Hæstiréttur íslands

Mál nr. 592/2012


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
  • Gæsluvarðhald. B. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


                                              

Þriðjudaginn 11. september 2012.

Nr. 592/2012.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum

(Alda Hrönn Jóhannsdóttir fulltrúi)

gegn

X

(Stefán Karl Kristjánsson hdl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. B. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. og b. liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, og einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stæði var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Eiríkur Tómasson og Greta Baldursdóttir.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 7. september 2012 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 10. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 7. september 2012, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 14. september 2012 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími og að honum verði ekki gert að sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur.  

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 7. september 2012.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur í dag krafist þess að X, fæddur [...], verði með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness gert að sæta gæsluvarðhaldi og einangrun allt til föstudagsins 14. september 2012 kl. 16:00.

Kærði krefst þess aðallega að kröfu lögreglustjórans verði hafnað en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími en krafist er og að kærða verði ekki gert að sæta einangrun.

Í greinargerð Lögreglustjórans á Suðurnesjum segir að kærði hafi upphaflega komið hingað til lands 17. október 2011 og hafi við komu sína til landsins verið handtekinn vegna gruns um að hann hefði framvísað við lögreglu, í blekkingarskyni, vegabréfi í eigu annars manns. Hafi ákærði síðar verið fundinn sekur um þá háttsemi í Héraðsdómi Reykjaness, mál S-[...], og dæmdur til 30 daga fangelsisrefsingar vegna brots gegn 157. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Skömmu eftir að kærði hafi komið til landsins hafi hann óskað eftir hæli hér á landi og sé hælisumsókn hans til meðferðar hjá Útlendingastofnun. Er kærði hafi verið stöðvaður við komuna til landsins hafi einu fjármunirnir sem hann hafi verið með meðferðis verið 230 kanadískir dollarar.

Á síðast liðnum vikum hafi lögreglu borist upplýsingar þess efnis að kærði berist mikið á og hann hafi á dvalarstað sínum talsvert magn af dýrum raftækjum, m.a. iPhone farsíma, Samsung farsíma, iPad, BlueRay kvikmyndaspilara, Apple tv tölvuflakkara og nýlega fartölvu. Þá hafi lögreglu einnig borist upplýsingar um að kærði hafi til umráða nýlegt Trek fjallhjól auk þess sem að hann klæðist dýrum merkjavörum, gangi m.a. um með Ray Ban sólgleraugu og í Converse skóm. Gróflega áætlað hlaupi verðmæti þessara muna á hundruðum þúsunda. Í þessu samhengi beri að geta þess að hælisleitendur sem séu á framfærslu félagsþjónustunnar í Reykjanesbæ fái sér til framfærslu vikulega 2.700 krónur í peningum og kort, með 8.000 kr. inneign, sem einungis sé hægt að nota til að kaupa matvörur í verslunum Bónus. Samkvæmt upplýsingum frá félagsþjónustunni noti kærði matarkortið lítið. Af þessu sögðu, einkum í ljósi þess að þegar kærði hafi komið hingað til lands fyrir tæpu ári hafði hann í fórum sínum takmarkaða fjármuni og hann virðist ekki nota matarkort sitt nema að litlu leyti, telji lögregla víst að kærði afli sér fjármuna með öðrum hætti en með framfærslu frá félagsþjónustu Reykjanesbæjar.

Á grundvelli þessara upplýsinga hafi lögregla óskað eftir því við Héraðsdóm Reykjaness að húsleit yrði heimiluð á heimili kærða. Þann 5. september s.l. hafi Héraðsdómur Reykjaness heimilað að húsleit yrði framkvæmd á heimili kærða, sbr. úrskurð Héraðsdóms Reykjaness í máli R-[...]. Þann 6. september s.l. hafi lögregla framkvæmt húsleit á heimili kærða að honum viðstöddum. Í kjölfar húsleitarinnar hafi lögregla lagt hald á töluvert magn muna er fundust á heimili kærða. Telji lögregla að þessir munir kunni að vera þýfi eða afrakstur annarrar ólögmætrar háttsemi.

