Hæstiréttur íslands
Mál nr. 515/2009
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald
- Gæsluvarðhaldsúrskurður felldur úr gildi
|
|
Fimmtudaginn 10. september 2009. |
|
Nr. 515/2009. |
Ákæruvaldið(Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. Gæsluvarðhaldsúrskurður felldur úr gildi.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var felldur úr gildi.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson og Hjördís Hákonardóttir og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 7. september 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 8. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 7. september 2009, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hans, þó ekki lengur en til mánudagsins 5. október 2009 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Varnaraðili hefur sætt gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 samfellt frá 1. júní 2009. Fyrst úrskurðaði Héraðsdómur Reykjavíkur 1. júní 2009 að varnaraðili skyldi sæta gæsluvarðhaldi á þessum grundvelli til 15. júní sama ár. Þann dag gerði sóknaraðili kröfu um framlengingu til 13. júlí 2009 og byggði kröfuna á sama lagaákvæði. Með úrskurði sama dag féllst Héraðsdómur Reykjavíkur á kröfuna en markaði gæsluvarðhaldinu tíma til 29. júní 2009. Hæstiréttur staðfesti þennan úrskurð með dómi 22. júní 2009 í máli nr. 337/2009. Hinn 29. júní 2009 gerði sóknaraðili kröfu fyrir héraðsdómi um framlengingu á gæsluvarðhaldi varnaraðila til 20. júlí 2009. Með úrskurði sama dag féllst dómurinn á kröfuna en stytti tímann, þannig að fallist var á gæsluvarðhald til 13. júlí 2009. Varnaraðili kærði þennan úrskurð til Hæstaréttar sem vísaði málinu frá með dómi 3. júlí 2009 í máli nr. 367/2009, þar sem ekki hefði verið staðið rétt að kærunni. Hinn 13. júlí 2009 var enn kveðinn upp úrskurður í Héraðsdómi Reykjavíkur um framlengingu gæsluvarðhalds varnaraðila á sama grundvelli, nú til 10. ágúst 2009. Þessi úrskurður var staðfestur af meirihluta Hæstaréttar 15. júlí 2009 í máli nr. 395/2009. Að þessum tíma liðnum krafðist sóknaraðili á ný framlengingar gæsluvarðhaldsins til 7. september 2009. Fallist var á þá kröfu með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur 10. ágúst 2009, sem Hæstiréttur staðfesti með dómi 12. ágúst 2009 í máli nr. 446/2009.
Samkvæmt framangreindu höfðu fram að uppkvaðningu hins kærða úrskurðar gengið fimm úrskurðir í Héraðsdómi Reykjavíkur um gæsluvarðhald varnaraðila, ávallt á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Í dómi Hæstaréttar í málinu nr. 395/2009 þar sem staðfestur var úrskurður héraðsdóms um áframhaldandi gæsluvarðhald varnaraðila þar til dómur gengi í máli hans þó eigi lengur en til mánudagsins 10. ágúst 2009, segir svo: ,,Varnaraðili hefur borið í lögregluskýrslu 1. júní 2009 að hann hafi verið án atvinnu frá því í október 2008. Hann kvaðst þá neyta fíkniefna þrátt fyrir að hafa lokið meðferð 6. apríl 2009. Hann kvaðst fjármagna neyslu fíkniefna með bótum sem hann fái frá Félagsmálastofnun og með innbrotum. Ekkert bendir til að staða varnaraðila sé breytt að þessu leyti.“ Af gögnum málsins nú má sjá, að varnaraðili hefur undanfarnar vikur tekið þátt í meðferð við þessum vanda í fangelsinu og náð góðum árangri. Einnig kemur fram að hann hafi byrjað nám við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Með vísan til þessa eru ekki lengur nægileg ástæða til þess að hann sæti gæsluvarðhaldi og verður hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er felldur úr gildi.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 7. september 2009.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að dómurinn úrskurði X kt. [...] verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, uns dómur gengur í máli hans, þó ekki lengur en til mánudagsins 5. október 2009 kl. 16:00.
