Hæstiréttur íslands

Mál nr. 91/2010


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


                                                        

Fimmtudaginn 18. febrúar 2010.

Nr. 91/2010.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H. B. Snorrason saksóknari)

gegn

X

(Stefán Karl Kristjánsson hdl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95 gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

                                                             

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson og Hjördís Hákonardóttir og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 17. febrúar 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 17. febrúar 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 17. mars 2010 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

                                                                  

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 17. febrúar 2010.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, allt til miðvikudagsins 17. mars 2010, kl. 16:00. 

Í greinargerð lögreglu kemur fram að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi haft til rannsóknar stórfellt fíkniefnabrot er varði ætlaðan innflutning á fíkniefnum hingað til lands. Hinn 11. nóvember sl. hafi lögreglunni borist upplýsingar frá lögreglunni í Kaunas í Litháen þess efnis að tveir Litháískir karlmenn ætluðu að flytja inn til landsins rúmlega 10 kg af amfetamíni í bifreið og að þeir myndu ferðast hingað til lands með ferjunni Norrænu. Áætlað var að þeir kæmu með ferjunni til Seyðisfjarðar hinn 12. nóvember sl. Síðar hafi komið í ljós að litháarnir hafi misst af ferjunni er hún hafi farið frá Færeyjum og þeir orðið strandaglópar þar. Lögreglan í Færeyjum hafi handtekið mennina hinn 13. nóvember og leitað í bifreið þeirra. Við leitina hafi fundist rúmlega 4.000 stk af MDMA töflum og rúmlega 3 kg af metamfetamíni. Við leitina haf einnig fundist  miði með nafninu X og íslenskt símanúmer. Við rannsókn málsins hafir komið í ljós að aðili að nafni X sé skráður fyrir símanúmerinu. Þá hafi einnig komið í ljós að íslenskt farsímanúmer hafi verið gefið upp í bókun farmiða þessara tveggja manna í Færeyjum. Litháarnir tveir sæti nú gæsluvarðhaldi í Færeyjum. Þeir hafi litlar upplýsingar gefið varðandi málið og sé ósamræmi í framburði þeirra. Aðspurðir hafi þeir borið um að maður að nafni X hafi skipulagt ferðina og hafi annar þeirra sagt að X hafi átt að taka á móti þeim þegar þeir kæmu með fíkniefnin til Seyðisfjarðar.

Hinn 18. nóvember sl. hafi kona að nafni Y haft samband við skrifstofu ferjunnar Norrænu og spurst fyrir um Litháana sem sitji í varðhaldi í Færeyjum. Y vildi vita hvenær von væri á þeim til landsins. Hún hafi hringt úr ákveðnu símanúmeri en óskað eftir því að haft yrði samband við sig í annað ákveðið símanúmer. Rannsókn lögreglu hafi leitt í ljós að umrædd kona sé Y og sé kærði Z notandi símanúmersins sem hún hafi beðið um að hringt yrði í.

Z, Y og X hafi öll verið handtekin hinn 5. janúar sl. og hafi þau í  kjölfarið verið úrskurðuð í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna til dagsins í dag.

Í fyrstu hafi X alfarið neitað sök vegna málsins. Hann hafi nú játað að hafa að beiðni Z, samþykkt að Litháarnir fengju upplýsingar um nafn hans og símanúmer og að útvega þeim vinnu er þeir kæmu til Íslands. Hann kveðst hafa vitað að í bílnum sem þeir kæmu á væru falin fíkniefni. X kveðst einnig hafa að beiðni Z millifært fjárhæðir inn á bankareikninga í Litháen. Eitthvað ósamræmi sé þó í framburði hans og Z.

Rannsókn lögreglu miði nú að því að finna út hver/hverjir séu eigendur hinna ætluðu fíkniefna sem haldlögð hafi verið og hverjir hafi staðið að baki skipulagningu innflutningsins. Rannsaka þurfi þætti er snúi að aðdraganda brotsins, skipulagningu og fjármögnun. Gagnaöflun sé í fullum gangi og þá liggi einnig fyrir mikil vinna við úrvinnslu þeirra gagna sem þegar liggi fyrir. Rannsaka þurfi nánar fjármál kærða og upplýsa nánar um samskipti hans við mögulega samverkamenn sem kunni að tengjast málinu. Þá eru einnig framundan frekari yfirheyrslur yfir kærðu.

Rannsókn málsins hafi gengið ágætlega en málið sé mjög umfangsmikið. Lögreglan hafi nú unnið að rannsókn málsins hér á landi í samvinnu við lögregluyfirvöld í Færeyjum, í Litháen og með aðkomu Europol. Lögreglumenn frá Færeyjum hafi komið hingað til lands og tekið þátt í yfirheyrslu yfir kærðu. Þá sé áætlað að handtaka og yfirheyra mögulega samverkamenn og/eða vitni í Litháen, en óskað hafi verið eftir aðstoð litháískra lögregluyfirvalda að því er það varði.

Kærði þyki vera undir sterkum rökstuddum grun um aðild að broti sem geti varðað allt að 12 ára fangelsi. Meint aðild kærða þyki mikil en hún sé talin tengjast skipulagningu, milligöngu og móttöku fíkniefnanna. Lögregla telji nær öruggt að fíkniefnin hafi átt að fara í sölu og dreifingu til ótiltekins fjölda manna hér á landi. Þá sé einnig lagt til grundvallar kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald að um mjög mikið magn hættulegra fíkniefna sé að ræða. Hið ætlaða brot kærða þyki mjög alvarlegt. Með tilliti til hagsmuna almennings þyki þannig nauðsynlegt að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi á meðan mál hans sé til meðferðar en telja verði að ef sakborningur, sem orðið hafi uppvís að jafn alvarlegu broti og kærði, gangi laus áður en máli lýkur með dómi þá valdi það hneykslun í samfélaginu og særi réttarvitund almennings. Staða kærða í málinu þyki sambærileg stöðu sakborninga í öðrum svipuðum málum, sbr. mál Hæstaréttar nr. 56/2010, 551/2009, 136/2008, 306/2008, 635/2007, 376/2006, 377/2006, 378/2006, 154/2006, 368/2005, 93/2005, 488/2004, 269/2004, 417/2000 og 471/1999, þar sem sakborningum hafi verið gert að sæta gæsluvarðhaldi fram að uppkvaðningu dóms þegar legið hafi fyrir rökstuddur grunur um beina aðild að innflutningi að miklu magni fíkniefna í ágóðaskyni. Ekki sé talin ástæða til að ætla að refsimat og réttarvitund almennings í slíkum málum hafi breyst frá því téðir dómar hafi verið uppkveðnir, og sé talið að skilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé fullnægt í því máli sem hér um ræðir.

Til rannsóknar sé ætlað brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 20. gr., ásamt síðari breytingum, sem geti varðað allt að 12 ára fangelsi ef sök sannast. Um heimild til gæsluvarðhalds sé vísað til 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

Fram er komið að varnaraðili er undir sterkum grun um að hafa framið brot sem getur varðað allt að 12 ára fangelsi, sbr. 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála. Dómurinn fellst á það að gæsluvarðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna skv. ákvæði þessu. Er krafa lögreglustjórans því tekin til greina.

Pétur Guðgeirsson héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

ÚRSKURÐARORÐ

Kærði, X, skal sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 17. mars 2010, kl. 16:00.