Hæstiréttur íslands
Mál nr. 364/2003
Lykilorð
- Dómsuppkvaðning
- Ómerking
- Heimvísun
|
|
Fimmtudaginn 29. apríl 2004. |
|
Nr. 364/2003. |
Hlöðver Árni Guðmundsson og Þuríður Georgsdóttir (Garðar Briem hrl.) gegn Þorsteinu S. Ólafsdóttur (Helgi Birgisson hrl.) og gagnsök |
Dómsuppsaga. Ómerking. Heimvísun.
Héraðsdómur var ómerktur og málinu vísað heim í hérað til munnlegs málflutnings og dómsuppsögu að nýju, þar sem ekki hafði verið fylgt fyrirmælum síðari málsliðar 1. mgr. 115. gr. laga nr. 91/1991.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Ingibjörg Benediktsdóttir og Ólafur Börkur Þorvaldsson.
Aðaláfrýjendur skutu málinu til Hæstaréttar 16. september 2003 að fengnu áfrýjunarleyfi og krefjast sýknu af kröfu gagnáfrýjanda. Þau krefjast og málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti.
Gagnáfrýjandi áfrýjaði héraðsdómi fyrir sitt leyti 17. nóvember 2003. Hún krefst þess að aðaláfrýjendur verði dæmd til að greiða sér 200.000 krónur ásamt dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla vaxtalaga nr. 25/1987 frá 19. febrúar 2001 til 1. júlí sama árs og samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá þeim degi til greiðsludags. Þá krefst hún málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti.
Málið var tekið til dóms í héraði við lok aðalmeðferðar 24. mars 2003. Hinn áfrýjaði dómur var kveðinn upp 25. apríl sama árs, en ekki var þá sótt þing af hálfu málsaðila. Var þá liðinn frestur samkvæmt 1. mgr. 115. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála til að kveða upp dóm í málinu án þess að það yrði munnlega flutt á ný eða að aðilar þess og héraðsdómari væru samdóma um að það væri óþarft. Vegna þessa verður ekki hjá því komist að ómerkja sjálfkrafa hinn áfrýjaða dóm og vísa málinu heim í hérað til munnlegs málflutnings og dómsuppsögu að nýju.
Rétt er að aðilar beri hver sinn kostnað af þessum þætti málsins fyrir Hæstarétti.
D ó m s o r ð:
Hinn áfrýjaði dómur er ómerktur og málinu vísað heim í hérað til munnlegs flutnings og uppsögu dóms að nýju.
Málskostnaður fyrir Hæstarétti fellur niður.