Í kröfu lögreglustjóra kemur fram að með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur 10. ágúst sl. nr. 373/2009 hafi ákærða verið gert að sæta gæsluvarðhaldi til dagsins í dag til kl. 16:00 á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 og hafi sá úrskurður verið staðfestur með dómi Hæstaréttar frá 12. ágúst 2009 nr. 446/2009. Áður hafi ákærða verið gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli fyrrgreindra lagaákvæða í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur 13. júlí sl. nr. 334/2009 og hafi sá úrskurður verið staðfestur með dómi Hæstaréttar frá 15. júlí 2009 nr. 395/2009. Þá hafi ákærða áður verið gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli fyrrgreindra lagaákvæði í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur nr. 298/2009, úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur nr. 278/2009 og dómi Hæstaréttar frá 22. júní nr. 337/2009 og úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur nr. 234/2009.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi gefið út tvær ákærur á hendur ákærða annarsvegar þann 12. maí sl. fyrir þjófnað í félagi við annan aðila að kvöldi mánudagsins 13. október 2008 með því að hafa brotist inn í verslunina Tölvutækni við Hamraborg í Kópavogi og stolið þaðan tveimur fartölvum og þá sé ákærði einnig ákærður fyrir fíkniefnalagabrot fyrir að hafa haft í vörslum sínum 0,44 g af amfetamíni.
Hins vegar hafi ákæra verið gefin út hinn 13. júlí sl. vegna tveggja þjófnaðarbrota, þar sem ákærði hafi brotist inn í tvö íbúðarhús í Hafnarfirði og stolið þaðan ýmsum munum og þessi innbrot hafi átt sér stað einungis tveimur sólarhringum eftir að ákærða hafi verið sleppt úr gæsluvarðhaldi vegna rannsóknarhagsmuna í tengslum við mál lögreglu nr. 007-2009-31425. Síðastnefnda málið varði fólskulegt rán á Seltjarnarnesi.
Þá hafi ríkissaksóknari gefið út ákæru á hendur ákærða hinn 13. júlí sl. vegna fólskulegs ráns, húsbrots og frelsissviptingar, sjá ákæru ríkissaksóknara, og hafi meðferð allra þessara mála verið sameinuð fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í máli nr. S-768/2009.
Við síðasta þinghald í ofangreindu máli hafi aðalmeðferð málsins verið frestað til þriðjudagsins 6. október nk. vegna anna verjanda í málinu. Vegna þessarar frestunar á máli ákærða sjái lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu sig knúinn til að krefjast framlengingar á gæsluvarðhaldi ákærða.
Með vísan til framangreinds og brotaferils ákærða sé það mat lögreglustjóra að yfirgnæfandi líkur séu á því að ákærði muni halda áfram brotastarfsemi fari hann frjáls ferða sinna og því nauðsynlegt að ákærði sæti áfram gæsluvarðhaldi á meðan málum hans er ekki lokið.
Ætluð brot sem ríkissaksóknari og lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi nú ákært ákærða fyrir varði við 2. mgr. 226., 231., 244. og 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 auk ákvæða 2. gr., sbr. 5. gr. laga um ávana og fíkniefni nr. 65/1974, en brot gegn 252. gr. almennra hegningarlaga geti varðað allt að 16 ára fangelsi.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.
Ákærði er undir sterkum grun um að hafa framið brot sem geta varðað við 217., 226., 244. og 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 1. júní sl. á grundvelli c. liðar 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 síðast á grundvelli úrskurðar Héraðsdóms Reykjavíkur frá 10. ágúst 2009, sem staðfestur var með dómi Hæstaréttar Íslands 12. ágúst 2009. Þá liggur fyrir að aðalmeðferð sakamáls á hendur ákærða hefur verið frestað til 6. október nk.
Með vísan til þess sem að framan er rakið er fallist á með lögreglu að líkur séu á því að ákærði muni halda brotastarfsemi áfram fari hann frjáls ferða sinna og því nauðsynlegt að kærði sæti gæsluvarðhaldi á meðan málum hans er ekki lokið.
Með vísan til framangreinds, hjálagðra gagna og c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, er krafa lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu tekin til greina, eins og krafist er og fram kemur í úrskurðarorði.
Hervör Þorvaldsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Ákærði, X kt. [...], skal sæta áfram gæsluvarðhaldi, uns dómur gengur í máli hans, þó ekki lengur en til mánudagsins 5. október 2009 kl. 16:00.