Hæstiréttur íslands

Mál nr. 660/2006


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhaldsúrskurður felldur úr gildi


Föstudaginn 22

                 Föstudaginn 22. desember 2006.

 Nr. 660/2006.                          Ákæruvaldið

                         (Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari)

                         gegn

                         X

                         (Guðmundur Ágústsson hdl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhaldsúrskurður felldur úr gildi.

Ekki var fallist á kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir X á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, þar sem dráttur hafði orðið á meðferð málsins eftir útgáfu ákæru.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 20. desember 2006, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 21. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 20. desember 2006, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans, þó ekki lengur en til 25. janúar 2007 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Ákærði hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 10. ágúst 2006, fyrst á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 en frá 24. ágúst 2006 á grundvelli 2. mgr. 103. gr. sömu laga. Málið var hins vegar ekki þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrr en 10. nóvember 2006. Við þingfestingu var málinu frestað til gagnaöflunar til 23. nóvember. Í þinghaldi þann dag óskaði verjandi ákærða eftir að aðalmeðferð málsins færi fram fyrir 20. desember en þá rann út gæsluvarðhald varnaraðila samkvæmt dómi Hæstaréttar 3. nóvember 2006 í máli nr. 572/2006. Héraðsdómari bókaði í þingbók að sökum anna væri ekki unnt að verða við þeirri ósk og var málinu frestað til aðalmeðferðar 4. janúar 2007.

Ákærði hefur sem fyrr segir sætt gæsluvarðhaldi frá 10. ágúst 2006. Sæti sakborningur gæsluvarðhaldi hvílir sú skylda á dómara að hraða meðferð máls. Framkomnar skýringar á drætti málsins eru ekki fullnægjandi. Í ljósi þess verður að hafna kröfu sóknaraðila um framlengingu gæsluvarðhaldsins og fella hinn kærða úrskurð úr gildi. 

Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur.

Dómsorð:

          Hinn kærði úrskurður er felldur úr gildi.                 

 

Ú r s k u r ð u r Héraðsdóms Reykja­víkur 20. desember 2006.

          Ríkissaksóknari hefur sett fram kröfu þess efnis að X, [...], með lögheimili að [...], Reykjavík, verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans, en þó ekki lengur en til fimmtudagsins 25. janúar nk. kl. 16.00.

          Í greinargerð ríkissaksóknara segir að með ákæru útgefinni 1. nóvember 2006 hafi ríkissaksóknari höfðað opinbert mál á hendur X o.fl. fyrir stórfellt fíkniefnabrot. Sé ákærða gefið að sök að hafa átt aðild að innflutningi á 1.980,87 g af kókaíni til landsins. Umrædd fíkniefni hafi verið flutt til landsins frá Spáni þann 9. ágúst sl. og fundist við leit í farangri A þegar hún kom til landsins um Keflavíkurflugvöll. Þáttur ákærða í málinu sé talin verulegur þar sem hann hafi viðurkennt að hafa hitt tvo aðra sakborninga B og C og skipulagt innflutning efnisins, og að hafa fengið ofangreinda A til að fara til Spánar í því skyni að taka efnin með sér til baka og fara með þau í gegnum tollskoðun. Ákærði hafi einnig sjálfur farið til Spánar þar sem hann hafi sótt efnið til annars sakbornings D og afhent það A. Ákærði hafi farið á undan A í gegnum tollskoðun við komu þeirra til landsins í gegnum Keflavíkurflugvöll í þeirri von að tollverðir beindu að honum athygli þannig að A kæmist í gegn með fíkniefnin.

          Sakargiftir á hendur ákærða styðjist við framburð ákærða sjálfs og einnig við framburð annarra sakborninga og rannsóknargögn. Ákærði sé því undir sterkum grun um að hafa framið brot sem geti varðað hann allt að 12 ára fangelsi, sbr. 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 64/1974, sbr. lög nr. 32/2001, og telji ákæruvaldið því að skilyrði séu til áframhaldandi gæsluvarðhalds á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991, um meðferð opinberra mála.

          Málið hafi verið þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur hinn 10. nóvember sl. og hlotið málsnúmerið S-1929/2006. Aðalmeðferð málsins sé fyrirhuguð fimmtudaginn 4. janúar nk.

          Ákærði hafi setið í gæsluvarðhaldi frá 10. ágúst sl., fyrst á grundvelli a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991 en síðan á grundvelli 2. mgr. 103. gr. sömu laga. Sjá úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í málum nr. R-408/2006, R-450/2006, R-510/2006, R-601/2006 og dóma Hæstaréttar í málum nr. 506/2006 og 572/2006.

          Hæstiréttur hafi tekið undir það álit ákæruvalds að fyrir liggi sterkur grunur um að ákærði hafi framið brot sem geti varðað hann allt að 12 ára fangelsi, sbr. dóma Hæstaréttar í máli ákærða nr. 506/2006 og 572/2006.

          Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og 2. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála sé þess krafist að framangreind krafa nái fram að ganga.

          Með vísan til þess sem að framan hefur verið rakið er fallist á það með ákæru­valdinu að skilyrði 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 séu uppfyllt og verður því orðið við kröfu þess og ákærði úrskurðaður í gæsluvarðhald eins og nánar greinir í úrskurðarorði.  Ákæra í málinu hefur þegar verið þingfest og aðalmeðferð ákveðin og þess því að vænta að meðferð málsins ljúki á þeim tíma sem gæsluvarðhaldið stendur. Kristjana Jónsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn

Úrskurðarorð:

          Ákærði, X, [...], með lögheimili að [...], Reykjavík, sæti áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans, en þó ekki lengur en til fimmtudagsins 25. janúar nk. kl. 16.00.