Hæstiréttur íslands
Mál nr. 640/2016
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Reifun
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir, Helgi I. Jónsson og Karl Axelsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 14. september 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 14. september 2016, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 12. október 2016 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 14. september 2016.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi til miðvikudagsins 12. október 2016 kl. 16.00.
Í greinargerð aðstoðarsaksóknara kemur fram að kærði hafi verið handtekinn klukkan 15.00 í gær en tilkynnt hefði verið um mann sem gengi hefði um [...] og reynt að komast inn í hús á leið sinni með því að taka í hurðarhúna. Lögreglumenn hafi hitt kærða þar sem hann hafi komið gangandi frá [...] og hafi lýsingin á manninum samsvarað við kærða. Kærði hafi haldið á tösku þegar lögregla hafi haft afskipti af honum en síðan hafi komið í ljós að taskan hefði verið tekin úr bifreið sem staðið hafi við [...]. Þá hafi einnig fundist bíllyklar og lyklaveski með nokkrum húslyklum á kærða en aðspurður segðist kærði hafa stolið þeim úr bifreið við [...]. Þá hafi um eitt gramm af ætluðu kannabisefni fundist í fórum kærða.
Í greinargerðinni kemur fram að kærði hafi játað sök í skýrslutöku hjá lögreglu. Jafnframt eru eftirtalin mál þar tilgreind sem hér segir:
„007-2016-[...]
Um klukkan 13:00 þann 12. september sl. barst lögreglu tilkynning um að tveir einstaklingar hafi komið inn á [...] á Höfðatorgi, tekið veski starfsmanns staðarins og hlaupið síðan út með veskið. Atvikið náðist á myndbandsupptöku en lögreglumenn báru kennsl á kærða sem annan af gerendum en kærði og samverkamaður hans höfðu þá skömmu áður verið látnir lausir úr haldi lögreglu vegna rannsóknar á máli nr. 007-2016-[...]. En af myndbandsupptökum að dæma er það kærði sem tekur veskið og þeir hlaupa síðan saman út.
007-2016-[...]
Skömmu síðar eða klukkan 13:06, barst lögreglu tilkynning um innbrot í kjallaraíbúð að [...]. Farið hafði verið inn um glugga á jarðhæð/kjallara hússins en sjá mátti skófar á gluggakistunni og fingraför fundust á gluggakarmi en það er mat lögreglu að skófarið sé eftir kærða. Í fljótu bragði tók húsráðandi eftir því að búið var að taka tvær fartölvur og tvær fartölvutöskur. Á vettvangi fannst veskið sem tekið hafði verið frá starfsmanni á Höfðatorgi skömmu áður. Þá fannst hluti þýfisins hjá þeim aðila sem var með kærða í Höfðatorgi þegar hann var handtekinn.“
Þá er þess getið að auk framangreindra mála sé kærði grunaður um eftirfarandi brot framin á undanförnum vikum og mánuðum:
„Mál 008-2016-[...] – Hótanir og húsbrot
8. ágúst sl. Tilkynnt um kærða þar sem hann fór inn í heimahús og hótaði húsráðanda lífláti. Þá hafði hann einnig reynt að fara inn í bifreiðar. Kærði bar við minnisleysi í skýrslutöku.
Mál 007-2016-[...] – Húsbrot og áfengislög
10. ágúst sl. Tilkynnt um kærða þar sem hann var að kíkja inn í bifreiðar og hann var síðan handtekinn vegna gruns um að hafa brotist inn í [...] við [...] í [...] en hann kom gangandi frá [...] þegar lögregla kom á vettvang. Kærði neitaði sök í skýrslutöku.
Mál 007-2016-[...] – Innbrot og þjófnaður
10. ágúst sl. Innbrot í íbúð við [...] en munirnir fundust heima hjá kærða að [...]. Kærði sagðist hafa verið að geyma þessa muni fyrir vin sinn.
