Hæstiréttur íslands
Mál nr. 758/2013
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald
|
Þriðjudaginn 3. desember 2013. |
|
|
Nr. 758/2013. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H.B. Snorrason saksóknari) gegn X (Brynjólfur Eyvindsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Dómur Hæstaréttar
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Eiríkur Tómasson og Þorgeir Örlygsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 29. nóvember 2013 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 2. desember sama ár. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 29. nóvember 2013 þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 27. desember 2013 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður talið að rökstuddur grunur sé fram kominn um að varnaraðili hafi gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing liggur við og ætla megi að hann muni halda áfram brotum meðan máli hans er ekki lokið, sbr. c. lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Verður úrskurðurinn því staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 29. nóvember 2013.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að að X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 27. desember 2013 kl. 16:00.
Í greinargerð kemur fram að kærði hafi verið handtekinn í gærmorgun grunaður um innbrot í [...] við [...] í Reykjavík fyrr um morguninn en þaðan hafi verið stolið tölvuskjá sem síðar hafi fundist í íbúð að [...] þar sem kærði hafi verið handtekinn ásamt öðrum sem þar voru. Þá sé kærði jafnframt grunaður um þjófnað á [...] við [...] í Reykjavík fyrr um nóttina en þaðan hafi verið áfengisflöskum og peningakassa. Frá [...] séu til upptökur úr eftirlitsmyndavélakerfi sem sýni hvar, að því er talið er þrír, menn fari inn í matsal og taki þaðan áfengisflöskur og peningakassa. Mennirnir séu aldrei saman heldur aðeins einn í einu í matsalnum. Við nánari rannsókn sé það mat lögreglu að um sé að ræða aðeins tvo menn þar sem annar mannanna komi inn í tvígang. Þekki lögreglumenn kærða sem annan aðilann, þ.e. þann sem aðeins komi inn einu sinni. Þá hafi aðrir sem handteknir hafi verið með kærða í umrætt sinn borið um það að kærði sé annar aðilanna. Kærði hafi viðurkennt að hafa farið inn á hótelið og stolið þaðan áfengisflöskum. Kærði vilji ekki kannast við að hafa brotist inn í fyrirtækið [...].
Þann 18. nóvember sl. hafi kærði verið handtekinn ásamt öðrum manni grunaður um innbrot og þjófnað í sumarhús í [...] og líkamsárás á hendur manni sem þar hafi komið að. Sé það mál til rannsóknar hjá lögreglunni á Selfossi.
Þá hefur lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu þegar gefið út ákæru þann 19. nóvember sl. á hendur kærða vegna fjölda auðgunarbrota auk tveggja umferðarlagabrota en kærði hafi viðurkennt flest þeirra hjá lögreglu við rannsókn málanna. Hlaupi verðmæti hins stolna á milljónum króna og hafi lítið af því verið endurheimt. Séu brotin framin á tímabilinu 20. febrúar til 17. október 2013.
Þann 8. október sl. hafi kærði verið dæmdur í 2 mánaða fangelsi skilorðsbundið til 2 ára fyrir þjófnaðarbrot og umferðarlagabrot. Séu því nokkur þeirra brota sem hann hafi nú verið ákærður fyrir ítrekun við þann dóm. Kærði eigi annars ekki langan sakaferil að baki en svo virðist vera sem ekkert lát ætli að verða á brotastarfsemi kærða. Kærði hafi engin bein tengsl við landið og sé í brottvísunarferli hjá Útlendingastofnun. Með vísan til framangreinds og þess að kærði sé ítrekað í höndum lögreglunnar telji lögregla yfirgnæfandi líkur á því að kærði muni halda brotastarfsemi áfram fari hann frjáls ferða sinna og því nauðsynlegt að kærði sæti gæsluvarðhaldi á meðan mál hans séu til rannsóknar hjá lögreglu og sæti dómsmeðferð.
Sakarefni málanna séu talin varða við 1. mgr. 218., 244., 245., 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 auk brota gegn umferðarlögum nr. 50/1987 en brot gegn ákvæðunum geti varðað fangelsi allt að 6 árum ef sök sannist. Um heimild til gæsluvarðhalds sé vísað til c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.
Með vísan til greinargerðar lögreglu og rannsóknargagna málsins þykir kominn fram rökstuddur grunur um að kærði muni halda áfram brotum ef hann fær að ganga laus. Fallist er á með lögreglustjóra að skilyrði c.-liðar 1. mgr. 95. gr. laga 88/2008 séu uppfyllt. Er krafa um gæsluvarðahald því tekin til greina eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
Arngrímur Ísberg héraðsdómari kveður upp þennan úrskurð.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð:
X, kt. [...], skal sæta gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 27. desember 2013 kl. 16:00.