Hæstiréttur íslands
Mál nr. 421/2007
Lykilorð
- Kærumál
- Farbann
|
|
Þriðjudaginn 14. ágúst 2007. |
|
Nr. 421/2007. |
Ríkislögreglustjóri(Helgi Magnús Gunnarsson saksóknari) gegn X (Sveinn Andri Sveinsson hrl.) |
Kærumál. Farbann.
Úrskurður héraðsdóms um að X væri áfram bönnuð för úr landi á grundvelli 110. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Hrafn Bragason og Ingibjörg Benediktsdóttir.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 10. ágúst 2007, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 13. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 10. ágúst 2007, þar sem varnaraðila var áfram bönnuð brottför af Íslandi allt til miðvikudagsins 10. október 2007 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að honum verði gert að setja tryggingu fyrir nærveru sinni í stað farbanns.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með dómi Hæstaréttar 13. júní 2007 í máli nr. 314/2007 var fallist á að skilyrði 110. gr. laga nr. 19/1991 væru fyrir hendi til að banna varnaraðila för úr landi. Eins og þar var rakið teygir rannsókn máls þessa anga sína víða og eru fleiri menn grunaðir um aðild að því, en flestir þeirra eru búsettir erlendis. Ráða má af fyrirliggjandi gögnum að svör hafi aðeins borist við einni af fimm réttarbeiðnum til erlendra stjórnvalda frá því að framangreindur dómur féll og að verið sé að vinna úr þeim upplýsingum. Fallist er á með sóknaraðila að áfram sé þörf á því að tryggja nærveru varnaraðila hér á landi í þágu rannsóknar málsins, en eins og mál þetta liggur fyrir eru ekki efni til að fallast á varakröfu varnaraðila. Ber því að staðfesta hinn kærða úrskurð.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 10. ágúst 2007.
Ríkislögreglustjóri hefur lagt fram kröfu þess efnis að dómurinn úrskurði, með vísan til 110. gr., sbr. b.-lið 1. mgr. 103. gr., laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, að framlengt verði farbann sem, [kt.], sætir til föstudagsins 10. ágúst og að honum verði bönnuð brottför af Íslandi í tvo mánuði, eða allt til miðvikudagsins 10. október n.k. kl. 16:00.
Í greinargerð kemur fram að miðvikudaginn 11. apríl síðastliðinn tilkynntu forráðamenn Y [...] saksóknara efnahagsbrota um ætlaða refsiverða háttsemi kærða í störfum hans sem framkvæmdastjóri Y. Grunur leikur á að hann hafi misnotað aðstöðu sína hjá fyrirtækinu og falsað og/eða rangfært skjöl sem beri það með sér að eiga að stafa frá Y, en í þessum skjölum er vísað til viðskipta sem ekki er nokkur fótur fyrir að átt hafi sér stað á vegum Y eða fyrir tilstuðlan félagsins. Í hinum fölsuðu og/eða rangfærðu skjölum er m.a. yfirlýsing um að tilteknir fjármunir, 200.000.000 bandaríkjadala, séu í vörslu Y á tilteknum bankareikningi. Skjal þetta ber yfirskriftina Certificate of deposit, sem þýða má sem Staðfesting á innstæðu. Samkvæmt efni skjalsins er það staðfest að á innlánsreikningi sé að finna 200 milljónir bandaríkjadala. Innistæðan sé á lokuðum reikningi og sé þar með óafturkallanleg, til hagsbóta fyrir tilgreinda aðila. Innistæðuna skuli greiða þeim aðilum eða þeim sem þeir vísa til á gjalddaga sem er 31. desember 2009 gegn framvísun skjalsins á skrifstofu Y að [...], Reykjavík. Sérstaklega er tekið fram í skjalinu að það megi framselja. Skjal þetta virðist hafa bein tengsl við lánasamning. Í samningi þessum er rakið hvernig staðfestingu á innistæðunni sem vísað er til sem “CD” tengist lánasamningnum. Ekki hefur ennþá tekist að hafa uppi á frumriti skjalsins. Lánasamningurinn sem fjallað er um hér að ofan, er gerður á milli EC4 Petrochem Limited sem lánveitanda og Z Inc. sem lántakanda. Í öðrum kafla lánasamningsins er að finna ákvæði um hvaða skjöl þurfa að vera til staðar til að draga megi á lánið og ber lántakanda að afhenda lánveitanda skuldabréf (Medium Term Note) að fjárhæð 200 milljónir bandaríkjadala útgefnum af Z Inc., ásamt staðfestingunni á innistæðunni, sbr. hér að framan, útgefinni af Y.
Jafnframt er að finna í hinum fölsuðu og/eða rangfærðu skjölum yfirlýsingu vegna einhvers konar ábyrgðar á skuldabréfaútboði Z Inc., sem skráð er á Channel Island Stock Exchange, um að Z Inc. eigi á reikningum hjá Y erlend hlutabréf skráð í Bandaríkjunum að andvirði 84.365.000 bandaríkjadollara, erlend verðbréf skráð í Bandaríkjunum að andvirði 32.524.095 bandaríkjadollara og peningainnistæðu í 59.552.793.649 japönskum yenum, eða samtals inneign að virði 623.087.842 bandaríkjadala. Það hefur verið upplýst af forráðamönnum Y að eftirgrennslan og athuganir starfsmanna Y hafi leitt í ljós að engar slíkar innistæður séu eða hafi verið hjá félaginu á umræddum tíma.
