Hæstiréttur íslands

Mál nr. 476/2009


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Þriðjudaginn 25

 

Þriðjudaginn 25. ágúst 2009.

Nr. 476/2009.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Stefán Eiríksson, lögreglustjóri)

gegn

X

(Guðríður Lára Þrastardóttir hdl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen og Markús Sigurbjörnsson. 

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 21. ágúst 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 24. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 21. ágúst 2009, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 28. sama mánaðar kl. 16 og sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími og honum verði ekki gert að sæta einangrun.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur, föstudaginn 21. ágúst 2009.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði X, til að sæta gæsluvarðhaldi til föstudagsins 28. ágúst 2009 kl. 16:00. Þá er þess einnig krafist að tilhögun gæsluvarðhalsins verði samkvæmt b-lið 1. mgr. 99. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

Í greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að að kvöldi miðvikudagsins 12 ágúst sl. var hafi kærði verið handtekinn, ásamt tveimur samverkamönnum, þar sem þeir hafi verið staðnir að verki við innbrot að Y í Reykjavík og verið með fangið fullt af þýfi, þegar lögreglan hafi komið að þeim, sem þeir höfðu tekið úr íbúðinni við Y. 

Kærði X hafi verið einn af þessum aðilum sem lögregla hafi staðið að verki og hafi hann í framhaldinu verið handtekinn grunaður um þjófnað úr íbúðinni ásamt þeim A og B

Þá sé kærði einnig grunaður um innbrot, ásamt fyrrnefndum samverkamönnum hans, að Z í Reykjavík þann 10. ágúst sl. þar sem stolið hafi verið um 7 til 8 þúsund krónum í lausafé og stafrænni myndavél. Auk þess sé kærði grunaður um að hafa misnotað greiðslukort sem tekið hafi verið í þessu innbroti og tekið meira en 200 þúsund krónur út af því. Vitni hafi lýst innbrotsþjófunum og komi þær lýsingar heim og saman við útlit kærða og samverkamanna hans auk þess sem A hafi viðurkennt að hafa farið þarna inn umrætt sinn.

Við yfirheyrslu hjá lögreglu hafi kærði neitað öllum sakargiftum.

Lögreglu hafi haft kærða undir grun um að tilheyra hópi manna sem hafi verið mjög virkur í innbrotum á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu, sjá nánar á meðfylgjandi skýringarmyndum. Í þessari viku hafi lögregla farið m.a. í húsleit hjá aðilunum C og D að Kársnesbraut í Kópavogi og hafi þar fundist mikið þýfi, m.a. mikið magn af skartgripum, myndavélum og annarra muna sem lögregla telji víst að sé þýfi, sjá nánar í meðfylgjandi húsleitarskýrslu, munaskýrslu og myndum.

Hafi lögregla þegar rakið þessa muni til a.m.k 7 innbrota á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu þar á meðal til innbrots að Æ í Reykjavík (mál 007-2009-48170) og innbrots í Löngulínu í Garðabæ (mál 007-2009-46547).

Í gærkvöldi hafi lögregla svo komist að því hvar kærði hafi haft dvalarstað að undanförnu ásamt meðkærða B og hafi lögregla farið í húsleit að Þ í Kópavogi. Við þá leit hafi einnig fundist mikið magn af þýfi og hafi lögregla þegar rakið hluta þess þýfis til innbrotsins að Æ, sem nefnt hafi verið hér að ofan og innbrotsins í Löngulínu. Það megi því ljóst vera að tengsl séu á milli kærða og aðilanna C og D þar sem þýfi úr a.m.k. tveimur innbrotum hafi fundist á dvalarstað þeirra og dvalarstað kærða.

Hér sé um að ræða umfangsmikla rannsókn á fjölmörgum innbrotum sem framin hafi verið víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu á undanförnum vikum. Lögregla hafi lagt hald á gífurlegt magn muna sem ætla megi að séu þýfi og vinni lögregla nú hörðum höndum að því að rekja slóð hins meinta þýfis en hafi eins og áður segi þegar rakið það til a.m.k 10 innbrota.

Lögregla leiti enn að fleiri aðilum sem séu grunaðir um að tengjast þessum hópi manna af erlendum uppruna sem hafi verið virkir í innbrotum að undanförnu og sem kærði sé talinn tilheyra.

Í haldi lögreglu séu nú fimm einstaklingar, sem allir séu grunaðir um sameiginlega aðild að skipulögðum innbrotum inn á heimili fólks að undanförnu.

Fram sé kominn rökstuddur grunur um að kærði hafi framið verknað sem varði allt að 6 ára fangelsisrefsingu. Rannsókn máls þessa sé á viðkvæmu stigi og sé ljóst að rannsóknarhagsmunir krefjist þess að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi en meðal annars eigi eftir að yfirheyra sakborninga frekar eftir því sem rannsókn málanna miði áfram og þau skýri frekar, svo og að hafa upp á öðrum sakborningum og rekja slóð hins meinta þýfis.

Þar sem rannsóknin sé á viðkvæmu stigi sé það mat lögreglu að það sé afar brýnt að kærði fái ekki tækifæri til að torvelda henni t.d. með því að koma undan munum eða hafa áhrif á aðra samseka eða vitni.

Með vísan til framanritaðs, framlagðra gagna og a liðar 1. mgr. 95. gr. laga um sakamála nr. 88/2008, sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.

Það er mat dómsins að fram sé kominn rökstuddur grunur um að kærði kunni að verða uppvís að broti er varðar gæti allt að sex ára fangelsi, ef sannast.

Umfangmikil rannsókn lögreglu á fjölmörgum innbrotum er á viðkvæmu stigi. Þegar litið er til alls framanritaðs telur dómurinn að uppfyllt séu skilyrði a liðar 1. mgr. 95.  gr. 88/2008 til að verða við kröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um gæsluvarðhald og er hún tekin til greina eins og hún er sett fram. Þá er með sömu rökum fallist á að kærði sæti einangrun skv. b lið 1. mgr. 99. gr. laganna.

Þorgerður Erlendsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi til föstudagsins 28. ágúst 2009 kl. 16:00.

Kærði skal sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.