Hæstiréttur íslands
Mál nr. 358/2007
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Mánudaginn 9. júlí 2007. |
|
Nr. 358/2007. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Stefán Eiríksson lögreglustjóri) gegn X(Sveinn Andri Sveinsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. a. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Hrafn Bragason, Garðar Gíslason og Ingibjörg Benediktsdóttir.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 5. júlí 2007, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 6. júlí sama ár. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 5. júlí 2007, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 9. júlí 2007 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili kærði úrskurðinn fyrir sitt leyti 6. júlí 2007 og krefst þess að varnaraðila verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til 30. ágúst 2007 kl. 16.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 5. júlí 2007.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi, allt til fimmtudagsins 30. ágúst nk. kl. 16:00.
Í greinargerð lögreglustjóra kemur fram að tilkynning barst frá fjarskiptamiðstöð lögreglunnar kl. 19:07 í gærkvöldi um að verið væri að ráðast á mann í húsnæði bifhjólaklúbbsins Fáfnis að Hverfisgötu 61 í Reykjavík. Lögreglumenn hafi komið þar að kærða ásamt 9 öðrum mönnum. Hafi þeir allir brugðist illa við afskiptum lögreglu og hafi í kjölfarið verið handteknir og færðir á lögreglustöð til yfirheyrslu. Stuttu seinna hafi Y, kt. [...], gefið sig á tal við lögreglumenn og hafi hann sagst hafa orðið fyrir árás af hálfu kærða og A, kt. [...]. Í viðræðum lögreglumanna við Y hafi hann sagst hafa komið í húsnæði bifhjólaklúbbsins í þeim tilgangi að skila fatnaði þar sem hann hafi ætlað að hætta sem meðlimur í Fáfni. Stuttu seinna hafi svo A og ,,X” lamið sig og sparkað ítrekað í sig og m.a. lamið sig með skiptilykli og röri. Y hafi sagt árásina hafa staðið yfir þegar lögreglan kom á vettvang. Vísað er nánar um þetta til framburðaskýrslu í gögnum málsins sem tekin hafi verið af Y í gærkvöldi. Lýsing á áverkum Y sé að finna í bráðabirgðalæknisvottorði sem fylgi gögnum málsins.
Kærði liggi undir rökstuddum grun um að hafa ráðist á Y, kt. [...], og veitt honum áverka með vopni. Kærði hafi neitað sök við yfirheyrslur hjá lögreglu. Brot það sem kærði sé grunaður um að hafa framið varði við 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga sem fjalli um meiriháttar líkamsárás og hafi mjög hættulegri aðferð verið beitt við árásina. Með tilliti til hagsmuna almennings þyki þannig nauðsynlegt að kærði sæti gæsluvarðhaldi á meðan mál hans sé til meðferðar en telja verði að ef sakborningur, sem orðið hafi uppvís að jafn alvarlegu broti og kærði, gangi laus áður en máli ljúki með dómi þá valdi það hneykslun í samfélaginu og særi réttarvitund almennings. Þrátt fyrir neitun kærða, telji lögreglustjóri brotið vera þess eðlis að gæsluvarðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Þá sé þörf á að ræða frekar við þá aðila sem staddir hafi verið á árásarvettvangi, sem og unnustu brotaþola, C, en hún muni hafa heyrt það sem fram fór er árásin stóð yfir.
Sakarefni málsins séu talin varða við 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en brot gegn ákvæðinu geti varðað fangelsi allt að 16 árum ef sök sannist. Um heimild til gæsluvarðhalds sé vísað til a-liðar 1. mgr. og 2. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991.
Samkvæmt því sem rakið er í greinargerð lögreglustjóra liggur fyrri rökstuddur grunur um að kærði hafi gerst sekur um brot sem getur varðað fangelsisrefsingu samkvæmt 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Rannsókn málsins stendur yfir og verður að telja að rannsóknarhagsmunir krefjist þess að kærði sæti gæsluvarðhaldi til að hann geti ekki torveldað rannsókn málsins. Teljast skilyrði a- liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála uppfyllt og verður krafa lögreglustjórans í Reykjavík tekin til greina með þeirri breytingu sem kveðið er á um í úrskurðarorði.
Ásgeir Magnússon héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Ú r s k u r ð a r o r ð:
Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 9. júlí nk. kl. 16.00.