Hæstiréttur íslands
Mál nr. 323/2012
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Föstudaginn 11. maí 2012. |
|
Nr.
323/2012. |
Ákæruvaldið (Hulda
Elsa Björgvinsdóttir saksóknari) gegn Y (Guðmundur
St. Ragnarsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga
nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að Y skyldi áfram sæta gæsluvarðhaldi, á
grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var
staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar
Gunnlaugsson og Þorgeir Örlygsson og Benedikt Bogason settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 9. maí
2012 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður
Héraðsdóms Reykjaness 9. maí 2012, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram
gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 6. júní 2012 klukkan 16. Kæruheimild er
í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili
krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til
vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða
úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 9. maí 2012.
Ríkissaksóknari hefur í dag krafist þess að Héraðsdómur
Reykjaness úrskurði að Y, kennitala [...], til heimilis að [...] í [...], verði
gert að sæta gæsluvarðhaldi til miðvikudagsins 6. júní 2012, kl. 16:00.
Í greinargerð ríkissaksóknara segir að með bréfi
lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dags. 7. febrúar sl., hafi
ríkissaksóknara borist gögn í máli 007-2011-74727. Með ákæru dagsettri í dag,
14. mars, hafi ríkissaksóknari höfðað sakamál á hendur Y, kennitala [...], Z,
kennitala [...], Þ, kt. [...], Æ, kt.
[...], X, kt. [...] og Ö, kt.
[...], sem hér greinir:
I.
Gegn ákærðu Y, Z, Þ, X og Ö fyrir sérstaklega hættulega
líkamsárás, rán, nauðgun og þátttöku í skipulagðri brotastarfsemi, aðfaranótt
fimmtudagsins 22. desember 2011. Að undirlagi ákærða Z og ákærðu Y, sem lögðu á
ráðin og skipulögðu verknaðinn, héldu ákærðu Y, X, Þ og Ö að heimili A, kt. [...], að [...] í [...] þar sem ákærði Ö lauk upp
útidyrunum með lykli, skildi dyrnar eftir ólæstar og greiddi þannig fyrir
inngöngu meðákærðu Y, Þ og X, sem skömmu síðar ruddust í heimildarleysi inn á
heimili A og veittust að B, kennitala [...], sem var staddur í íbúðinni,
þvinguðu hann með ofbeldi út úr íbúðinni og læstu útidyrunum. Þá veittust þau
með ofbeldi að A, slógu og spörkuðu ítrekað í höfuð hennar og líkama, m.a. með
leðurkylfu, skelltu henni í gólfið, drógu hana á hárinu um íbúðina, reyttu og
klipptu eða skáru hár hennar og rifu það upp með rótum, skáru eða klipptu í
hægri vísifingur hennar, slitu upp nögl á sama fingri, hótuðu því að taka af
henni alla fingur ef hún segði til þeirra og neyddu upp í hana fíkniefnum. Þá
lagði ákærða Y hníf að hálsi A, auk þess sem hún tók um háls A og þrengdi að
öndunarvegi hennar. Ákærði Þ stakk fingrum upp í endaþarm A og leggöng og
klemmdi á milli ennfremur sem hann sagði við hana að hún hefði ekki átt að „fokkast í þessari fjölskyldu“. Ákærðu Y,
X og Þ höfðu á brott með sér farsíma þeirra A og B auk lyklakippu A sem hafði
m.a. að geyma hús-, bíl- og auðkennislykil. Ákærði Ö skildi A eftir
meðvitundarlitla, liggjandi í blóði sínu án bjargar og læsti útidyrahurðinni er
hann hafði sig á brott.
Brot ákærðu var liður í starfsemi skipulagðra brotasamtaka
en ákærðu öll eru meðlimir í eða hafa tengsl við samtök sem lögregla hér á
landi og erlendis hefur skilgreint sem alþjóðleg glæpasamtök, en samtökin eru [...]
auk stuðningssamtakanna [...] og [...]. Verknaður ákærðu var annars vegar
hefndaraðgerð og hins vegar liður í því að endurheimta bifhjól sem ákærða Y
taldi vera í sinni eigu en komst í vörslur A skömmu fyrir árásina og til að
endurheimta farsíma ákærðu Y sem var einnig í vörslum A og hafði að geyma tilteknar
myndir af ákærðu Y.