Ekki er loku fyrir það skotið að með útgáfu hinna fölsuðu og/eða rangfærðu skjala í nafni Y kunni kærði, sem framkvæmdastjóri og prókúruhafi Y, að hafa með ólögmætum hætti drýgt athafnir sem fyrirtækið sé bundið við og kunni að hljóta fjártjón af. Einnig má benda á það að kærði var skráður eigandi 25% hlutafjár í Z Inc. (leiðrétt 20. apríl s.l.), auk þess sem hann er skráður í stjórn félagsins samkvæmt gögnum málsins sem varða útboðslýsingu á skuldabréfaútboði Z Inc.
Frekari upplýsingar sem hafa verið að koma fram með skoðun á tölvupóstum kærða sýna að hann hefur haft meiri samskipti við hina erlendu aðila og aðkomu að þeim viðskiptum sem reynt var að koma á, en hann hefur viðurkennt í skýrslum sínum hjá lögreglu. Andlag meintra fjársvikatilrauna nemur allt að 900 milljónum bandaríkjadollara.
Málið er því mjög alvarlegt og ábyrgðir sem enn geta fallið á Y í það minnsta vegna 200 milljóna bandaríkjadollara samkvæmt Certificate of Deposit, en frumritið hefur eins og áður kom fram ekki fundist og getur, að áliti lögmanna Y, bundið Y gagnvart grandlausum framsalshafa allt fram til ársloka 2009, þegar gjalddagi ábyrgðarinnar er. Enn fremur liggur fyrir að ábyrgð vegna skuldabréfaútboðsins er á gjalddaga árið 2017. Þótt enn hafi ekki verið upplýst með vissu um hversu mikla ábyrgð megi ætla að Y hafi verið tengt við í tengslum við útboðið eru líkur fyrir að það byggi að öllu leyti á ábyrgðum Y, bæði að því er varðar beina skráningu þess í kauphöllina á Guernsey og ábyrgð á greiðslum skuldabréfanna sem gefin voru út.
Réttarbeiðnir hafa verið sendar til Bandaríkjanna, Guernsey, Jersey og Englands, auk þess sem fyrirspurn var send til Filipseyja, en eins og nánar er rakið í þeim virðist fjöldi einstaklinga tengdur brotunum og eru þeir flestir búsettir erlendis aðrir en kærði. Mál þetta verður því ekki upplýst án aðstoðar lögreglu í viðkomandi löndum. Réttarbeiðnir verður að senda og meðhöndla eftir frekar seinlegum leiðum, í samræmi við ákvæði alþjóðasamninga þar um, og er ekki við því að búast að niðurstaða fáist úr þeim fyrr en að nokkrum tíma liðnum.
Svar barst frá Guernsey í lok júlí s.l. Verið er að vinna við að fara yfir gögnin, en ljóst er eftir lauslega skoðun umræddra gagna að í útboðslýsingu (Offering Circular), sem lögð var inn hjá kauphöllinni á Guernsey dags. 18.10.2006, er vísað til ábyrgðar Y vegna útboðsins með vísan til “Collateral Trust Guaranty” á milli Z Inc. og Y vegna skuldabréfaútboðsins. Jafnframt kemur fram í þessu sama skjali að að kærði X sé “Director” hjá Z Inc. og eigandi 25% hlutafjár.
Lögreglan telur hættu vera á að kærði muni reyna að komast úr landi og þar með torvelda rannsókn málsins, en benda má á að hann var búsettur í Arizona í Bandaríkjunum, þar sem hann á ættingja, auk þess sem fyrirsvarsmaður Z Inc., A, er búsettur þar. Eftir því sem upplýsingar berast erlendis frá þarf að yfirheyra kærða um þær, auk þess sem enn er verið að rannsaka tölvupósta sem tengjast viðskiptunum og hafa verið afritaðir í tölvum Y.
Í þágu rannsóknar málsins og með vísan til þess, sem að framan er rakið, telur lögreglan brýna nauðsyn bera til að dómari leggi fyrir kærða að halda sig á Íslandi allt til miðvikudagsins 10. október n.k. kl. 16:00.
Kærði hefur mótmælt kröfu lögreglunnar og krafist þess að henni verði hafnað. Til vara er þess krafist að honum verði gert að setja tryggingu fyrir nærveru sinni sbr. 109. gr. laga nr. 19/1991.
Með vísun til þess sem rakið hefur verið úr greinargerð ríkislögreglustjóra er fallist á það með honum að hætta sé á að kærði geti torveldað rannsókn málsins, hafi hann fullt ferðafrelsi og verður honum því bönnuð brottför af Íslandi eins og nánar greinir í úrskurðarorði. Lögreglan telur sig hafa rökstuddan grun um að kærði hafi framið brot sem kunni að varða við ákvæði hegningarlaga um skjalafals og auðgunarbrot. Af gögnum málsins má ráða að um verulegar fjárhæðir geti verið að ræða. Að þessu athuguðu eru ekki efni til að fallast á varakröfu kærða um að honum verði gert að setja tryggingu í stað farbanns.
Arngrímur Ísberg héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Kærða, X, [kt.], er bönnuð brottför af Íslandi í tvo mánuði, eða allt til miðvikudagsins 10. október n.k. kl. 16:00.