Hæstiréttur íslands
Mál nr. 532/2015
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Miðvikudaginn 19. ágúst 2015. |
|
Nr. 532/2015. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn X (Oddgeir Einarsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Benedikt Bogason og Greta Baldursdóttir.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 17. ágúst 2015 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 17. ágúst 2015 þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 24. ágúst 2015 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími og að hann sæti ekki einangrun meðan á því stendur.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur mánudaginn 17. ágúst 2015.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 31. ágúst nk. kl. 16:00 og einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.
Í greinargerð lögreglustjóra kemur fram að sl. laugardag hafi verið óskað eftir aðstoð lögreglu að [...] í [...] vegna líkamsárásar. Þegar lögregla hafi komið á vettvang voru gerendur á brott en A, húsráðandi hafi tekið á móti lögreglu. Hafi hún skýrt lögreglu frá því að veist hafi verið að dóttur hennar B og kærasta hennar, C. Hafi þau verið með skurð í andliti, C einnig með skurð á fæti og sagst hafa verið lamin með hamri. Blóð hafi verið á gólfi á ganginum í íbúðinni, inni í eldhúsi en mesta blóðið hafi verið í herbergi B og C. Hafi þau sagt að þrír einstaklingar hefðu komið inn á heimilið og veitt B og C þessa áverka með hníf. Hafi B og C verið flutt með sjúkrabifreið á Landspítalann í Fossvogi til aðhlynningar.
Á vettvangi hafi einnig verið D. Kvaðst hann hafa rætt við árásarþola í gegnum facebook og fengið þau skilaboð að það væri ekki allt í lagi hjá þeim og hafi hann komið til að athuga með þau. D hafi verið á vettvangi þegar árásin átti sér stað en vildi ekki tjá sig neitt frekar um málið.
Rætt hafi verið við nágranna á vettvangi sem kvaðst hafa séð tvo unga menn reyna að komast inn á ganginn. Hafi þeir meðal annars kallað að þeir þyrftu að tala við C, þeir hafi verið mjög æstir og hent einhverju í húsið.
Á slysadeild LSH í Fossvogi hafi þær upplýsingar fengist að C væri með skurð á vinstri fæti sem og á vinstri kinn og hafi hann sagt það vera eftir hníf. Einnig væri hann með kúlu aftan á höfði og sagt það vera eftir hamarshögg. B hafi verið með skurð á vinstri kinn eftir hníf, jafnframt væri hún mjög bólgin vinstra megin í andlitinu og með áverka á vinstri hendi eftir hamarshögg.
Á slysadeild hafi verið rætt við B. Kvað hún tvo karlmenn hafa komið og bankað upp á og hún farið til dyra. Hafi þeir þá ruðst inn í íbúðina, hent henni til hliðar og svo farið inn í herbergið til C, ráðist þar á hann og annar þeirra tekið upp hníf og skorið C með honum í fótinn. Síðan hafi þeir látið höggin dynja á honum og því næst tekið hana og hent henni út í horn á herberginu og sá með hnífinn hafi skorið hana með honum í andlitið og þeir svo kýlt hana nokkrum sinnum í andlitið. Þeir hafi síðan heimtað að þau létu þá fá peninga eða einhver verðmæti en svo haldið áfram að lumbra á þeim, en fljótlega yfirgefið heimilið. Aðspurð kvaðst B telja að tilefni árásarinnar væru fíkniefnaskuldir tengdar C, en hún væri samt ekki viss.
C kvaðst hafa verið sofandi inni í herbergi þegar hann hafi vaknað við að Y hafi verið að skera hann í fótinn. Kvaðst C hafa verið dreginn úr rúminu og á gólfið og þar hafi Y skorið hann með hnífnum í vinstri kinnina. Síðan tók Y upp hamar og skiptist á að lemja hann og B með hamrinum. Hótaði Y að taka B með og hótaði C og fjölskyldu þeirra B öllu illu.