Við atlöguna hlaut A heilahristing, mar, skrámur og yfirborðshrufl á andliti, gagnaugum, hægri eyrnasnepli og
höfði, glóðarauga og bólgu á vinstra auga, skallabletti í hársverði, mar á
hægra kjálkabarði, mar og roðaför hægra megin á hálsi, dreifð eymsli í
brjóstkassa og yfirborðsáverka á kvið, yfirborðsáverka á baki, roðabletti og
fjölmargar rispur á upphandleggjum, báðum öxlum og ofanverðu baki, mar á
vinstri kálfa, mar og eymsli á hægri sköflungi og tognun í lendhrygg, brjósthrygg
og hálshrygg, alldjúpan 2 sm skurð á hægri vísifingri
og lausa nögl, roða og margar húðrispur innanvert á lærum, bogadregna rispu
rétt utan við endaþarmsop vinstra megin, stóran marblett á vinstri rasskinn og
annan minni þar fyrir neðan, mikil eymsli í endaþarmi, leggöngum og spönginni
þar á milli og áfallastreituröskun.
Brot ákærðu Y, Z, Þ, X og Ö teljast varða við 175. gr. a.,
1. mgr. 194. gr., 2. mgr. 218. gr. og 252. gr., , almennra hegningarlaga nr.
19/1940 auk þess sem brot ákærða Ö telst einnig varða við 1. mgr. 220. gr. sömu
laga.
II.
Gegn ákærða Æ fyrir þátttöku í skipulagðri brotastarfsemi,
sbr. I. ákærulið, með því að hafa, að tilstuðlan ákærða Z fyrir árásina sem þar er lýst, tekið við poka
skömmu eftir árásina sem hafði að geyma fatnað, þ.e. skíðagrímu og jakka, sem
ákærði Þ klæddist við árásina, auk ofangreindrar leðurkylfu, en ákærðu Y, X og Þ
afhentu ákærða Æ pokann á dvalarstað hans að [...], [...]. Ákærði Æ geymdi
innihald pokans á heimili sínu þar til lögregla haldlagði munina þann 30.
desember 2011.
Telst þetta varða við 175. gr. a. almennra hegningarlaga.
Málið, sem hafi fengið númerið S-215/2012, hafi verið
þingfest 30. mars sl. í Héraðsdómi Reykjaness og neitaði ákærða Y sök og hafnað
framkominni bótakröfu. Aðalmeðferð málsins stendur nú yfir, skýrslutökum lokið
og málflutningur hófst í gær og verður fram haldið í dag. Stefnt er að því að
aðalmeðferð ljúki í dag.
Að mati ríkissaksóknara liggi ákærða undir sterkum grun um
að hafa í félagi við aðra ákærðu framið þau brot sem tilgreind eru í ákæru, þá
varði brot gegn 1. mgr. 194. gr., 2. mgr. 218. gr. og 252. gr. almennra
hegningarlaga nr. 19/1940 allt að 16 ára fangelsi. Með hliðsjón af alvarleika
sakarefnis og þess að ríkir almannahagsmunir standi til þess að menn gangi ekki
lausir þegar svo stendur á er þess krafist að ákærðu verði gert að sæta
gæsluvarðhaldi meðan mál hennar er til meðferðar fyrir héraðsdómi, sbr. 2. mgr.
95. gr. laga nr. 88/2008. Að öðru leyti er vísað til fyrri úrskurða Héraðsdóms
Reykjaness um gæsluvarðhald ákærðu, nr. R-439/2011, R-27/2012, R-49/2012,
R-89/2012 og R-131/2012 og R-196/2012 og dóma Hæstaréttar nr. 695/2011,
21/2012, 52/2012, 107/2012 og 166/2012.
Ákærða hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 22. desember sl. Fyrst
vegna rannsóknarhagsmuna en svo vegna almannahagsmuna. Ákæra hefur verið gefin
út á hendur henni og aðalmeðferð á lokastigi. Er fallist á að enn séu skilyrði
fyrir því að hún sæti gæsluvarðhaldi samkvæmt 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008,
meðan mál hennar er til meðferðar fyrir dómi. Er því fallist á kröfu
ríkissaksóknara, eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
Sveinn Sigurkarlsson héraðsdómari kvað upp þennan úrskurð.
Ú r s k u r ð a r o r ð:
Ákærða, Y, sæti áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins
6. júní 2012 kl. 16:00.