Hæstiréttur íslands

Mál nr. 696/2015


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


                                     

Miðvikudaginn 14. október 2015.

Nr. 696/2015.

Lögreglustjórinn á Suðurlandi

(Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi)

gegn

X

(Kristrún Elsa Harðardóttir hdl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir, Benedikt Bogason og Karl Axelsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 10. október 2015, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 13. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 9. október 2015 þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi til föstudagsins 23. október 2015 klukkan 15 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 9. október 2015.

Lögreglustjórinn á Suðurlandi hefur gert þá kröfu að X, kt. [...], til lögheimilis að [...],[...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 allt fram til kl. 15:00 föstudaginn 23. október n.k.

                Þess er krafist að kærða sæti einangrun í gæsluvarðhaldinu.

                Kærða mótmælir kröfunni og krefst þess að henni verði hafnað, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími og að einangrun verði ekki beitt og til þrautavara að fallist dómari á fulla lengd kröfunnar þá verði ekki verði beitt einangrun.

                Í greinargerð lögreglu segir að með vísan til fyrirliggjandi gagna sé kærða undir rökstuddum grun um að hafa átt aðild að a.m.k. ellefu lögreglumálum, á tímabili sem hafi hafist í gær þann 8. október og staðið fram til þess að lögregla handtók kærðu skömmu eftir hádegi og kaffileyti þann sama dag.

                Kærða hafi verið handtekin um kaffileytið í gær og hún þá verið stödd sofandi í sumarhúsi að [...] í Skaftárhreppi. Í sumarhúsinu hafi verið að finna nokkurt magn þýfis, sem strax hafi reynst mögulegt að tengja að einhverju leyti við einstök mál er komið höfðu upp fyrr þann sama dag, og sem séu til rannsóknar hjá embætti lögreglustjórans á Suðurlandi.

                Skömmu áður en kærða hafi verið handtekin í gær, sbr. framangreint, hafi tveir karlmenn verið handteknir, en þeir hafi þá verið staddir í bifreiðinni [...], við [...] á Kirkjubæjarklaustri. Í bifreiðinni hafi fundist nokkurt magn þýfis, sem strax hafi reynst mögulegt að tengja að einhverju leyti við einstök mál er komið höfðu upp fyrr þann sama dag, og sem séu til rannsóknar hjá embætti lögreglustjórans á Suðurlandi. Við eftirgrennslan lögreglu hafi komið í ljós að umrædd bifreið hafi verið tilkynnt stolin fyrr þennan sama dag.

                Tvö vitni hafi borið um að þeir hafi að morgni þess 8. október séð pallbifreið af gerðinni [...] fyrir utan framangreint sumarhús, sem kærða hafi fundist sofandi í. Þá hafi tveir karlmenn verið á gangi umhverfis bifreiðina. Rannsókn lögreglu hafi leitt í ljós að um sé að ræða bifreið sömu tegundar og sem svipað hafi að öðru leyti til þeirrar bifreiðar sem framangreindir karlmenn hafi verið handteknir í. Þá hafi vitnin upplýst að á palli bifreiðarinnar hafi verið mikið magn muna, sem hafi samræmst því hvernig aðkoma lögreglu hafi verið að bifreiðinni umrætt sinn.

                Umrædd mál sem nú þegar séu til rannsóknar hjá lögreglu, og kærða sé undir rökstuddum grun um að hafa átt aðild að, séu eftirfarandi: 007-2015-58139, 318-2015-11540, 318-2015-11541, 318-2015-11542, 318-2015-11543, 318-2015-11544, 318-2015-11550, 318-2015-11552, 318-2015-11560, 318-2015- ?, 318-2015- ?. Þá sé lögreglu ennþá að berast upplýsingar um mál sem kærða kunni að tengjast, enda mjög skammt liðið frá því að ætluð brotahrina kærðu hafi hafist og nýjar upplýsingar stöðugt að koma fram, bæði utan að og við rannsókn.