Um hádegi í gær hafi lögreglu borist tilkynning um tvo aðila í annarlegu ástandi sem höfðu verið í verslun [...] og því næst ekið burt á bifreiðinni [...], svörtum [...]. Umráðamaður þess ökutækis sé Y. Stuttu síðar hafi lögreglu borist tilkynning um að gerendurnir í líkamsárásarmálinu í [...] væru aftur komnir á vettvang og væru á ganginum fyrir utan íbúðina. Hafi þeir verið farnir þegar lögregla kom á vettvang. Nágranni hafi sagt lögreglu að mennirnir hefðu farið á brott á mikilli ferð á svörtum [...]. Hafi bifreiðin fundist fyrir utan heimili Y að [...]. Y og X hafi verið handteknir inni í íbúð Y. Við leit í íbúðinni hafi fundist fartölva B og gsm sími sem tekinn hefði verið daginn áður í árásinni í [...]. Einnig hafi fundist blóðugar buxur efstar í óhreinu taui inni í fataskáp, blóðugur bolur á baðherbergisgólfi og einnig aðrar buxur með blóðkámi inni í stofu. Einnig hafi verið [...] hnífur með blóðkámi í vasa Y og dúkahnífur með blóðkámi í stofu. Í gluggakistu í svefnherbergi hafi verið klaufhamar.
Meðal gagna málsins séu upptökur úr eftirlitsmyndavélakerfi fjölbýlishússins að [...] í [...], þar sem þeir Y og X þekkist.
Þegar verið var að flytja X frá [...] þar sem hann hafi verið handtekinn vegna gruns um líkamsárás kvaðst hann ekki hafa tekið neinn þátt í að ráðast á C og B en hafi sagt að Y hafi átt allan þátt í árásinni. X kvaðst hafa reynt að passa upp á B þar sem Y sé svo klikkaður.
X liggi nú undir rökstuddum grun um að hafa síðastliðinn laugardag ruðst í félagi við Y inn í íbúð að [...] í [...], ráðist þar á tvo einstaklinga vopnaður hníf og hamri, frelsissvipt þau þar og haft á brott með sér fartölvu og síma.
Rannsókn málsins sé á frumstigi. Ekki hafi tekist að yfirheyra þá Y og X vegna málsins og eigi eftir að taka skýrslur af A, móður B, og D sem verið hafi á vettvangi er árásin átti sér stað. Þyki því brýnt með hliðsjón af gögnum málsins og rökstuddum grunsemdum lögreglu að vernda rannsóknarhagsmuni á þessu stigi málsins með því að varna því að Y og X gangi lausir svo þeir geti ekki torveldað rannsókn málsins.
Ætlað sakarefni sé talið varða 2. mgr. 218. gr. 226. mgr. og 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga 88/2008 um meðferð sakamála, og b. liðar 1. mgr. 99. gr., sbr. 2. mgr. 98. gr. sömu laga, sé þess krafist að krafan nái fram að ganga eins og hún er sett fram.
Þegar litið er til gagna málsins er fallist á það með lögreglu að kærði sé undir rökstuddum grun um að hafa framið brot sem varða fangelsisrefsingu. Svo sem rakið er í skýrslu lögreglunnar varðar brotið m.a. líkamsárás þar sem hættulegum vopnum var beitt og varði við 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Rannsókn málsins er á frumstigi og atvik málsins enn óljós, m.a. hver þáttur hvors hinna kærðu sé. Eftir á að taka skýrslur af kærða og ætluðum samverkamanni hans auk vitna. Miðað við stöðu rannsóknar málsins er að mati dómsins ljóst að kærði kunni að spilla rannsóknarhagsmuni haldi hann óskertu frelsi sínu. Með vísan til a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 er því fallist á kröfu lögreglunnar um að hann sæti gæsluvarðhaldi og jafnframt að hann sæti einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur sbr. 2. gr. 98. gr. sömu laga.
Lögreglustjóri krefst þess að kærði sæti gæsluvarðhaldi í 2 vikur, eða til 31. ágúst n.k. Með hliðsjón af umfangi máls og vísan meðalhófsreglu sem fram kemur í 2. mgr. 97. gr. laga nr. 88/2008 er ekki tilefni til að fallast á að gæsluvarðhaldið vari lengur en til kl. 16.00 þann 24. ágúst n.k.
Ingibjörg Þorsteinsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kærði, X, kt. [...], skal sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 24. ágúst nk. kl. 16:00 og einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.