Að svo stöddu hafi lögreglu ekki tekist að fara í gegnum alla þá muni er fundust við húsleitina en meðal þess sem lögregla hafi lagt hald á séu fjölda mörg skópör, sjö ferðatöskur, þar af sumar ónotaðar að því er virðist, 10 sólgleraugu, sjö handtöskur, 20 jakkar og aðrar yfirhafnir, töluvert af beltum, hönskum og húfum, auk fjölmargra buxna og peysa. Hafi m.a. verið um að ræða töluvert af svokölluðum „dýrum merkjafatnaði“, þ.á m. fatnaður af gerðinni Gucci, Disel, RayBan og Next. Lögregla hafi einnig lagt hald á átta farsíma, m.a. af gerðinni Samsung Galaxy Nexus, er lögregla hafi fengið staðfest að hafi verið tilkynntur stolinn (lögreglumál 007-2012-39485), Blackberry, ZTE farsími sem samkvæmt upplýsingum lögreglu hafi verið stolið í lok júlí, tvo iPhone síma og Samsung SII, áætlað verðmæti þessara síma er í kringum 400.000 krónur. Þá hafi verið lagt hald á HP fartölvu ásamt hleðslutæki og hátölurum, iPad tölvu, minniskort fyrir gsm síma, Olympus stafræna myndavél, skartgripi, t.d. eyrnalokka, hringa og armbönd, þrjú armbandsúr, iPod tónlistarspilara, Sony útvarp, 3g tölvupung, tvo usb minnislykla og kerru fyrir golfsett.

Þar að auki hafi lögregla lagt hald á pappíra sem á hafði verið rituð símanúmer og nöfn aðila auk þess sem að á suma pappírana virðast hafa verið rituð kreditkortanúmer auk gildistíma og svokallaðs CV öryggisnúmers sem sé að finna á kreditkortum. Við stutta skoðun á þeim farsíma er kærði hafði á sér er lögregla framkvæmdi húsleitina hafi lögregla fundið sms skilaboð sem hún telur að kunni að benda til þess að kærði kunni að vera viðriðinn greiðslukortasvik þar sem að kreditkort hafi verið til að svíkja út fjármuni. Þá hafi lögregla einnig lagt hald á kvittanir sem virðast benda til þess að fjármunir hafi verið sendir erlendis, annað hvort af kærða sjálfum eða af öðrum aðilum en eftir fyrirmælum frá kærða.

Sökum þess hve mikið af munum hafi verið haldlagðir af lögreglu hafi lögregla ekki komist yfir að flokka fatnað, skartgripi og raftæki með nákvæmum hætti, en ljóst sé að um töluvert magn af munum sé að ræða. Lögregla vinni að því að rannsaka símtæki og tölvur sem lagt hafi verið hald á. Þá vinni lögregla einnig að því að rannsaka hvort að fleiri munir en áðurnefndur farsími af gerðinni Samsung Galxy Nexus kunni að hafa verið tilkynntir sem stolnir.

Er kærði hafi verið spurður um það hvernig hinir haldlögðu munir hafi komist í hans vörslur, hafi hann greint frá því að hann hafi meðal annars fengið þá hjá Rauðakrossinum eða að vinir hans hafi skilið þá eftir á heimili hans. Lögregla telji þær skýringar sem kærði hafi greint frá varðandi það hvernig munirnir hafi komist í vörslur hans séu með öllu ótrúverðugar.

Vísað sé nánar til meðfylgjandi gagna málsins.

