Hæstiréttur íslands

Mál nr. 72/2012


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Fimmtudaginn 2. febrúar 2012.

Nr. 72/2012.

Ákæruvaldið

(Hulda Elsa Björgvinsdóttir saksóknari)

gegn

X

(Ómar Örn Bjarnþórsson hdl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi áfram sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Viðar Már Matthíasson, Greta Baldursdóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 31. janúar 2012 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 1. febrúar sama ár. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 31. janúar 2012, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur fellur í máli hans, en þó eigi lengur en til þriðjudagsins 28. febrúar 2012 klukkan 13. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

 Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdómur Reykjavíkur 31. janúar 2012.

Ríkissaksóknari hefur krafist þess að ákærða [X] [...], verði með úrskurði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur fellur í máli hans, þó eigi lengur en til þriðjudagsins 28. febrúar 2012, kl. 13:00. 

Í greinargerð ákæruvaldsins kemur fram að rannsóknargögn hafi borist ríkissaksóknara 21. desember sl., og hafi mál verið höfðað með útgáfu ákæru í dag, 3. janúar.

Bent er á að í ákæru sé ákærða gefið að sök stórfellt fíkniefnalagabrot og tolla-, lyfja- og lyfsölulagabrot með því að hafa staðið, saman með [Z], að innflutningi á fíkniefnum og steralyfjum ætluðum til söludreifingar í ágóðaskyni, þ.e. 9.908,06 g af amfetamíni, 8.100 töflum af fíkniefninu MDMA, 200,37 g af kókaíni, 11,73 g af fíkniefninu MDMA og eftirfarandi vefaukandi steralyfjum: 8.800 stykkjum af Metenolon töflum, 100 stykkjum af Nandrolon stungulyfi, 91 stykki af Primobolan stungulyfi, 100 stykkjum af Stanozolol töflum, 790 stykkjum af Sustanon ampúlum, 148 stykkjum af Testosteron stungulyfi, 1.800 stykkjum af Teostosteron töflum, 60 stykkjum af Danazol töflum og 60 millilítrum af Trenbolon stungulyfi, en fíkniefnin og steralyfin hafi verið flutt til Íslands frá Rotterdam í Hollandi í vörugámi með skipi frá fyrirtækinu [...] sem lagt hafi að bryggju í Straumsvík í Hafnarfirði 10. október sl. og hafi efnin samdægurs verið haldlögð af lögreglu. Í ákæru sé nánar rakið verkaskipting brotsins, sem og meint aðkoma meðákærða, [Y], að innflutningi á hluta steralyfjanna.

Þá sé ákærða einnig gefið að sök fíkniefnalagabrot með því að hafa, mánudaginn 10. október á dvalarstað sínum að [...] í Reykjavík, haft í vörslum sínum 1,06 g af kókaíni sem lögregla hafi fundið við húsleit.

Við þingfestingu málsins hafi ákærði játað sök hvað varðar innflutning á steralyfjum, sbr. hluta af ákærulið VI og fíkniefnalagabrot er varði vörslur á 1,06 g af kókaíni sem lögregla hafi fundið við húsleit á heimili ákærða, sbr. ákærulið VII. Ákærði hafi neitað sök hvað varðar innflutning á fíkniefnum ætluðum til söludreifingar í ágóðaskyni, sbr. hluta af ákærulið VI.

Fyrirhugað sé að aðalmeðferð málsins fari fram þann 16. febrúar næstkomandi.

Ákæruvaldið telji brot ákærða varða við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 64/1974 og 1. gr. laga nr. 32/2001 og 5. mgr., sbr. 1. og 2. mgr. 51. gr., sbr. 1. mgr. 68. gr. lyfsölulaga nr. 30/1963 og 1. mgr. 7. gr. og 1. mgr. 32. gr., sbr. 1. mgr. 48. gr. lyfjalaga nr. 93/1994 ásamt áorðnum breytingum og 1. mgr. 170. gr. tollalaga nr. 88/2005, sbr. 1. mgr. 6. gr., sbr. 7. gr. reglugerðar um innflutning einstaklinga á lyfjum til eigin nota nr. 212/1998 og 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002 og auglýsingu nr. 232/2001

Þá er þess getið að ákærði hafi sætt gæsluvarðhaldi frá 11. október sl., í fyrstu á grundvelli a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, en frá 8. nóvember sl. á grundvelli 2. mgr. 95. gr. sömu laga, sbr. dóm Hæstaréttar í máli nr. 659/2011 og nr. 18/2012.  Í fyrrnefndum dómum hafi Hæstiréttur fallist á að ákærði sé undir sterkum grun um að hafa framið þau brot sem hann sé ákærður fyrir.

Að mati ríkissaksóknara liggi ákærði undir sterkum grun um að hafa framið ofangreind brot. Þá liggi fyrir að brot gegn 173. gr. a. almennra hegningarlaga geti varðað allt að 12 ára fangelsisrefsingu. Með hliðsjón af alvarleika sakarefnis og þess að ríkir almannahagsmunir standi til þess að menn gangi ekki lausir þegar svo standi á sé þess krafist að ákærða verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hans. Vísist að öðru leyti um kröfuna til 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sem og fyrri úrskurða Héraðsdóms Reykjavíkur og dóma Hæstaréttar.

Kærði hefur mótmælt kröfunni. Hann krefst þess að henni verði hafnað, en til vara að gæsluvarðhaldinu verið markaður skemmri tími.

Niðurstaða:

Eins og rakið hefur verið er ákærði undir sterkum grun um aðild að broti gegn lögum um ávana- og fíkniefni, með því að hafa staðið að innflutningi á umtalsverðu magni fíkniefna. Brot það sem ákærði er grunaður um að hafa framið getur varðað allt að 12 ára fangelsi, sbr. 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 11. október sl., í fyrstu á grundvelli a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, en frá 8. nóvember sl. á grundvelli 2. mgr. 95. gr. sömu laga. Samkvæmt framansögðu verður fallist á það með ákæruvaldinu að áframhaldandi gæsluvarðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna, samkvæmt 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, enda er fyrirhugað að aðalmeðferð málsins verði 16. febrúar næst komandi. Mál ákæruvaldsins gegn honum hefur því verið rekið með eðlilegum hraða. Samkvæmt þessu verður orðið við kröfu ákæruvaldsins, eins og nánar greinir í úrskurðarorði.

Arngrímur Ísberg héraðsdómari kvað upp þennan úrskurð.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákærði, [X] [...], skal sæta áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur fellur í máli hans, þó eigi lengur en til þriðjudagsins 28. febrúar 2012, kl. 13:00.