Hæstiréttur íslands
Mál nr. 561/2007
Lykilorð
- Kærumál
- Farbann
|
|
Mánudaginn 29. október 2007. |
|
Nr. 561/2007. |
Ríkislögreglustjóri(Björn Þorvaldsson, settur saksóknari) gegn X (Gísli M. Auðbergsson hdl.) |
Kærumál. Farbann.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta farbanni samkvæmt b. lið 1. mgr. 103. gr. og 110. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson, Hjördís Hákonardóttir og Páll Hreinsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 23. október 2007, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 26. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Austurlands 23. október 2007, þar sem varnaraðila var áfram bönnuð för frá Íslandi, til þriðjudagsins 6. nóvember 2007, kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að farbanni verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Varnaraðili hefur sætt farbanni frá 9. október 2007. Farbann er eitt form frelsisskerðingar og þurfa veigamikil rök að vera fyrir hendi til að fallast megi á það. Í 1. mgr. 133. gr. laga nr. 19/1991 er mælt svo fyrir að hraða skuli meðferð opinbers máls eftir föngum. Er í þessu ljósi brýnt að hraða rannsókn málsins þar sem varnaraðili sætir farbanni. Þrátt fyrir framangreint þykja enn vera uppfyllt skilyrði 110. gr., sbr. b. lið 1. mgr. 103. gr., laga nr. 19/1991 fyrir farbanni varnaraðila og verður hinn kærði úrskurður staðfestur með vísan til forsendna hans.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Austurlands 23. október 2007.
Ríkislögreglustjóri hefur með beiðni dagsettri í dag krafist þess, með vísan til 110. gr., sbr. b-lið 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, að X, kt. [...], til heimilis að A, verði bönnuð för frá Íslandi í tvær vikur eða til þriðjudagsins 6. nóvember 2007, kl. 16.00.
Í kröfu Ríkislögreglustjóra segir að hinn 3. október s.l. hafi Afl starfsgreinafélagi borist tölvupóstur, sem undirritaður hafi verið af 10 starfsmönnum starfsmannaleigunnar B, sem leigi starfsmenn til C., en þar fullyrði þeir að gögn sem afhent hafi verið Vinnumálastofnun af hálfu C verktaka vegna eftirlitshlutverks stofnunarinnar, hafi verið röng. Meðal annars komi þar fram að framlagðir ráðningarsamningar séu ekki í samræmi við raunveruleg launakjör þar sem þeir hafi t.d. ekki fengið greitt fyrir yfirvinnu og vaktavinnu.
Fimmtudaginn 4. október s.l. hafi Sýslumanninum á Seyðisfirði borist kæra frá Vinnumálastofnun, sem óskað hafi eftir lögreglurannsókn á því hvort umrædd gögn sem hefðu verið lögð fram af hálfu C til stofnunarinnar hafi verið fölsuð. Sama dag hafi borist kæra lögmanns Afls Starfsgreinafélags Austurlands fyrir hönd 13 erlendra starfsmanna C. vegna ætlaðra brota fyrirsvarsmanna C og/eða starfsmannaleigunnar B gegn starfsmönnunum. Samkvæmt kærunni sé óskað eftir rannsókn á því hvort starfsmennirnir hafi á einhvern hátt verið neyddir með ólögmætum hótunum til að skrifa undir skjöl þess efnis að þeir hafi móttekið mun hærri launagreiðslur frá C verktökum en þeir hefðu í raun og veru gert. Samkvæmt framburðarskýrslum sem liggi fyrir í málinu hafi kærði, auk D, séð um að afhenda starfsmönnunum laun sín og láta þá kvitta fyrir móttöku á umrædd skjöl. Þannig hafi kærði mögulega gerst sekur um hlutdeild í skjalabroti.
Sunnudaginn 7. október s.l. hafi lögmaður Afls síðan sent aðra kæru til Sýslumannsins á Seyðisfirði. Samkvæmt kærunni séu tveir fulltrúar fyrirtækjanna C. og B, kærði X og D, sakaðir um að hafa boðið starfsmönnunum fé ef þeir færu tafarlaust úr landi og gæfu engar frekari skýrslur hjá lögreglu vegna málanna. Þá hafi þeir hótað því að sverta nöfn starfsmannanna gagnvart öðrum fyrirtækjum hérlendis sem og erlendis. Í kjölfar þessa hafi átta af starfsmönnunum yfirgefið landið. Rökstuddur grunur leiki á að til standi að senda kærða úr landi, en D hafi yfirgefið landið í flýti daginn eftir að kæra vegna meintra hótana og mútugreiðslna hafi borist lögreglu.
Loks kemur fram í beiðni Ríkislögreglustjóra að rannsókn málsins sé nú vel á veg kominn og að lögregla hafi lokið yfirheyrslum yfir 13 vitnum í málinu, auk þess sem teknar hafi verið skýrslur af þeim vitnum fyrir dómi. Lögregla hafi þegar yfirheyrt kærða en yfirheyrslum yfir honum sé ekki lokið og enn eigi eftir að bera undir hann gögn sem hafi grundvallarþýðingu í málinu. Þá eigi eftir að yfirheyra a.m.k. tvo aðila sem séu undir grun í málinu og líklegt sé að bera verði framburð þeirra undir kærða. Nauðsynlegt sé að tryggja nærveru kærða til að geta upplýst um brot þau sem honum hafi verið gefin að sök. Í þágu rannsóknar málsins þyki, með vísan til þess sem að framan sé rakið, brýna nauðsyn bera til að dómari leggi fyrir kærða að halda sig á Íslandi allt til þriðjudagsins 6. nóvember n.k. kl. 16:00.
Um lagarök er vísað til þess að verið sé að rannsaka meint brot gegn 155. gr., 158. gr., sbr. 22. gr. og 264. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sem varðað geti kærða fangelsi ef sök sannast. Um heimild til farbanns er vísað til 110. gr., sbr. b-lið 1. mgr. 103. gr., laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991.
Niðurstaða:
Af gögnum málsins verður ráðið að rökstuddur grunur sé um að varnaraðili hafi gerst sekur um brot gegn almennum hegningarlögum nr. 19/1940 sem fangelsisrefsing er lögð við. Rannsókn málsins er ekki lokið og á enn eftir að yfirheyra kærða frekar og aðra þá aðila er hafa stöðu sakborninga í málinu. Kærði er erlendur ríkisborgari sem hefur ekki önnur tengsl við Ísland en þau að hafa stundað hér tímabundið atvinnu. Verður því að telja að hætta sé á því að kærði muni reyna að komast af landi brott áður en meðferð máls hans er lokið hér á landi og að hann muni þannig koma sér hjá fullnustu refsingar. Brýna nauðsyn ber til þess að návist kærða, sem er eins og fyrr getur lettneskur ríkisborgari, verði tryggð á meðan mál hans er hér til meðferðar, en rannsókn málsins er ekki lokið. Þykir því rétt með vísan til 110. gr., sbr. b-lið 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála að fallast á kröfu Ríkislögreglustjóra um það að kærða X verði gert að sæta farbanni áfram eða til þriðjudagsins 6. nóvember 2007, kl. 16.00.
Ragnheiður Bragadóttir dómstjóri kvað upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Kærða, X, er bönnuð för frá Íslandi til þriðjudagsins 6. nóvember 2007, kl. 16.00.