Hæstiréttur íslands
Mál nr. 469/2017
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. B. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Reifun
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Viðar Már Matthíasson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 19. júlí 2017, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 19. júlí 2017, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi á meðan áfrýjunarfrestur varir og mál hans sætir meðferð fyrir Hæstarétti, komi til áfrýjunar málsins, en þó eigi lengur en til miðvikudagsins 11. október 2017 klukkan 16. Kæruheimild er í b. lið 2. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, til vara að beitt verði vægari úrræðum en að því frágengnu að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness miðvikudaginn 19. júlí 2017
Héraðssaksóknari hefur krafist þess fyrir dóminum í dag að X, fæddur [...], skuli sæta áfram gæsluvarðhaldi, á meðan áfrýjunarfresti stendur í máli hans og eftir atvikum, á meðan mál hans er til meðferðar fyrir Hæstarétti Íslands, þó eigi lengur en til miðvikudagsins 11. október nk. kl. 16.00.
Dómfelldi mótmælir kröfu lögreglustjóra og krefst þess að henni verði hrundið.
I
Í greinargerð héraðssaksóknara segir meðal annars að höfðað hafi verið sakamál á hendur ákærða með ákæru 12. júní 2017 fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, framið miðvikudaginn 22. mars 2017. Ákærða sé í málinu gefið að sök að hafa staðið að innflutningi á samtals 1.950 ml af kókaíni sem verið hafi af 69% styrkleika og ætlað til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Fíkniefnin hafi ákærði flutt til Íslands sem farþegi með flugi [...] frá [...] til Keflavíkurflugvallar og hafi tollverðir fundið þau í fjórum brúsum undir snyrtivörur í farangri ákærða við komu hans til landsins. Brot ákærða séu í ákæru talin varða við 173. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og þess krafist í málinu að hann verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá sé gerð krafa um að fíkniefnin verði gerð upptæk.
Við þingfestingu málsins 26. júní sl. hafi ákærði neitað sök. Aðalmeðferð málsins hafi farið fram 12. júlí sl. og málið verið tekið til dóms þann dag. Í dag hafi verið kveðinn upp sakfellingardómur yfir ákærða.
Héraðssaksóknari vísar til þess að ákærði hafi sætt gæsluvarðhaldi vegna málsins frá 23. mars sl., fyrst á grundvelli a- og b-liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sbr. úrskurði Héraðsdóms Reykjaness í málum nr. [...] og [...], en frá 4. maí sl. á grundvelli b-liðar, sbr. úrskurði í málum nr. [...],[...],[...] og [...].
Ákærði hafi nú verið sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og dæmdur til fangelsisrefsingar. Ákærði sé erlendur ríkisborgari sem engin tengsl hafi við landið og hafi hann komið hingað til lands í þeim eina tilgangi að flytja inn fíkniefni, háttsemi sem hann hafi nú verið sakfelldur fyrir. Með hliðsjón af framangreindu telji ákæruvaldið að veruleg hætta sé á að hann reyni að koma sér undan frekari meðferð málsins og fullnustu refsingar gangi hann laus. Því telji ákæruvaldið lagaskilyrði uppfyllt fyrir því að ákærði sæti gæsluvarðhaldi þar til endanlegur dómur gengur í máli hans.
II
Dómfelldi var fyrr í dag dæmdur til þriggja ára og sex mánaða fangelsisrefsingar fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Var því lýst yfir af hálfu dómfellda að hann tæki sér lögbundinn fjögurra vikna frest til ákvörðunar um áfrýjun.
Dómfelldi er erlendur ríkisborgari sem hefur engin tengsl við Ísland svo vitað sé. Á það verður að fallast með héraðssaksóknara að ætla megi að dómfelldi muni reyna að komast úr landi, leynast eða koma sér með öðrum hætti undan málsókn eða fullnustu fari hann frjáls ferða sinna. Skilyrðum b-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála telst því fullnægt í málinu. Samkvæmt því og með vísan til 3. mgr. 97. gr. sömu laga verður dómfellda gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi og er krafa héraðssaksóknara því tekin til greina eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði, en ekki verður talið að vægari úrræði komi að gagni eins og hér háttar til.
Úrskurð þennan kveður upp Kristinn Halldórsson héraðsdómari.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð:
Dómfelldi, X, fæddur [...], skal sæta áfram gæsluvarðhaldi meðan á áfrýjunarfresti í sakamálinu nr. [...] stendur, svo og á meðan málið er til meðferðar fyrir Hæstarétti Íslands, komi til áfrýjunar málsins, uns dómur er þar upp kveðinn, þó eigi lengur en til miðvikudagsins 11. október nk. kl. 16.00.