði, X, kt. [...], með skráð lögheimili að [...], Reykjavík, sæti gæsluvarðhaldi til 30. september n. k., klukkan 14:30.

Kærði krefst þess að kröfunni verði hafnað, en varðhaldinu ella markaður skemmri tími en krafist er.

Kærði var handtekinn í gær ásamt konu fæddri árið 1988. Lögregla rannsakar nú meint brot þeirra gegn 181. gr., 231. gr., 244, gr.  257. gr. og 259. gr. almennra hegningarlaga.  Upplýst virðist vera að kærðu hafi brotist inn í tilgreint húsnæði á Akureyri og haldið þar til um einhvern tíma, svo og í tilgreindan sumarbústað á Svalbarðs­strönd. Lögreglu grunar að kærði hafi brotist inn í fleiri sumarbústaði, en kærði neitar því. Þá virðist liggja fyrir að í gær hafi kærði tekið fjórhjól ófrjálsri hendi. Á palli þess var nokkuð magn af DVD myndum, sem lögreglu grunar að sé þýfi.

Í kröfu sýslumanns er tekið fram að kærði hafi ásamt fyrrnefndri konu dvalið hér um slóðir í 4-5 vikur án þess að hafa fastan samastað og án atvinnu. Kvartað hafi verið undan þeim og þeim vísað út úr verslunum vegna gruns um þjófnaði.

Rannsóknari telur að kærði geti torveldað rannsókn málsins haldi hann frelsi sínu óskertu, svo sem með því að hafa áhrif á samseka. Þá megi ætla að framhald verði á brota­starfsemi kærða, verði honum sleppt. Þá sé bent á að kærði gæti áformað að fara úr landi áður en málum þessum sé lokið.    

II.

Rannsókn málsins er á frumstigi. Lögregla grunar kærða um innbrot í fleiri sumarbústaði en hann kannast við og verður að fallast á að þær grunsemdir kunni að eiga við rök að styðjast. Þá er fallist á að ætla megi að kærði muni halda áfram brotum meðan máli hans er ekki lokið. Þykir verða að fallast á að skilyrði 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991, sbr. a-lið og c-lið ákvæðisins, séu uppfyllt. Verður krafa sýslumanns því tekin til greina, en gæsluvarðhaldi markaður skemmri tími en krafist er, eins og nánar greinir í úrskurðarorði.

Erlingur Sigtryggsson héraðsdómari kveður upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð:

                Kærði, X, sæti gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 26. september n.k., klukkan 13:30.