Hæstiréttur íslands

Mál nr. 602/2017

Héraðssaksóknari (Ólafur Hallgrímsson saksóknarfulltrúi)
gegn
X (Bragi Björnsson hdl.)

Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. B. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008

Reifun

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli b. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson, Benedikt Bogason og Karl Axelsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 21. september 2017, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 22. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 21. september 2017, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 19. október 2017 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, til vara að honum verði gert að sæta farbanni, en að því frágengnu að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

            Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur fimmtudaginn 21. september 2017

                Héraðssaksóknari hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, nígerískum ríkisborgara, fæddum [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi meðan mál hans er til meðferðar fyrir dómstólum, þó eigi lengur en til fimmtudagsins 19. október 2017.

Fallist dómurinn ekki á kröfu embættisins um gæsluvarðhald er þess krafist að dómurinn banni sakborningi að fara af landinu og að honum verði í úrskurðarorði gert skylt að tilkynna Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu um verustað sinn og gefa sig fram við hana á lögreglustöð daglega. Þá skuli sakborningur afhenda lögreglu vegabréf sitt til varðveislu.

                Í greinargerð saksóknarfulltrúa kemur fram að Héraðssaksóknari hafi gefið út ákæru þann 20. september sl. á hendur m.a. umræddum X fyrir peningaþvætti í febrúar 2016. Sé hann ákærður fyrir að hafa skipulagt og gefið fyrirmæli um peningaþvætti þegar meðákærðu hafi tekið við 31.600.000 krónum af ótilgreindum aðila, geymt fjármunina á bankareikningum, nýtt að hluta, flutt að hluta, sent að hluta til Ítalíu og millifært 20.500.000 krónur af umræddu fé á bankareikning félagsins [...] í Hong Kong, þrátt fyrir að þau hafi mátt vita að um væri að ræða ólöglega fengið fé, en um hafi verið að ræða fé sem ótilgreindur aðili hafi komist yfir með fjársvikum í tengslum við viðskipti félaganna [...] í Suður Kóreu og [...]. Séu brotin nánar rakin í ákærunni.

Ákærði [...] hafi verið framseldur til Íslands frá Ítalíu vegna rannsóknar málsins og hafi setið í gæsluvarðhaldi frá 17. ágúst sl., fyrst vegna rannsóknarhagsmuna en með úrskurði héraðsdóms Reykjavíkur frá 24. ágúst sl. í máli nr. R-280/2017 hafi hann verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í 4 vikur með vísan til b. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Hafi dóminum þótt atvikum þannig háttað að ekki yrði talið að nærvera hans yrði tryggð með öðrum og vægari úrræðum. Héraðssaksóknari telji augljóst að svo sé enn.

Rannsókn málsins hafi hafist á grundvelli tilkynningar til peningaþvættisskrifstofu embættis Héraðssaksóknara um ætlað peningaþvætti.

Rannsókn embættis héraðssaksóknara hafi staðið síðan 25. febrúar 2016 og hafi mikill tími farið í umfangsmikla upplýsinga- og gagnaöflun sem farið hafi fram í því skyni að athuga kæruefni, afmarka hina ætluðu refsiverðu háttsemi og rekja millifærslu umræddra fjármuna.

Húsleitir hafi farið fram á nokkrum stöðum og 5 aðilar sætt gæsluvarðhaldi við rannsókn málsins.

Í skýrslutöku hjá lögreglu sagðist Y, sakborningur í málinu, hafa kynnst manni að nafni A á einkamálasíðu á árinu 2006. Þau hafi síðan nokkrum sinnum hist á Ítalíu og einu sinn annars staðar í Evrópu, mögulega Þýskalandi.

Seint á árinu 2015 mun A síðan hafa haft samband við Y og beðið hana um að útvega íslenskan bankareikning vegna fyrirhugaðrar millifærslu fjármuna á reikninginn. Y sagðist þá hafa fengið heimild hjá Z, sem einnig sé sakborningur í málinu, til að láta millifæra fjármuni inn á reikning fyrirtækis hans [...].

Að tilstuðlan A hafi X komið til landsins 2. febrúar sl., gagngert til þess að veita viðtöku hluta umræddra fjármuna og senda þá með símgreiðslu til félagsins [...] í Hong Kong. Til þess hafi hann haft meðferðis nauðsynleg skjöl sem verið hafi tilhæfulausir reikningar um viðskipti milli aðila sem ekki hafi átt við rök að styðjast. Að beiðni A hafi X verið sóttur af Y og honum ekið á hótel í Hafnarfirði og honum fengið SIM kort svo unnt væri að hafa samband við hann.

