Hæstiréttur íslands
Mál nr. 292/2004
Lykilorð
- Málskostnaðartrygging
- Frávísun frá Hæstarétti
|
|
Fimmtudaginn 21. október 2004. |
|
Nr. 292/2004. |
Kristinn Bjarnason(Þorbjörg I. Jónsdóttir hrl.) gegn Superbyg Kal Nun A/S, útibúi á Íslandi (Atli Gíslason hrl.) |
Málskostnaðartrygging. Frávísun máls frá Hæstarétti.
Máli K gegn S var vísað frá Hæstarétti þar sem málskostnaðartrygging var ekki afhent innan frests sem K hafði til að afhenda trygginguna.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Ingibjörg Benediktsdóttir og Ólafur Börkur Þorvaldsson.
Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 12. júlí 2004. Hann krefst sýknu af kröfu stefnda og málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti.
Stefndi lagði fram í Hæstarétti greinargerð 22. september 2004, þar sem hann krafðist staðfestingar héraðsdóms og málskostnaðar hér fyrir dómi.
Stefndi krafðist þess með bréfi 24. ágúst 2004 með vísan til b. liðar 1. mgr. 133. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála að áfrýjanda yrði gert að setja tryggingu fyrir greiðslu málskostnaðar fyrir Hæstarétti. Fallist var á þá kröfu með ákvörðun réttarins 30. september 2004. Var fjárhæð málskostnaðartryggingar ákveðin 250.000 krónur og áfrýjanda veittur tveggja vikna frestur til að afhenda skilríki fyrir henni. Slík skilríki hafa ekki verið afhent í samræmi við ákvörðun réttarins.
Af þeim ástæðum, sem að framan greinir, og með skírskotun til 3. mgr. 133. gr. laga nr. 91/1991, sbr. 166. gr. sömu laga, svo sem henni var breytt með 20. gr. laga nr. 38/1994, verður málinu vísað sjálfkrafa frá Hæstarétti.
Áfrýjandi verður dæmdur til að greiða stefnda málskostnað fyrir Hæstarétti eins og í dómsorði greinir.
Dómsorð:
Máli þessu er vísað frá Hæstarétti.
Áfrýjandi, Kristinn Bjarnason, greiði stefnda, Superbyg Kal Nun A/S, útibúi á Íslandi, 150.000 krónur í málskostnað fyrir Hæstarétti.