Hæstiréttur íslands

Mál nr. 294/2015


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


 

Miðvikudaginn 22. apríl 2015.

Nr. 294/2015.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H. B. Snorrason saksóknari)

gegn

X

(Brynjólfur Eyvindsson hdl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma Eiríkur Tómasson hæstaréttardómari og Ingveldur Einarsdóttir og Karl Axelsson settir hæstaréttardómarar.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 20. apríl 2015 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 20. apríl 2015 þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 18. maí 2015 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 20. apríl 2015.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi, allt til mánudagsins 18. maí 2015, kl. 16:00.

Í greinargerð lögreglu kemur fram að hinn 19. apríl sl hafi lögregla fengið tilkynningu um mann, klæddan í bláa peysu og hermannabuxum,  sem hafi farið inn í bifreið, þegar tilkynnendur hafi reynt að stöðva hann hafi brotist út átök á milli þeirra og hafi X reynt að komast í burtu. Í framhaldinu hafi kærði verið handtekinn kl. 17:05 og hafi verið undir áhrifum lyfja, hann hafi verið klæddur í grænar hermannamynstraðar buxur og í svartri hettupeysu. Lögreglu hafði áður borist aðrar tilkynningar um tilraunir til innbrots í bíla og hafi lýsingin í báðum tilvikum átt við X, þær kærur séu nú til rannsóknar einnig að kærði hafi verið þar að verki.  Mál nr. 007-2015-[...].

Þau brot sem krafa þessi sé byggð á séu 18 talsins, og hafi þau átt sér stað í apríl  og mars á þessu ári.

Eftirfarandi séu  mál sem tilkynnt hafi verið til lögreglu 18. og 19. apríl 2015:

 Mál 007-2015-[...] – tilraun til þjófnaður úr bifreiðinni [...], hinn 19. apríl 2015, við [...], Reykjavík, tilkynnt um að rúða hafi verið brotin í bifreiðinni

Mál 007-2015-[...] – tilraun til þjófnaður úr bifreiðinni [...], hinn 19. apríl 2015, við [...], Reykjavík, vitni hafi tilkynnt um mann í svartri hettupeysu og ljósum buxum. 

Mál 007-2015-[...] – þjófnaður úr bifreiðinni [...], hinn 19. apríl 2015, við [...],  Reykjavík.  Vitni hafi séð ungan karlmann brjóta rúðu bifreiðarinnar og taka úr henni svarta fartölvutösku.   Honum sé lýst sem ungum karlmanni í ljósum kakíbuxum og svartri hettupeysu.

Mál 007-2015-[...] – þjófnaður úr bifreiðinni [...], hinn 19. apríl 2015, að [...], Reykjavík, og þaðan stolið bakpoka og æfingarfatnaði.

Mál 007-2015-[...], tilkynnt um athugaverðan mann sem væri að reyna að fara inn í bíla á [...]. Honum sé lýst svo, að hann væri í felulituðum buxum – grænum og brúnum jakka, dökkhærður og byrjaður að grána. 

Mál 007-2015-[...] – innbrot og þjófnaður í geymslu í íbúðarblokk að [...], Reykjavík, hinn 19. apríl 2015, kærði sé grunaður um að hafa tekið úr geymslunni vöðlur, veiðikassa og verkfærakassa.   

Mál 007-2015-[...] - tilraun til þjófnaður úr bifreiðinni [...], hinn 19. apríl 2015, að [...], Reykjavík, rúðu í hliðarhurð hafi verið brotin, en eigandi hafi við fyrstu skoðun talið að engu hafi verið stolið úr bifreiðinni. 

Mál 007-2015-[...] - þjófnaður úr bifreiðinni [...], hinn 18. apríl 2015, að [...], Reykjavík, tekið hafði verið uppgjör veitingastaðarins, um 70.000 krónur auk Iphone 5s síma.  Vitni hafi sagt kærða hafa stolið þessu úr bifreiðinni.

Önnur mál:

Mál 007-2015-[...] – nytjastuldur bifreiðarinnar [...], hinn 9. apríl 2015,  þar sem bifreiðin hafi verið við [...],[...], Reykjavík.

Mál 007-2015-[...] – tilkynnt um mann sem væri á [...] að ganga á bíla og reyna að opna þá.  Á vettvangi hafi lögreglan hitt fyrir kærða sem hafi viðurkennt að hafa tekið muni ófrjálsri hendi úr tveimur bifreiðum, þ.e. [...] og [...].

Mál 007-2015-[...] – tilkynnt um innbrot í [...], [...], Kópavogi, hinn 3. apríl 2015.

Mál 007-2015-[...] – nytjastuldur og fíkniefnaakstur, bifreiðinni [...] hafi verið stolið þar sem hún hafi verið í bifreiðastæði við [...]. Kærði hafi verið handtekinn.

Mál 007-2015-[...] –  þjófnaður með því að brjótast inn í bifreiðina [...], og taka úr henni tösku, hinn 24. mars 2015, þar sem bifreiðin hafi verið við [...], Reykjavík.

