Hæstiréttur íslands

Mál nr. 479/2006


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Föstudaginn 1

 

Föstudaginn 1. september 2006.

Nr. 479/2006.

Lögreglustjórinn í Reykjavík

(Ingimundur Einarsson varalögreglustjóri)

gegn

X

(Jón Höskuldsson hdl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 29. ágúst 2006, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 30. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 29. ágúst 2006, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 8. september 2006 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 29. ágúst 2006.

                         Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur lagt fram kröfu þess efnis að X, kt. 190679-5439, [kt. og heimilsfang] sæti áfram gæsluvarðhaldi til föstu­dagsins 8. september 2006, kl. 16:00.

Í greinargerð lögreglunnar kemur fram að ávana- og fíkniefnadeild rannsaki meintan inn­flutning á miklu magni af fíkniefnum til landsins. Kærði sé grunaður um aðild að hinu meinta broti. Meint aðild kærða sé talin varða skipulagningu, milligöngu og útvegun fíkniefnanna á Spáni. A og B hafi bæði verið handtekin miðvikudaginn 9. ágúst sl. af tollgæslu á Keflavíkurflugvelli við komuna til landsins frá Spáni. B hafi verið með fíkniefnin í farangri sem hún hafi verið með meðferðis en A verið handtekinn skömmu síðar í flugstöðinni eftir að hann hafði farið í gegnum hlið tollgæslunnar. Þau hafi bæði verið yfirheyrð og í framburðarskýrslum sem hafi verið teknar af þeim vegna málsins sé m.a. finna lýsingu þeirra á aðdraganda ferðarinnar, skipulagningu og móttöku fíkniefnanna á Spáni. Einnig sé að finna framburðarskýrslu C í gögnum málsins þar sem verknaðarþáttum aðila málsins sé lýst nánar, þar með talið kærða.

Í framburðarskýrslu sem tekin hafi verið af kærða vegna málsins neiti hann allri aðild að málinu. Hann kveðist þó þekkja C en ekki mikil tengsl vera þeirra á milli fyrir utan það að hún skuldi honum peninga. Við yfirheyrslu hafi kærði einnig greint frá ferð sinni til Spánar 31. júlí sl. og sagst hafa dvalið þar einn í viku. Hann segist ekki muna nafnið á hótelinu sem hann hafi gist á í umræddri ferð. Ljóst sé af gögnum málsins að framburði kærða beri engan veginn saman við framburði annarra sakborninga í málinu. Auk þess hafi farið fram myndsakbending og aðrir sakborningar í málinu bent á kærða sem samverkamann sinn í innflutningnum á fíkniefnunum til lands­ins.

Rannsókn málsins standi enn yfir og sé á lokastigi. Enn hafi ekki öll bankagögn borist lögreglu en muni berast á næstunni. Unnið sé að úrvinnslu símagagna og þeirra bankagagna sem hafi borist. Rannsókn málsins sé umfangsmikil og verði flýtt eftir föngum. Kærði þyki vera undir rökstuddum grun um aðild að stórfelldu fíkniefnabroti. Hann hafi sætt gæsluvarðhaldi frá 15. ágúst sl. Meint aðild kærða þyki mikil. En nauðsynlegt sé að upplýsa nánar um meinta aðild hans að brotinu og tengsl við aðra meinta vitorðsmenn sem tengist málinu, hérlendis sem erlendis, sem séu óþekktir á þessu stigi en kunni að tengjast fjármögnun, kaupum á fíkniefnunum og ætlaðri móttöku og dreifingu efnanna hér á landi.  Framundan séu frekari yfirheyrslur yfir kærða.  Nauðsyn­legt sé að kærði sæti gæsluvarðhaldi en ljóst sé að gangi kærði laus geti hann sett sig í samband við meinta vitorðsmenn sem gangi lausir eða þeir geta sett sig í samband við hann og samræmt framburði sína. Þá sé hætta á að kærði geti komið undan gögnum með sönnunargildi sem ekki hafi verið lagt hald á. Þyki þannig brýnt að vernda rannsóknar­hagmuni á þessu stigi málsins með því að varna því að kærði gangi laus. 

             Sakarefnið sé talið geta varðað við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 64/1974 og 1. gr. laga nr. 32/2001.  Um heimild til gæslu­varð­halds sé vísað til a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991.

 

Samkvæmt fyrirliggjandi rannsóknargögnum, og því sem að framan er rakið, liggur fyrri rökstuddur grunur um að kærði eigi aðild að fíkniefnabroti sem getur varðað fangelsisrefsingu samkvæmt 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með áorðnum breytingum.  Rannsókn málsins stendur enn yfir og verður að telja að rann­sóknar­hagsmunir krefjist þess að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi til að hann geti ekki torveldað rannsókn málsins.  Teljast skilyrði a- liðar  1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála uppfyllt og verður krafa lögreglustjórans í Reykjavík tekin til greina eins og hún er fram sett.

Kristjana Jónsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð

             Kærði, X, sæti áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 8. september 2006 kl. 16.00.