Hæstiréttur íslands

Mál nr. 270/2007


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Þriðjudaginn 15

 

Þriðjudaginn 15. maí 2007.

Nr. 270/2007.

Ákæruvaldið

(Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari)

gegn

X

(Þorsteinn Einarsson hrl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi áfram sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 11. maí 2007, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 14. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 11. maí 2007, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 11. júní 2007 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili kærði úrskurðinn fyrir sitt leyti 14. maí 2007 og krefst þess aðallega að varnaraðili sæti áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans en þó ekki lengur en til föstudagsins 6. júlí 2007 kl. 16. Til vara krefst sóknaraðili að hinn kærði úrskurður verði staðfestur.

Hinn kærði úrskurður var kveðinn upp 11. maí 2007 klukkan 15.30, að viðstöddum fulltrúa sóknaraðila. Gögn málsins bera með sér að kæra sóknaraðila barst Héraðsdómi Reykjavíkur 14. maí 2007 klukkan 17.32. Kærufrestur samkvæmt 2. mgr. 144. gr. laga nr. 19/1991 var þá liðinn og kemur aðalkrafa sóknaraðila því ekki til álita fyrir Hæstarétti.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

                  

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 11. maí 2007.

Ríkissaksóknari hefur krafist þess að X, [kt. og heimilisfang], sæti áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en til föstudagsins 6. júlí nk. kl. 16.00.

Í greinargerð ríkissaksóknara kemur fram að með ákæru útgefinni í dag hafi ríkissaksóknari höfðað opinbert mál á hendur X og meðákærða A fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot framið í ágóðaskyni. Sé ákærða gefið að sök að hafa seinni hluta árs 2006, ásamt óþekktum samverkamanni, flutt hingað til lands 3.778,50 g af kókaíni, ætlað til söludreifingar, falið í bifreið af gerðinni Mercedes Bens með framleiðslunúmerið WDB9023221P661304 sem hafi komið til landsins með flutningaskipinu Helgafelli frá Cuxhaven í Þýskalandi, hinn 15. nóvember 2006. Ákærði hafi annast tollafgreiðslu bifreiðarinnar og tekið hana síðan í sínar vörslur þann 7. febrúar 2007 í þeirri trú að í henni væru falin framangreind fíkniefni, en lögregla hafði þá lagt hald á efnið og komið fyrir gerviefni í þeirra stað. Ákærði, ásamt meðákærða A, hafi fjarlægt efnið úr bifreiðinni og  meðákærði tekið síðan við vörslum þess. Sakargiftir á hendur ákærða styðjist við þau gögn sem lögð hafi verið fram í málinu. 

Ákærði sé því undir sterkum grun um að hafa framið brot sem geti varðað hann allt að 12 ára fangelsi, sbr. 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 64/1974, sbr. lög nr. 32/2001, og telji ákæruvaldið því að skilyrði séu til áframhaldandi gæsluvarðhalds á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991, um meðferð opinberra mála.

Ákærði hafi sætt gæsluvarðhaldi í þágu málsins frá 10. febrúar sl., fyrst á grundvelli rannsóknarhagsmuna en síðan á grundvelli almannahagsmuna, sbr. úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í málum R-106/2007, 144/2007 og 178/2007 og dóma Hæstaréttar í málum nr. 86/2007, 125/2007 og 162/2007. Hæstiréttur hafi tekið undir það álit ákæruvalds að fyrir liggi sterkur grunur um að ákærði hafi framið brot sem geti varðað hann allt að 12 ára fangelsi, sbr. fyrrnefndan dóm Hæstaréttar í máli ákærða nr. 162/2007.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og 2. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála sé þess krafist að framangreind krafa nái fram að ganga.

 

Í greinargerð ríkissaksóknara kemur fram að með ákæru útgefinni í dag hafi ríkissaksóknari höfðað opinbert mál á hendur ákærða fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot framið í ágóðaskyni, en um sé að ræða innflutning fíkniefna, ætluðum til söludreifingar. Ákærði sé því undir sterkum grun um að hafa framið brot sem geti varðað hann allt að 12 ára fangelsi, sbr. 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 64/1974, sbr. lög nr. 32/2001.

Verjandi ákærða telur óhæfilegan drátt hafa orðið á rannsókn máls þessa og sé nú fyrst gefin út ákæra, beri því að hafna kröfunni. Fram kom í máli fulltrúa ríkissaksóknara að málið hafi borist embættinu 2. maí sl.

Þegar litið er til þess sem rakið hefur verið, alvarleika brots þess sem ákærði er grunaður um svo og magns og styrkleika hins hættulega fíkniefnis, þykja skilyrði til þess að fallast á kröfu ríkissaksóknara um gæsluvarðhald með tilliti til almannahagsmuna sbr. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991. Verður á kröfuna fallist eins og í úrskurðarorði greinir.

Sigríður Hjaltested settur héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Ú r s k u r ð a r o r ð:

Ákærði, X, sæti áfram gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 11. júní nk. kl. 16.00.