Hæstiréttur íslands

Mál nr. 331/2005


Lykilorð

  • Niðurfelling máls
  • Málskostnaður
  • Gjafsókn


Fimmtudaginn 19

 

Fimmtudaginn 19. janúar 2006.

Nr. 331/2005.

M

(Valborg Þ. Snævarr hrl.)

gegn

K

(Dögg Pálsdóttir hrl.)

 

Niðurfelling máls. Málskostnaður. Gjafsókn.

Mál M gegn K var fellt niður að ósk aðila, sem jafnframt voru sammála um að leggja það í dóm um málskostnað. Talið var rétt að málskostnaður fyrir Hæstarétti félli niður og að gjafsóknarkostnaður aðilanna fyrir réttinum greiddist úr ríkissjóði.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Guðrún Erlendsdóttir og Markús Sigurbjörnsson.

Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 20. júlí 2005. Með bréfi 12. janúar 2006 lýstu aðilarnir því yfir að samkomulag hefði tekist um að fella málið niður fyrir Hæstarétti að öðru leyti en því að það gengi til dóms um málskostnað. Krefjast þau hvort fyrir sitt leyti málskostnaðar fyrir Hæstarétti úr hendi hins án tillits til gjafsóknar, sem þeim hefur báðum verið veitt hér fyrir dómi.

Með vísan til c. liðar 1. mgr. 105. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, sbr. 166. gr. sömu laga eins og henni var breytt með 20. gr. laga nr. 38/1994, er málið fellt niður fyrir Hæstarétti.

Rétt er að málskostnaður fyrir Hæstarétti falli niður.

Gjafsóknarkostnaður aðilanna fyrir Hæstarétti greiðist úr ríkissjóði eins og nánar greinir í dómsorði.

Dómsorð:

Mál þetta er fellt niður.

Málskostnaður fyrir Hæstarétti fellur niður.

Allur gjafsóknarkostnaður áfrýjanda, M, og stefndu, K, fyrir Hæstarétti greiðist úr ríkissjóði, þar með talin málflutningsþóknun lögmanns áfrýjanda, 300.000 krónur, og málflutningsþóknun lögmanns stefndu, 200.000 krónur.