Mál 007-2016-[...] – Húsbrot og þjófnaður
11. september sl. Kærði ásamt öðrum manni grunaður um að hafa farið í leyfisleysi inn á heimili fyrrverandi sambýliskonu þess síðarnefnda, hent þar til fatnaði og munum og stolið lyfjum, fatnaði og skartgripum.
Mál 007-2016-[...] – Eignaspjöll og áfengislög
11. september sl. Kærði ásamt öðrum manni grunaður um að hafa brotið rúðu í gömlu sundhöllinni við [...]. Tilkynnandi sagði mennina hafa reiðst þegar þeir fengu ekki að fara í sund, hafa rokið út og brotið síðan rúðu. Hún gat ekki sagt til um hvor þeirra braut rúðuna. Kærði neitaði sök í skýrslutöku hjá lögreglu.
Mál 007-2016-[...]
13. september sl. Kærði grunaður um að [hafa] brotið upp hurð í stigagangi í [...]. Lýsing á geranda passaði fullkomlega við kærða en lögregla handtók hann skömmu síðar.“
Í greinargerð aðstoðarsaksóknara er á það bent að kærði eigi að baki langan sakarferil og hafi hlotið fjölmarga dóma fyrir auðgunarbrot, sbr. meðfylgjandi sakavottorð. Við rannsókn mála kærða hjá lögreglu hafi komið í ljós að hann sé í neyslu fíkniefna og megi ætla að hann fjármagni fíkniefnaneyslu sína með afbrotum. Þann 3. ágúst sl. hafi kærði lokið afplánun á tveggja mánaða fangelsisrefsingu Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. [...] frá [...]. desember 2015. Með vísan til brotaferils kærða á undanförnum vikum og mánuðum sé það mat lögreglustjóra að yfirgnæfandi líkur séu á því að kærði haldi áfram brotastarfsemi fari hann frjáls ferða sinna en nauðsynlegt sé að ljúka þeim málum sem séu til meðferðar hjá dómstólum og lögreglu sem fyrst.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga 88/2008 um meðferð sakamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.
Niðurstaða:
Samkvæmt gögnum málsins er fram kominn rökstuddur grunur um að kærði hafi að undanförnu gerst sekur um ýmis hegningarlagabrot. Þannig eru nú til rannsóknar hjá lögreglu í það minnsta 8 mál á hendur kærða vegna ýmissa brota sem framin eru á tímabilinu frá 8. ágúst til 13. september sl. er hann var handtekinn vegna gruns um innbrot. Ætluð brot varða m.a. við 257. gr., 233. gr., 231. gr., 244. gr. og eftir atvikum 245. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Kærði hefur játað hluta brotanna, neitað öðrum eða borið við minnisleysi. Kærði á að baki langan sakarferil og hefur hlotið fjölmarga dóma fyrir auðgunar- og fíkniefnabrot. Hann lauk afplánun 3. ágúst sl. á tveggja mánaða fangelsisrefsingu er hann hlaut með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur [...]. desember sl. Við hluta ofangreindra brota liggur fangelsisrefsing sannist sök. Með vísan til þess sem fram er komið fyrir dóminum og í ljósi þess að gögn málsins gefa eindregið til kynna, þegar litið er til brotaferils kærða á undanförnum vikum og fíkniefnaneyslu hans, að ætla megi að hann haldi áfram brotastarfsemi fari hann frjáls ferða sinna er fallist á með lögreglustjóra að skilyrði c.-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála séu uppfyllt. Er krafa um gæsluvarðhald því tekin til greina eins og nánar greinir í úrskurðarorði. Með hliðsjón af fjölda mála sem nú eru til rannsóknar, tíðni brotastarfseminnar og tilgangi gæsluvarðhalds á grundvelli áðurnefnds ákvæði eru ekki efni til að marka gæsluvarðhaldinu skemmri tíma en krafist er.
Hólmfríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp þennan úrskurð.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kærði, X, kt. [...], skal sæta gæsluvarðhaldi til miðvikudagsins 12. október 2016 kl. 16.00.