Hæstiréttur íslands
Mál nr. 84/2004
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Miðvikudaginn 25. febrúar 2004. |
|
Nr. 84/2004. |
Ríkislögreglustjóri (Jón H. Snorrason saksóknari) gegn X (Björgvin Jónsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
X var gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Ingibjörg Benediktsdóttir og Ólafur Börkur Þorvaldsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 21. febrúar 2004, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 24. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 21. febrúar 2004, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 3. mars 2004 kl. 16.00. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími. Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 21. febrúar 2004.
Ríkislögreglustjóri hefur krafist þess að X verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 3. mars 2004 klukkan 16:00.
[...]
Álit dómsins:
Telja verður að rökstuddur grunur sé fyrir því að kærði, X, hafi átt hlut að brotum gegn 124. gr., 173. gr. a, 211. gr. og eða 221. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og að hætta geti verið á því að hann torveldi rannsókn málsins, sem enn er ólokið, svo sem með því að skjóta undan gögnum og hafa áhrif á vitni og eða samseka, fái hann að fara frjáls ferða sinna. Ber því samkvæmt a. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála að taka kröfu ríkislögreglustjóra til greina og ákveða að kærði sæti gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 3. mars n.k. klukkan 16:00.
Pétur Guðgeirsson héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð
Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 3. mars 2004 klukkan 16:00.