Rannsókn lögreglu hafi leitt í ljós að X hafi komið til landsins gagngert til þess að veita viðtöku hluta umræddra fjármuna og senda þá með símgreiðslu til félagsins [...] í Hong Kong. Til þess hafi hann haft meðferðis nauðsynleg skjöl sem verið hafi tilhæfulausir reikningar um viðskipti milli aðila.

Y, Z og Þ, öll ákærð í málinu, munu síðan hafa farið í Arion banka hf. með skjöl sem X hafði útbúið og millifært í tvennu lagi um 21,7 milljón króna til félagsins í Hong Kong.

Umræddur X virðist því hafa útbúið nauðsynleg skjöl svo unnt væri að koma hluta fjármunanna úr landi auk þess sem hann hafi móttekið reiðufé. Það sé einnig grunur lögreglu að X tengist beint þeim aðilum sem hafi komið því til með blekkingum í tölvupóstsamskiptum að fjármunirnir hafi verið greiddir á reikning [...] í stað [...].

X hafi farið af landi brott þann 10. febrúar 2016 og hafi því lögreglu verið nauðsynlegt að krefjast þess við Héraðsdóm Reykjavíkur að gefin yrði út alþjóðleg handtökuskipun á hendur honum. Krafa um handtökuskipun hafi verið lögð fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur þann 30. mars 2016 og hafi úrskurðurinn verið gefinn út samdægurs.

Með bréfi til skrifstofu almannaöryggis innanríkisráðuneytisins, dags. 4. apríl 2016, hafi verið óskað eftir því að X yrði eftirlýstur og hann handtekinn hvar sem til hans myndi nást og hann framseldur íslenskum yfirvöldum. Þann 14. febrúar sl. hafi borist tölvupóstur frá lögreglufulltrúa í alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra þess efnis að X hafi verið handtekinn á flugvellinum í Bologna á Ítalíu.

Þann 15. febrúar sl. hafi skrifstofa almannaöryggis innanríkisráðuneytisins sent beiðni til ítalskra yfirvalda um framsal hans.

Ítölsk dómsmálayfirvöld hafi samþykkt framsalið þann 10. júlí sl. og hófst þá undirbúningur að flutningi X til landsins af hálfu alþjóðadeildar ríkislögreglustjóra. Hafi hann loks verið fluttur til landsins 17. ágúst sl.

Við yfirheyrslu hafi X kannast við að hafa komið til Íslands í lok janúar eða byrjun febrúar að beiðni áðurnefnds A. Hann hefði aldrei komið til Íslands og verið forvitinn um landið og fallist á það þar sem hann hafi fengið frítt flugfar og uppihald auk þess sem A hafi lofað honum 500 evrum að launum við komuna tilbaka til Ítalíu. Tilgangur ferðarinnar hafi verði að eiga samskipti við Y vegna millifærslu á fjármunum sem A hafi sagt að væru vegna einhverra viðskipta sem hann vissi ekki hver væru. Y muni ekki hafa svarað símtölum A og hann því verið farið að lengja eftir peningamillifærslunum og þar sem hann treysti henni ekki hafi hann sent X til að fá staðfestingu á millifærslunum og senda sér afrit að millifærslukvittunum að þeim loknum. Hann sagðist hins vegar ekki hafa verið viðstaddur eða framkvæmt neina millifærslur sjálfur.

X hafi kannast við að hafa hitt sakborningana Y, Z og Þ og farið út að borða og skemmt sér með þeim en aðra hafi hann ekki hitt.

X hafi ekki kannast við að hafa komið með þau gögn sem sakborningar í málinu hafi sagt að hann hefði framvísað eða þá útbúið reikninga sem bornir voru undir hann í yfirheyrslunni. Hann hafi aðeins séð tvær millifærslukvittanir sem hann hafi tekið mynd af á síma og sent A.

Við brottförina frá Íslandi hafi Y síðan afhent honum íslenska fjármuni sem hún hafi sagt X að skipta í evrur á flugvellinum og afhenda A. Muni þetta hafa verið um 2700 evrur en hluti af því hafi verið afgangur af framfærslupeningum sem Y hafi látið X hafa við komuna til Íslands að beiðni A.

