Hæstiréttur íslands
Mál nr. 366/1999
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Mánudaginn 20. september 1999. |
|
Nr. 366/1999. |
Lögreglustjórinn í Reykjavík (Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Helgi Jóhannesson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður l. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðs 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Arnljótur Björnsson og Gunnlaugur Claessen.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 13. september 1999, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 16. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 11. september 1999, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 10. nóvember nk. kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar úrskurðar héraðsdóms.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 11. september 1999.
Árið 1999, laugardaginn 11. september, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjatorg af Guðjóni St. Marteinssyni héraðsdómara, kveðinn upp úrskurður þessi.
Lögreglustjórinn í Reykjavík krefst þess að X, kt. [...], verði á grundvelli a liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 gert að sæta gæsluvarðhaldi til miðvikudagsins 10. nóvember n.k., kl. 16.00.
[...]
Niðurstaða.
Verið er að rannsaka meint brot gegn fíkniefnalöggjöfinni og varðaði háttsemi kærða ef sönnuð væri við 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þar sem hámarksrefsing er 10 ára fangelsi. Rökstuddur grunur er fram kominn um aðild X að málinu. Rannsókn máls þessa er á frumstigi og ráða má af rannsóknargögnum að rannsóknin verður bæði flókin og tímafrek og teygir anga sína út fyrir landsteinana. Eftir er að yfirheyra fjölmarga grunaða og vitni og því nauðsynlegt í þágu rannsóknar málsins sbr. a lið 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 að kærði sæti gæsluvarðhaldi eins og lýst er í úrskurðarorði.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, sæti gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 10. nóvember 1999 kl. 16.00.