Hæstiréttur íslands

Mál nr. 761/2015


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


                                            

Þriðjudaginn 10. nóvember 2015.

Nr. 761/2015.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H. B. Snorrason saksóknari)

gegn

X

(Jóhannes Ásgeirsson hrl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. 

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir, Benedikt Bogason og Karl Axelsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 6. nóvember 2015, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 9. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 6. nóvember 2015, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 4. desember 2015 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

                                                           

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 6. nóvember 2015.

                Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess fyrir dóminum í dag að X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 4. desember nk. kl. 16:00.

                Í greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu segir að þann [...]. október sl. hafi verið kallað eftir aðstoð lögreglu í [...] að [...] í Hafnarfirði vegna ráns. Þegar lögregla kom á vettvang hafi gerendur verið farnir á brott en starfsmaður verslunarinnar hafi skýrt lögreglu frá því að hann hafi verið við vinnu í herbergi sem er inn af versluninni þegar hann hafi séð mann með hettu yfir andlitinu nálgast sig og hafi annar árásarmannanna öskrað á starfsmanninn að leggjast niður. Því næst hafi starfsmaðurinn séð hvar hann lyfti öxi eins og hann væri að reiða hana til höggs og slá sig með henni. Starfsmaðurinn kvaðst hafa komist út úr versluninni á hlaupum en þá tekið eftir að annar maður hafi einnig verið inni í versluninni að hreinsa úr skartgripaskápum. Starfsmaðurinn kvaðst hafa séð, þegar hann hafi verið staddur fyrir utan húsið eftir ránið, hvítum jeppling ekið upp [...] og hafi tveir menn með hettur fyrir andlitum verið í framsætum bifreiðarinnar.

Að kvöldi [...]. október sl. hafi lögreglumenn farið að [...] í [...] en grunur lék á að kærði væri þar. Höfðu lögreglu borist upplýsingar þess efnis að kærði væri vopnaður skammbyssu. Er lögreglumenn stóðu fyrir utan [...] sáu þeir mann koma gangandi frá [...] inn á [...] og báru lögreglumenn kennsl á manninn sem kærða X. Lögreglumenn hafi gengið á móti honum og tilkynntu að þeir væru vopnaðir og gáfu honum fyrirmæli um að fara niður á hnén og hafa hendur sýnilegar. Voru fyrirmælin ítrekuð. Kærði hafi þá lagt á flótta austur [...] og að [...] og lögreglumenn hlaupið á eftir honum. Á flóttanum hafi hann snúið sér við, beint byssu að lögreglumönnunum og skotið að þeim þremur skotum í röð. Lögreglumennirnir hafi þá kallað upp að verið væri að skjóta á þá úr skotvopni svo allir í nágrenninu gætu heyrt og komið sér í skjól. Kærði hafi verið eltur þar sem hann hljóp yfir [...] að [...] og honum gefin ítrekuð fyrirmæli um að stöðva og að lögregla væri vopnuð. Á flóttanum hafi kærði skotið fjórum til fimm skotum upp í loftið, hvert á eftir öðru. Kærði hafi svo hent frá sér byssunni og hafi hann þá verið hlaupinn uppi af lögreglumönnum og yfirbugaður.

                Kærði hafi setið í gæsluvarðhaldi á grundvelli rannsóknarhagsmuna frá [...]. október sl. Í skýrslutökum hjá lögreglu hafi kærði neitað sök. Skýrði hann frá því að þegar hann hafi komið á [...] umrætt kvöld hafi hann séð einhverja aðila hlaupa á eftir sér. Hann hafi ekki vitað hverjir þetta væru og reynt að hlaupa frá þeim. Þegar hann hafi heyrt að þetta væri lögreglan hafi hann hent byssunni frá sér en hann hafi einungis skotið þremur til fjórum skotum úr byssunni upp í loftið. Hann hafi verið með byssuna á sér í þeim tilgangi að verja sig.

                Samkvæmt símagögnum úr síma kærða hafi hann verið staðsettur í [...] rétt fyrir ránið og strax eftir ránið en sími hans svo færst hratt nær [...].