Rannsókn þessa máls sé á algjöru frumstigi. Meðal þeirra verkefna er bíði lögreglu sé að flokka þá muni sem hald hafi verið lagt á, leita eftir upplýsingum frá greiðslukortafyrirtækjum varðandi möguleg greiðslukortasvik, rannsaka innihald þeirra farsíma og tölva sem hald hafi verið lagt á, meðal annars með tilliti til þess hvort að um sé að ræða stolna muni eða hvort að innihald þeirra geti varpað ljósi á það hvernig hinir haldlögðu munir hafi komist í vörslur kærða. Þá vinni lögregla einnig að því að rannsaka hvort að kærði kunni að eiga sér vitorðsmenn hér á landi eða erlendis. En það sé mat lögreglu að útilokað sé að kærði hafi aflað sér þeirra muna sem þegar hafi verið lagt hald á með löglegum hætti. Vísast í þessu skyni einkum til þess að kærði virðist ekki hafa mikla fjármuni sér til umráða líkt og greint hafi verið frá að framan. Þá telji lögregla einnig að kærði kunni að torvelda rannsókn málsins og hafa áhrif á samseka gangi hann laus á meðan rannsókn málsins sé á viðkvæmu stigi. Að þessu sögðu telji lögregla að skilyrðum a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé fullnægt í málinu og því beri að úrskurða kærða í gæsluvarðhald.

Þá bendir lögregla á að kærði sé erlendur ríkisborgari sem virðist ekki hafa önnur tengsl við landið en þau að hann hafi sótt hér um hæli og bíði afgreiðslu umsóknar sinnar hjá Útlendingastofnun. Af þessum sökum telji lögregla hættu á að kærði muni reyna að komast úr landi eða leynast ellegar koma sér undan með öðrum hætti undan málsókn eða fullnustu refsingar gangi hann laus meðan mál hans er til rannsóknar hjá lögreglu. Að þessu sögðu telji lögregla að skilyrðum b. liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 sé einnig fullnægt í málinu og því beri að úrskurða kærða í gæsluvarðhald.

Loks telji lögregla að miðað við það magn muna er haldlagt var á heimili kærða bendi allt til þess að munirnir hafi ekki komist í vörslur kærða með einni athöfn heldur hafi kærði þurft að nálgast munina yfir langan tíma í fjölda skipta. Það sé því mat lögreglu að kærði sé vanaafbrotamaður og því megi ætla að hann muni halda áfram brotum meðan máli hans er ekki lokið. Að þessu sögðu telji lögregla að skilyrðum c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 sé einnig fullnægt í málinu og því beri að úrskurða kærða í gæsluvarðhald.

Þess sé krafist að kærða verði gert að sæta einangrun í gæsluvarðhaldi samkvæmt b. lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Með vísan til alls framangreinds, rannsóknarhagsmuna, a., b. og c. liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og 244. gr., 247. gr. og 254. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, telji lögreglustjóri brýna rannsóknarhagsmuni standa til þess að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi og einangrun allt til föstudagsins 14. september 2012 kl. 16.00.

Með vísan til alls framanritaðs, svo og gagna málsins, er fallist á það með lögreglustjóra að kærði sé undir rökstuddum grun um að hafa framið brot sem fangelsisrefsing liggur við. Rannsókn málsins er ekki lokið. Gangi kærði laus má ætla að hann muni torvelda rannsókn málsins með því að skjóta undan munum eða hafa áhrif á samseka eða vitni. Þá má ætla að kærði, sem er nígerískur ríkisborgari, muni reyna að komast úr landi, leynast eða koma sér undan málssókn fari hann frjáls ferða sinna. Samkvæmt þessu telst fullnægt skilyrðum a. og b. liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála til þess að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi og er krafa lögreglustjóra því tekin til greina eins og hún er sett fram og nánar greinir í úrskurðarorði. Jafnframt er fallist á að kærði sæti einangrun á meðan á gæsluvarðhaldsvist hans stendur. sbr. b. lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Ekki þykir eins og á stendur að sýnt hafi verið fram á að uppfyllt séu skilyrði c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Jón Höskuldsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 14. september 2012 kl. 16:00.

Kærði sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.