Hæstiréttur íslands

Mál nr. 659/2015

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H. B. Snorrason saksóknari)
gegn
X (Ómar Örn Bjarnþórsson hdl.)

Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008

Reifun

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir og Benedikt Bogason og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 29. september 2015 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 1. október sama ár. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 29. september 2015 þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 13. október 2015 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími og einangrun verði aflétt.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

          Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 29. september 2015.

                Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag krafist þess með vísan til a-liðar 1. mgr. 95. gr. og b-liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, að kærða, X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 13. október nk., kl. 16:00. Þá er þess krafist að kærða verði gert að sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.

                Kærði mótmælir kröfu lögreglustjóra og krefst þess aðallega að henni verði hafnað, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími en krafist er og kröfu um einangrun hafnað.

I

                Í greinargerð lögreglustjóra segir meðal annars að lögreglustjórinn á höfuðborgar­svæðinu hafi til rannsóknar stórfellt fíkniefnalagabrot er varði innflutning á sterkum fíkniefnum hingað til lands. Hinn 22. september sl. hafi kærði komið hingað til lands ásamt erlendri konu á bifreiðinni [...] með [...]. Lögregla hafi haft eftirlit með bifreiðinni þar sem henni hafi verið ekið frá [...] til Reykjavíkur og þaðan til Keflavíkur á tímabilinu 22.–25. september. Föstudaginn 25. september hafi kærði farið með flugi frá Íslandi, en hann skilið bifreiðina eftir á bifreiðastæði við Keflavíkurflugvöll. Kærði hafi komið aftur til landsins í gær, 28. september, og sótt bifreiðina. Hann hafi ekið sem leið lá inn í Voga á Vatnsleysuströnd að gistiheimili við [...] í [...]. Kærði hafi hitt þar annan erlendan aðila og hafi þeir báðir verið handteknir af lögreglu stuttu eftir komu þeirra í húsnæðið. Bifreiðin hafi verið haldlögð af lögreglu og við leit í henni hafi fundist mikið magn af sterkum fíkniefnum sem hafi verið vel falin í bifreiðinni.

II

                Lögreglustjóri vísar til þess að kærði X sé umráðamaður bifreiðarinnar [...] en lögregla telji ljóst að fleiri aðilar tengist málinu. Kærði sé undir rökstuddum grun um aðild að innflutningi á miklu magni fíkniefna hingað til lands. Ljóst sé að fíkniefnin hafi verið ætluð til sölu og dreifingar hér á landi. Lögregla vinni að rannsókn málsins og telji lögreglustjóri brýna nauðsyn á því að kærði sæti gæsluvarðhaldi á þessu stigi málsins þar sem ljóst sé að gangi hann laus þá geti hann sett sig í samband við meinta samverkamenn sem gangi lausir eða þeir sett sig í samband við hann. Þá geti kærði einnig komið undan gögnum með sönnunargildi sem lögregla hafi ekki lagt hald á nú þegar. Þyki þannig brýnt að vernda rannsóknarhagmuni á þessu stigi málsins.

                Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sbr. b-lið 1. mgr. 99. gr. sömu laga, sé þess krafist að krafa lögreglustjóra nái fram að ganga.

III

Með vísan til alls framanritaðs, svo og gagna málsins, er fallist á það með lögreglustjóra að kærði sé undir rökstuddum grun um að hafa framið brot sem fangelsisrefsing liggur við.

Rannsókn málsins er á frumstigi. Ætla verður lögreglu nokkuð svigrúm til þess að rannsaka aðdragandann að ferð kærða hingað til lands og möguleg tengsl hans við vitorðsmenn, bæði hér á landi og erlendis. Gangi kærði laus má ætla að hann muni torvelda rannsókn málsins með því að afmá merki eftir brot, skjóta undan munum ellegar hafa áhrif á samseka eða vitni. Samkvæmt þessu telst skilyrðum a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála fullnægt til þess að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi. Er krafa lögreglustjóra því tekin til greina eins og hún er sett fram og nánar greinir í úrskurðarorði.

Með vísan til framangreinds er jafnframt fallist á kröfu um að kærða verði gert að sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldsvist hans stendur, sbr. b-lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Úrskurð þennan kveður upp Kristinn Halldórsson héraðsdómari.

Ú r s k u r ð a r o r ð :

                Kærði, X, fæddur [...], skal sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 13. október nk. kl. 16:00.

                Kærða er gert að sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.