                Meðkærði Y hafi skýrt frá því hjá lögreglu að kærði X hafi skipulagt ránið. Þeir hafi farið í verslunina,  kærði X hafi hlaupið á bak við, vopnaður exi, og skipað starfsmanninum að leggjast á gólfið, sem hafi hlaupið út úr versluninni. Y hafi brotið glugga í sýningarskáp og glugga í afgreiðsluborði. Í framhaldinu hafi þeir ekið að [...] þar sem Z hafi tekið á móti þeim. Þar hafi þeir skilið [...] bifreiðina eftir og ekið heim til systur X. Hafi Z beðið úti í bíl á meðan hann og X fóru inn. X hafi svo farið út í bíl til Z með þýfið og komið til baka með pening og amfetamín.

                Meðkærði Z hafi skýrt frá því að kærði X sé stórskuldugur við Z. Hafi  kærði X hringt í hann daginn sem ránið var framið og sagt honum að vera á bifreiðastæðinu við [...] eftir hálftíma og ef hann sinni því ekki fengi hann skuldina ekki greidda. X hafi komið þangað ásamt Y á hvítum stolnum jeppa. Hafi þeir komið yfir í bifreiðina til Z og kærði X sagt honum að bruna til [...] því hann hefði verið að fremja rán. Hafi Z ekið með þá til [...] til systur kærða X. Kærði X hafi boðið honum að taka við þýfinu en Z hafi neitað því.  Kærði X hafi þá sagst ætla að útvega peninga og beðið hann að hafa samband við móður sína eftir nokkra daga. Eftir þetta hafi X farið.

                Við skoðun lögreglumanna á byssunni eftir handtöku kærða hafi komið í ljós að um gasbyssu er að ræða. Byssan sé með gashylki í skefti og geti skotið blýskotum. Í byssunni sé magasín sem taki 8 skot. Frekari rannsókn á vopninu eigi eftir að fara fram.

                Kærði eigi nokkurn sakaferil að baki sem nái aftur til 2004.

                Samkvæmt rannsóknargögnum málsins liggi kærði nú undir sterkum grun um rán, valdstjórnarbrot, tilraun til stórfelldrar líkamsárásar og hættubrot, með því að hafa fimmtudaginn [...]. október sl., í félagi við Y, ruðst inn í verslun [...] að [...] í Hafnarfirði, X vopnaður exi, og haft í brott með sér óþekkt magn skartgripa og að hafa síðar sama dag, er lögregla hafði afskipti af honum í [...], skotið úr gasbyssu í átt að þeim lögreglumönnum sem veittu honum eftirför og að hafa skotið úr byssunni fjórum til fimm skotum upp í loftið á meðan á eftirförinni stóð og beint byssunni að almennum borgurum og framið þar brot sem varðað geti við 106. gr., 2. mgr. 218. gr., 4. mgr. 220. gr. og 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. þó 20. gr. sömu laga að því er varðar meint brot gegn 2. mgr. 218. gr. Framangreind brot geti varðað allt að 16 ára fangelsi. Það sé ljóst að kærði sé hættulegur umhverfi sínu og sé það mat lögreglu að gæsluvarðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Myndi það jafnframt særa réttarvitund almennings gengi kærði laus.

                Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og 2. mgr. 95. gr. laga 88/2008 um meðferð sakamála þess krafist að krafan nái fram að ganga eins og hún er sett fram.

                 Kærði hefur setið í gæsluvarðhaldi á grundvelli rannsóknarhagsmuna frá [...]. október sl. Í skýrslutöku hjá lögreglu hefur hann neitað sök. Meðákærðu hafa skýrt svo frá hjá lögreglu að kærði X hafi skipulagt ránið. Kærði er undir sterkum grun að hafa brotið gegn 106. gr., 2. mgr. 218. gr., sbr. 20. gr., 4. mgr. 220. gr. og 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Brot gegn 252. gr. almennra hegningarlaga getur varðað við allt að 16 ára fangelsi. Með tilliti til almannahagsmuna er á það fallist að brot kærða sé þess eðlis að nauðsynlegt sé að tryggja að kærði gangi ekki laus á meðan að mál hans er til meðferðar fyrir dómi. Er skilyrðum fyrir áframhaldandi gæsluvarðhaldi kærða því fullnægt og verður krafa lögreglustjórans tekin til greina svo sem í úrskurðarorði greinir en ekki þykir ástæða til að marka gæsluvarðhaldinu skemmri tíma en krafist er. 

                Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 4. desember 2015 kl. 16:00.