Hæstiréttur íslands

Mál nr. 350/1998


Lykilorð

  • Lyfjaverð
  • Stjórnvaldsákvörðun
  • Fyrning
  • Vextir


Nr

Nr. 350/1998.

Tryggingastofnun ríkisins

(Sigrún Guðmundsdóttir hrl.)

gegn

Kjartani Gunnarssyni

og gagnsök

(Jóhannes Sigurðsson hrl.)

Lyfjaverð. Stjórnvaldsákvörðun. Fyrning. Vextir.

Sams konar mál og 346/1998.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Hrafn Bragason, Arnljótur Björnsson, Hjörtur Torfason, Markús Sigurbjörnsson og Jónatan Þórmundsson prófessor.

Aðaláfrýjandi skaut máli þessu til Hæstaréttar með stefnu 1. september 1998. Hann krefst aðallega sýknu af öllum kröfum stefnda og málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti. Til vara krefst hann þess að tildæmdar fjárhæðir verði lækkaðar og málskostnaður látinn falla niður.

Gagnáfrýjandi áfrýjaði héraðsdómi með stefnu 5. október 1998. Hann krefst þess að staðfest verði niðurstaða héraðsdóms um að aðaláfrýjanda verði gert að greiða sér 7.410.056 krónur, en aðallega með nánar tilgreindum dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla vaxtalaga nr. 25/1987 frá 17. mars 1990 til greiðsludags. Til vara krefst hann sömu fjárhæðar með vöxtum samkvæmt 7. gr. vaxtalaga af sömu fjárhæðum og miðað við sömu dagsetningar til 30. janúar 1997, en með dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Til þrautavara krefst hann sömu fjárhæðar með dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla vaxtalaga frá 4. apríl 1997 til greiðsludags. Þá krefst hann málskostnaðar fyrir héraðsdómi og Hæstarétti.

Mál þetta er samkynja tuttugu og fimm málum sem dæmd eru samhliða. Um rökstuðning fyrir niðurstöðu þessa máls vísast til forsendna í málinu nr. 343/1998, Tryggingastofnun ríkisins gegn Werner Rasmussyni, að öðru leyti en því að gagnáfrýjandi átti ekki sæti í lyfjaverðlagsnefnd. Gagnáfrýjandi telur skerðingu á greiðslum til sín frá með greiðslu 17. mars 1990 til og með greiðslu 17. mars 1995 nema alls 7.410.056 krónum og er ekki um það deilt. Héraðsdómsstefna var birt 6. ágúst 1997 og verður aðaláfrýjandi dæmdur til að greiða þann hluta kröfu gagnáfrýjanda, sem gjaldféll eftir 6. ágúst 1993, eða 3.220.234 krónur. Ekki hefur verið sýnt fram á að gagnáfrýjandi hafi nokkru sinni eftir 6. ágúst 1993 gert fyrirvara við móttöku greiðslu frá aðaláfrýjanda. Er því ekki unnt að dæma vexti frá fyrri tíma en greinir í héraðsdómi. Verður aðaláfrýjandi því dæmdur til að greiða vexti eins og um getur í dómsorði.

Aðaláfrýjandi greiði gagnáfrýjanda málskostnað í héraði og fyrir Hæstarétti, svo sem greinir í dómsorði.

                                                    Dómsorð:

Aðaláfrýjandi, Tryggingastofnun ríkisins, greiði gagnáfrýjanda, Kjartani Gunnarssyni, 3.220.234 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla vaxtalaga nr. 25/1987 frá 4. apríl 1997 til greiðsludags og samtals 60.000 krónur í málskostnað í héraði og fyrir Hæstarétti.