Hæstiréttur íslands
Mál nr. 461/2000
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Föstudaginn 22. desember 2000. |
|
Nr. 461/2000. |
Lögreglustjórinn í Reykjavík(Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Hilmar Ingimundarson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Hjörtur Torfason, Árni Kolbeinsson og Markús Sigurbjörnsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 19. desember 2000, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 21. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 19. desember 2000, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 9. janúar 2001 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 19. desember 2000.
Ár 2000, þriðjudaginn 19. desember, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Allan V. Magnússyni héraðsdómara kveðinn upp úrskurður þessi.
Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess með vísan til a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991, að kærði, X, [ . . . ], sæti áfram gæsluvarðhaldi, þó eigi lengur en til þriðjudagsins 9. janúar nk. kl. 16.00.
Kærði mótmælir kröfu þessari.
[ . . . ]
Fram er komið að lögregla rannsakar alvarleg brot gegn fíkniefnalöggjöfinni og kærði er grunaður um að eiga aðild að þeim brotum sem geta varðað hann fangelsisrefsingu sbr. 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og lög nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni ef sök sannast. Rannsóknargögn benda til þess að kærði tengist þessum brotum og er rökstuddur grunur um aðild hans að þeim enda þótt hann neiti því. Fallast verður á það með lögreglu að brýnir rannsóknarhagsmunir séu fyrir hendi og hætta á því að kærði geti haft áhrif á vitni eða samseka ef hann gengi laus enda er rannsókn á því stigi nú að þáttur kærða þarf að rannsakast nánar. Skilyrði a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 eru fyrir hendi og verður krafa lögreglu um áframhaldandi gæsluvarðhald kærða tekin til greina eins og hún er fram sett og greinir í úrskurðarorði.
Allan V. Magnússon héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, sæti áfram gæsluvarðhaldi, en þó eigi lengur en til þriðjudagsins 9. janúar nk. kl. 16.00.
.