Eins og áður sagði hafi X verið úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna frá 17. til og með 24 ágúst 2017, sbr. úrskurð R-273/2017. Hann hafi síðan verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald á grundvelli b liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, sbr. úrskurð R-280/2017, til 21. september 2017. Hafi sá úrskurður verið staðfestur með dómi Hæstaréttar nr. 528/2017 sem kveðinn var upp 25. ágúst 2017.

Þann 23. ágúst 2017 hafi verið tekin skýrsla af Y og framburður X borin undir hana. Hún hafi ekki kannast við að hafa látið X hafa peninga, hvorki við komuna til landsins né við brottförina. Þá hafi hún haldið sig við þann fyrri framburð að X hafi komið með þau skjöl sem vörðuðu hin meintu viðskipti sem voru forsenda fyrir millifærslunum.

Í skýrslutöku 24. ágúst, hafi X haldið sig við fyrri framburð og hafnað framburði Y.

Telja verði hvoru tveggja ríka almanna- og einkahagsmuni fyrir því að fallist verði á umbeðna kröfu. Sé um að ræða stórfellt peningaþvætti, sem hagsmunir almennings krefjist að saksótt verði fyrir. Meint brot varði öll verulega fjárhagslega hagsmuni og verulega hagsmuni aðila sem hafi átt í hvers konar viðskiptum við [...] á umræddum tíma. sem ollu [...] og hinum suður kóreska viðskiptavini þess gríðarlegu tjóni.

Héraðssaksóknari telji að gæsluvarðhald sé nauðsynlegt til að tryggja návist ákærða X við meðferð málsins fyrir dómi. Hann eigi eiginkonu og barn sem búi í Ghana og í Nígeríu.  Líta verði til þess að hann hafi ekki komið sjálfviljugur til landsins heldur eftir framsal í fylgd lögreglufulltrúa. Þá sé ákærði erlendur ríkisborgari sem engin tengsl hafi við landið og því veruleg hætta á að hann reyni að koma sér undan saksókn gangi hann laus.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og b. liðar 1. mgr. 95. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. laga 88/2008 um meðferð sakamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.

Niðurstaða:

         Héraðssaksóknari hefur krafist þess aðallega að kærði sæti gæsluvarðhaldi á grundvelli b-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Samkvæmt 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 er það almennt skilyrði þess að fallast megi á að sakborningur sæti gæsluvarðhaldi að hann sé undir rökstuddum grun um háttsemi sem fangelsisrefsing er lögð við. Auk þess verður eitthvert þeirra sérstöku skilyrða sem rakin eru í fjórum stafliðum í greininni að vera fyrir hendi.

         Með vísan til rannsóknargagna málsins og þess sem fram kemur í greinargerð héraðssaksóknara verður á það fallist að kærði sé undir rökstuddum grun um aðild að auðgunarbrotum sem fangelsisrefsing er lögð við samkvæmt ákvæðum almennra hegningarlaga. Því verður á það fallist að fyrrgreindu almennu skilyrði 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 sé fullnægt.

         Krafa héraðssaksóknara er reist á því að skilyrði b-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 sé fullnægt. Samkvæmt þeim tölulið má beita gæsluvarðhaldi ef ætla má að sakborningur muni reyna að komast úr landi eða leynast, ellegar koma sér með öðrum hætti undan málsókn eða fullnustu refsingar. Kærði er nígerískur ríkisborgari búsettur á Ítalíu og hefur engin tengsl við Ísland. Hann var handtekinn á Ítalíu og framseldur þaðan til Íslands. Hann á fjölskyldu í Afríku. Samkvæmt þessu má ætla að hann muni reyna að komast úr landi eða koma sér með öðrum hætti undan málsókn ef hann verður látinn laus. Af þessum sökum er fullnægt skilyrðum til að úrskurða varnaraðila áfram í gæsluvarðhald á grundvelli b. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, en eins og atvikum er háttað verður ekki talið að nærvera hans verði tryggð með öðrum og vægari úrræðum. Eins og fram kemur í greinargerð héraðssaksóknara er rannsókn málsins lokið og var ákæra gefin út í gær. Samkvæmt öllu framanrituðu verður fallist á aðalkröfu héraðssaksóknara eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.

         Arngrímur Ísberg héraðsdómari kveður upp þennan úrskurð.

                                                                    Ú R S K U R Ð A R O R Ð :

                Ákærði, X, nígerískur ríkisborgari, fæddur [...], skal áfram sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 19. október 2017 kl. 16:00.

Arngrímur Ísberg