Hæstiréttur íslands
Mál nr. 345/2000
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Mánudaginn 11. september 2000. |
|
Nr. 345/2000. |
Lögreglustjórinn í Reykjavík(Egill Stephensen saksóknari) gegn X(Brynjar Níelsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur, en tími varðhaldsins lengdur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen og Markús Sigurbjörnsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 5. september 2000, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 7. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 5. september 2000, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 26. september nk. kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili kærði úrskurðinn fyrir sitt leyti 7. september 2000. Hann krefst þess að gæsluvarðhaldi yfir varnaraðila verði markaður tími allt til fimmtudagsins 5. október 2000 kl. 16.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður fallist á með héraðsdómara að fullnægt sé skilyrðum a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 til gæsluvarðhalds yfir varnaraðila. Í ljósi umfangs málsins eru ekki efni til annars en að verða við kröfu sóknaraðila um lengd gæsluvarðhaldsins, sem verður því markaður tími eins og í dómsorði greinir.
Dómsorð:
Varnaraðili, X, sæti gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 5. október 2000 kl. 16.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 5. september 2000.
Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess með vísan til a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 að X, [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 5. október nk., kl. 16:00.
[...]
Verið er að rannsaka ætluð brot kærða gegn fíkniefnalöggjöfinni og ef þau sannast gætu þau varðað hann fangelsisrefsingu samkvæmt 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Meðal rannsóknargagna eru útskriftir af umfangsmiklum símhlerunum sem benda sterklega til þess að kærði tengist fíkniefnainnflutningi með refsiverðum hætti. Af rannsóknargögnum er ljóst að rannsókn málsins kann að reynast viðamikil og tímafrek en hún er enn á frumstigi. Fallist er á með lögreglu að hætta sé á að kærði gæti torveldað rannsókn málsins ef hann endurheimti frelsi sitt. Með vísan til alls ofanritaðs þykir rétt, sbr. a-lið 1. mgr. 103. gr. laga 19/1991, að verða við kröfu lögreglustjórans í Reykjavík um að kærði sæti gæsluvarðhaldi. Er því krafa lögreglunnar tekin til greina að öðru leyti en því að gæsluvarðhaldinu er markaður skemmri tími en krafa er gerð um og er kærða gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 26. september nk. kl. 16.00 eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
Sigurður T. Magnússon héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 26. september nk. kl. 16.00.