Mál 007-2015-[...] –  tilraun til innbrots á heimili hinn 24. mars 2015, en húsráðendur hafi kl. 02:20 um nóttina heyrt er maður hafi verið að reyna að brjótast inn á heimilið og hafi maðurinn náð að taka bíllykla bifreiðarinnar [...] og aka bifreiðinni af vettvangi.

Mál 007-2015-[...] –  þjófnað, rán, á matvælum í [...] í [...] hinn 21. mars 2015.

Mál 007-2015-[...] – þjófnað á myndavélum þegar kærði hafi fengið að gista að [...], Garðabæ, hinn 20. mars 2015.

Mál 007-2015-[...] –  innbrot í einbýlishúsið [...] og stolið þaðan myndavélum þegar kærði hafi fengið að gista að [...], Garðabæ, hinn 20. mars 2015.

Kærði hafi játað að hafa stungið höfðinu inn í bifreiðina [...] í máli 007-2015-[...] og að hafa stolið topplyklasetti úr vínrauðri bifreið.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi gefið út ákæru á hendur X þann 14. apríl sl. vegna eftirtalinna brota árið 2014:

Mál 007-2014-[...].  Fyrir þjófnað hinn 10. ágúst,  með því að fara inn í bifreiðarnar [...] og [...] og stela þaðan verðmætum auk þess að hafa brotist inn í geymslu íbúðarhúsnæðis við [...] með því að spenna upp læsingu og stela þaðan verðmætum. 

Mál 007-2014-[...].  Fyrir þjófnað hinn 24. ágúst, með því að hafa farið inn í bifreiðina [...] og stolið þaðan m.a. seðlaveski með greiðslukortum, og til vara fyrir hylmingu með því að haft þá muni í fórum sínum þegar lögregla hafi handtekið hann hinn 3. september.

Mál 007-2014-[...]. Fyrir þjófnað með því að hafa á tímabilinu frá 24. til 25. ágúst, við [...], farið inn í bifreiðina [...] og stolið þaðan peningamynt, Ipod og sólgleraugum.

Mál 007-2014-[...].  Fyrir þjófnað með því að hafa hinn 16. október, á [...] við [...], farið inn í bifreiðina [...] og stolið þaðan fartölvu að óþekktu verðmæti.

Mál 007-2014-[...]. Fyrir þjófnað með því að hafa hinn 19. október, í söluturni [...] við [...], farið inn í starfsmannasvæði söluturnsins og stolið þaðan kvennmannsveski sem innihélt úr, hring, hleðslutæki, snyrtivörur og peningamynt, allt að áætluðu verðmæti 70.000 krónur.

Mál 007-2014-[...].  Fyrir umferðarlagabrot með því að hafa aðfararnótt laugardagsins 30. ágúst, ekið bifreiðinni [...] án gildra ökuréttinda og óhæfur um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist 20 ng/ml af amfetamíni og 20 ng/ml metýlfenídat og í þvagi mældist að auki tetrahýdrókannabínólsýra og morfín) um [...], uns lögregla hafi stöðvað aksturinn á bifreiðastæði við bensínstöð [...]. 

Sakarefni málanna séu talin varða við 244. gr., 252, 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 45. gr. og 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, en brot gegn ákvæðunum geti varðað fangelsi allt að 6 árum ef sök sannist. Það sé mat lögreglu að „að ætla megi að hann muni halda áfram brotum meðan máli hans er ekki lokið“ ef hann fái að fara frjáls ferða sinna og því séu skilyrði c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 fyrir hendi.

Samkvæmt gögnum málsins er kærði undir rökstuddum grun um að hafa gerst sekur um fjölmörg hegningarlagabrot.  Gögn málsins bera með sér að kærði á að baki nokkuð langan sakaferil og hefur sex sinnum hlotið fangelsisdóma fyrir hegningarlagabrot, umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot á árunum 2004 til 2007. Í greinargerð lögreglustjóra er rakin brotastarfsemi kærða frá því í ágúst sl. og fram til dagsins í dag. Þau brot eru talin varðavið 244. gr., 252., 259., og 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Við brotum þessum liggur fangelsisrefsing sannist sök. Hefur ákæra verið gefin út vegna  þeirra brota  sem kærði er grunaður um á tímabilinu ágúst og október á síðasta ári.  Í greinargerð lögreglustjóra kemur fram að kærði sé undir rökstuddum grun um að hafa framið 18 brot frá því í mars og fram til dagsins í dag.  Kærði hefur einungis játað að hafa framið þrjú þessara brota.  Fram hefur komið að við handtöku var kærði undir áhrifum lyfja.  Með vísan til greinargerðar lögreglu og rannsóknargagna málsins þykir kominn fram rökstuddur grunur um að kærði hafi gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing liggur við og að ætla megi með hliðsjón af brotaferli kærða og fíkniefnaneyslu, að hann muni halda áfram brotastarfsemi, fari hann frjáls ferða sinna. Því er fallist á með lögreglustjóra að skilyrði c.-liðar 1. mgr. 95. gr. laga 88, 2008 séu uppfyllt. Er krafa um gæsluvarðahald því tekin til greina eins og nánar greinir í úrskurðarorði, en ekki þykja efni til að marka varðhaldinu skemmri tíma en krafist er.

               Hervör Þorvaldsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kærði, X, kt. [...], skal sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 18. maí 2015, kl. 16:00.