Hæstiréttur íslands

Mál nr. 90/2012


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
  • Frávísun frá Hæstarétti


                                     

Föstudaginn 10. febrúar 2012.

Nr. 90/2012.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H.B. Snorrason saksóknari)

gegn

X

(Bjarni Hauksson hrl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. A-liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Frávísun máls frá Hæstarétti.

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert skylt að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, og einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stæði. Eftir að málið barst Hæstarétti var rétturinn upplýstur um að rannsóknarhagsmunir krefðust þess ekki lengur að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi og væri hann frjáls ferða sinna. Var hinum kærða úrskurði því vísað frá Hæstarétti, sbr. 4. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Þorgeir Örlygsson og Helgi I. Jónsson settur hæstaréttardómari.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 8. febrúar 2012 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 8. febrúar 2012, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 15. febrúar 2012 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Eftir að málið barst Hæstarétti sendi sóknaraðili réttinum bréf 10. febrúar 2012 þar sem upplýst var að rannsóknarhagsmunir krefðust þess ekki lengur að varnaraðili sætti gæsluvarðhaldi. Væri hann því frjáls ferða sinna. Samkvæmt því er ljóst að það ástand, sem leitt hefur af hinum kærða úrskurði, er þegar um garð gengið. Skal málinu þá vísað frá Hæstarétti, sbr. 4. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008.

Dómsorð:

Máli þessu er vísað frá Hæstarétti.