Hæstiréttur íslands
Mál nr. 189/2010
Lykilorð
- Niðurfelling máls
- Málskostnaður
|
|
Fimmtudaginn 18. nóvember 2010. |
|
Nr. 189/2010.
|
BFT ehf. Jón Guðni Sandholt og Arnar Sölvason (Heiðar Ásberg Atlason) gegn NBI hf. (Indriði Þorkelsson hrl.) |
Niðurfelling máls. Málskostnaður.
Mál B, J og A gegn N var fellt niður fyrir Hæstarétti að kröfu hinna fyrrnefndu og þau dæmd, að kröfu N, til greiðslu málskostnaðar.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson, Páll Hreinsson og Viðar Már Matthíasson.
Áfrýjendur skutu málinu til Hæstaréttar 24. mars 2010. Með bréfi til réttarins 15. nóvember 2010 tilkynntu áfrýjendur að þeir féllu frá áfrýjun málsins. Með bréfi sama dag var af hálfu stefnda gerð krafa um málskostnað fyrir Hæstarétti.
Með vísan til c. liðar 1. mgr. 105. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, sbr. 2. mgr. 164. gr. og 166. gr. þeirra, verður málið fellt niður fyrir Hæstarétti.
Samkvæmt 2. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991, sbr. 166. gr. sömu laga, verða áfrýjendur dæmdir til að greiða málskostnað fyrir Hæstarétti svo sem í dómsorði segir.
Dómsorð:
Mál þetta er fellt niður.
Áfrýjendur, BFT ehf., Jón Guðni Sandholt og Arnar Sölvason, greiði óskipt stefnda, NBI hf., 150.000 krónur í málskostnað fyrir Hæstarétti.