                Lögregla vinni nú hörðum höndum við að upplýsa framangreind mál, en rannsókn þeirra allra sé eðlilega á algjöru frumstigi. Um sé að ræða yfirgripsmikla rannsókn, enda brotavettvangar víða, mikið magn þýfis hafi fundist í fórum kærðu og grunaðra samverkamanna sem ennþá eigi eftir að rannsaka frekar, skrá og tengja við ólíka brotavettvanga, vitni eigi eftir að yfirheyra, rannsaka þurfi hlut hvers og eins grunuðu í ætluðum brotum, auk þess sem lögreglu sé ennþá að berast upplýsingar um brot sem ætla megi að kærða og samverkamenn hennar eigi aðild að. Þá megi gera ráð fyrir að upplýsingar um slíkt haldi áfram að berast lögreglu eftir því sem líður á helgina, enda sé alls ekki útilokað að kærða hafi farið á fleiri staði þ.á m. sumarhús, sem ekki hafi verið tilkynnt til lögreglu enda hafi húsráðendur ekki uppgötvað það ennþá. Teknar hafi verið myndir af ætluðu þýfi og rituð um það skýrsla, en um sé að ræða mikið magn ætlaðs þýfis, sem lögreglu hafi ennþá ekki unnist tími til þess að útbúa munaskrá vegna. Þá séu fyrir hendi augljósir rannsóknarhagsmunir kærðu og samverkamanna hennar að bera sig saman, en eins og mál þetta liggi fyrir sé ekki mögulegt að gera upp á milli þátttöku einstakra aðila í málunum. Öll eigi þau nokkurn sakarferil að baki og eigi ólokin mál í lögreglukerfinu.

                Ekki hafi reynst unnt að taka skýrslu af kærðu og meintum samverkamönnum hennar fyrr en um hádegi í dag, sökum þess að þau hafi öll verið undir miklum vímuefnaáhrifum.

                Með vísan til sakaferils kærðu og fyrirliggjandi gagna um ætluð brot sé það mat lögreglustjóra að fram sé kominn rökstuddur grunur um að kærða hafi gerst sek um háttsemi sem fangelsisrefsing sé lögð við, að hún muni næst hljóta óskilorðsbundinn dóm. Stutt skýrslutaka af kærðu hafi farið fram nú fyrir stundu. Hún neiti alfarið sök. Kveðist kærða hafa vaknað í umræddum bústað, muni ekkert sökum vímuefnaáhrifa. Þekki meinta samverkamenn en muni ekki eftir að hafa verið með þeim þennan umrædda dag. Kunni enga skýringu á tilvist bifreiðarinnar.

                Með vísan til framangreinds, fyrirliggjandi gagna og tilvísaðra rannsóknarhagsmuna, svo og með vísan til a.-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sé þess farið á leit að framangreind krafa um gæsluvarðhald nái fram að ganga. Nái krafa þessi fram að ganga sé þess óskað að varnaraðila verði gert með úrskurði að sæta einangrun í gæsluvarðhaldinu skv. b. lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Forsendur og niðurstaða

                Samkvæmt því sem að framan greinir og að virtum rannsóknargögnum verður fallist á það með lögreglustjóra að kærða sé undir rökstuddum grun um auðgunarbrot skv. XXVI. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940, í framangreindum málum lögreglu, en við brotum sem hún er grunuð um liggur allt að 6 ára fangelsi samkvæmt nefndum ákvæðum.

                Rannsókn málanna er skammt á veg komin og ljóst að mati dómsins að kærða geti torveldað rannsókn málanna, svo sem með því að afmá merki eftir brot, skjóta undan munum ellegar hafa áhrif á samseka eða vitni, haldi hún frelsi sínu, en af því hefur hún augljósa hagsmuni sé hún sek um þau brot sem hún er grunuð um, en hún neitar sök. Er þannig fullnægt skilyrðum a liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Þá þykir ekki vera sýnt að kærðu verði aðeins gerð fésektarrefsing eða skilorðsbundin fangelsisrefsing miðað við aðstæður, verði hún fundin sek um þau brot sem hún er grunuð um, sbr. 3. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

                Frá því að kærða var handtekin liðu meira en 24 klukkustundir uns hún var leidd fyrir dómara. Sá dráttur sem á því varð þykir þó hafa verið nægilega réttlættur af hálfu lögreglustjóra en vísað hefur verið til þess að ástand kærðu hafi verið á þann veg að ekki hafi verið unnt að taka af henni skýrslu fyrr, en drátturinn var ekki umfram þau tímamörk sem getið er í niðurlagsákvæði 94. gr. laga nr. 88/2008. Þá verður að geta þess að lögreglustjóri hafði komið gæsluvarðhaldskröfu sinni til dómsins innan tímamarka, en vakthafandi dómari var upptekinn við þinghald í öðru máli og dómsalur í notkun.

                Ber því að fallast á kröfu lögreglustjóra um að kærða sæti gæsluvarðhaldi eins og krafist er, en kröfunni þykir í hóf stillt.

                Að virtum rannsóknarhagsmunum ber að fallast á kröfu lögreglustjóra um að kærða sæti einangrun í gæsluvarðhaldinu skv. 2. mgr. 98. gr. og b lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008.

                Sigurður G. Gíslason héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð:

Kærða, X, sæti gæsluvarðhaldi til föstudagsins 23. október 2015 kl. 15.00.

Kærða sæti einangrun í gæsluvarðhaldinu.