Hæstiréttur íslands
Mál nr. 41/2011
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
Miðvikudaginn 19. janúar 2011. |
|
|
Nr. 41/2011. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H.B. Snorrason saksóknari) gegn X (Guðrún Sesselja Arnardóttir hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson, Páll Hreinsson og Viðar Már Matthíasson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 17. janúar 2011, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 18. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 16. janúar 2011, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 21. janúar 2011, klukkan 16 og einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinum kærða úrskurði verði hrundið. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur, sbr. 3. mgr. 220. gr. laga nr. 88/2008.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 16. janúar 2011.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], [...], Reykjavík verði gert að sæta gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 21. janúar 2011 kl. 16:00. Þá er gerð krafa um að kærði sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.
Í greinargerð lögreglu kemur fram, að um klukkan 20:30 í gærkvöldi, 15. janúar 2011, hafi lögreglu borist tilkynning um yfirstandandi innbrot að [...] í [...]. Skömmu síðar hafi borist upplýsingar um að bifreið með skráningarnúmerið [...] væri tengd innbrotinu og væri á leið frá vettvangi. Lögreglubifreiðar hafi þegar verið sendar á vettvang og á eftir umræddri bifreið. För bifreiðarinnar hafi verið stöðvuð á Vesturlandsvegi skammt norðan við Þingvallaveg. Bifreiðinni hefi ekið Y, kt. [...] og hafi hann verið einn í henni. Í bifreiðinni hafi reynst vera þýfi í tveimur töskum sem hafi tilheyrt íbúum [...], þar á meðal Playstation 3 leikjatölva, Canon stafræn myndavél, tvær fartölvur og skartgripir. Ökumaður bifreiðarinnar hafi í kjölfarið verið handtekinn. Í bifreiðinni hafi, ásamt þýfinu, fundist debetkort í eigu X, kt. [...], kærða í máli þessu.
Fyrirliggjandi sé í málinu framburður vitnis sem hafi orðið vart við mannaferðir á 2. hæð í húsinu við [...] í [...]. Vitnið hafi jafnframt séð hvar bifreiðinni [...] hafi verið ekið að húsinu og út úr því hafi komið aðili í grárri hettupeysu og hafi vitninu fundist hann vera asískur í útliti. Umræddur aðili muni hafa afhent ökumanni bifreiðarinnar [...] tvær töskur og hafi bifreiðinni í kjölfarið verið ekið í burtu. Vitnið hafi sagst vera nokkuð visst um að tveir menn gætu hafa verið í húsinu þó að vitnið hafi einungis séð einn koma út úr því.
Á grunni alls framangreinds hafi grunur beinst að kærða um aðild að málinu og hafi þegar verið hafin leit að honum. Hann hafi síðan verið handtekinn kl. 23.35 í gærkvöldi.
Rannsókn málsins sé á frumstigi. Fyrir liggi gögn í málinu, þar á meðal skófar sem hafi fundist á vettvangi og samsvari skóm kærða, og vitnisburður sem tengi kærða ótvírætt við innbrot og þjófnað í húsinu við [...] í gærkvöld, þar sem umtalsverðum verðmætum hafi verið stolið. Jafnframt séu uppi sterkar grunsemdir um að fleiri tengist þessu máli eins og fram komi í gögnum málsins. Aðrir en kærði og ökumaður bifreiðarinnar [...] hafi þó enn ekki verið handteknir. Kærði neiti sök og kannist ekki við að hafa verið í [...] eða tengjast málinu að öðru leyti. Þyki því brýnt með hliðsjón af gögnum málsins og sterkum grunsemdum lögreglu að vernda rannsóknarhagsmuni á þessu stigi málsins með því að varna því að kærði gangi laus, en veruleg hætta sé talin á að hann torveldi rannsókn málsins með því að hafa áhrif á aðra samseka, fái hann að fara frjáls ferða sinna. Kærði sé á átjánda aldursári og hafi barnaverndaryfirvöld því verið upplýst um málið, sem og móðir hans. Það sé mat lögreglu að önnur úrræði geti ekki komið í stað gæsluvarðhalds eins og málum og rannsóknarhagsmunum sé háttað, sbr. 5. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála, sbr. 1. mgr. 100. gr. sömu laga.
Til rannsóknar í máli þessu sé ætlað brot gegn 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Brotist hafi verið inn á heimili að [...] í [...] og mörgum verðmætum munum stolið. Kærði sé sterklega grunaður um aðild að málinu samkvæmt gögnum og vitnisburði. Kærði hafi áður komið við sögu lögreglu í tengslum við innbrot og þjófnað þrátt fyrir ungan aldur og ekki útilokað að hann og félagar hans tengist fleiri innbrotum í heimahús á höfuðborgarsvæðinu á undanförnum vikum og mánuðum. Það sé því brýnt og nauðsynlegt með vísan til alls framanritaðs og gagna málsins að öðru leyti að kærða verði með vísan til a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 gert að sæta gæsluvarðhaldi til föstudagsins 21. janúar 2011 kl. 16.00 og til að sæta einangrun samkvæmt b. lið 1. mgr. 99. gr. sömu laga.
Með vísan til greinargerðar lögreglu og rannsóknargagna málsins þykir kominn fram rökstuddur grunur um að kærði hafi gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing liggur við. Rannsókn málsins er á frumstigi og er fallist á með lögreglustjóra að skilyrði a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 séu uppfyllt. Er krafa um gæsluvarðhald því tekin til greina eins og nánar greinir í úrskurðarorði en ekki þykja efni til að marka gæsluvarðhaldinu skemmri tíma. Á sama hátt er fallist á að kærði verði látinn vera í einrúmi meðan á gæsluvarðhaldinu stendur sbr. b. lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008.
Sigríður Ólafsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð:
Kærði, X, kt. [...], [...], Reykjavík skal sæta gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 21. janúar 2011 kl. 16:00. Kærði skal sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.