Hæstiréttur íslands
Mál nr. 508/2007
Lykilorð
- Kærumál
- Farbann
|
|
Föstudaginn 5. október 2007. |
|
Nr. 508/2007. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu(Jón H. B. Snorrason, saksóknari) gegn X (Kristján Stefánsson hrl.) |
Kærumál. Farbann.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta farbanni samkvæmt b. lið 1. mgr. 103. gr. og 110. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 4. október 2007, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 4. október 2007, þar sem varnaraðila var bönnuð för frá Íslandi til fimmtudagsins 1. nóvember 2007, kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Svo sem fram kemur í hinum kærða úrskurði stendur nú yfir hjá sóknaraðila rannsókn á því hvort varnaraðili hafi í félagi við nokkra fleiri menn gerst að undanförnu sekur um þjófnaði úr ýmsum verslunum á höfuðborgarsvæðinu. Verður fallist á með sóknaraðila að rökstuddur grunur sé um að svo kunni að vera. Við slíkum brotum liggur fangelsisrefsing samkvæmt 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Verður fallist á niðurstöðu hins kærða úrskurðar um að skilyrðum b. liðar 1. mgr. 103. gr., sbr. 110. gr. laga nr. 19/1991 sé fullnægt fyrir farbanni varnaraðila og verður hinn kærði úrskurður því staðfestur.
Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 4. október 2007.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að kærða, að kærða, X, litháískum ríkisborgara, [kt.], verði bönnuð för frá Íslandi á meðan lögregla rannsakar þýfi sem fannst á dvalarstað kærða í gær, þó eigi lengur en til fimmtudagsins 1. nóvember. 2007, kl. 16:00.
Gerð var húsleit á dvalarstað kærða að Y í gær. Fannst talsvert af munum sem lögregla segir að sé þýfi og telur sig geta tengt við tiltekna þjófnaði sem tilkynntir hafi verið í verslunum á höfuðborgarsvæðinu síðustu mánuði.
Kærði hefur dvalið hér á landi síðan 8. ágúst sl. Kærði hefur takmörkuð tengsl við landið, bæði fjölskyldu og önnur. Hann er undir rökstuddum grun um aðild að auðgunarbrotum. Er nauðsynlegt er að tryggja nærveru hans hér á landi til að hann geti ekki komið sér undan frekari rannsókn málsins, saksókn og málsmeðferð fyrir dómi. Með vísan til b-liðar 1. mgr. 103. gr. og 110. gr. laga nr. 19/1991 verður honum gert að sæta farbanni svo sem í úrskurðarorði greinir.
Jón Finnbjörnsson héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Ú r s k u r ð a r o r ð:
Kærða, X, [kt.], er bönnuð för frá Íslandi til fimmtudagsins 1. nóvember 2007, kl. 16:00.