Hæstiréttur íslands
Mál nr. 585/2010
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
Þriðjudaginn 12. október 2010. |
|
|
Nr. 585/2010: |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H.B. Snorrason saksóknari) gegn X (Arnar Kormákur Friðriksson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Viðar Már Matthíasson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 8. október 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 11. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 8. október 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 13. október 2010 klukkan 16 og sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími. Þá krefst hann þess, verði aðalkröfu hans hafnað, að sér verði ekki gert að sæta einangrun á gæsluvarðhaldstíma.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 8. október 2010.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 22. október n.k. kl. 16:00. Þá er gerð krafa um að sakborningur sæti einangrun til 13. október n.k. kl. 16.00
Í greinargerð lögreglu kemur fram að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsaki nú ætluð stórfelld brot gegn 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt og gegn peningaþvættisákvæði almennra hegningarlaga sbr. 264 gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur þann 15. september sl. hafi sakborningur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 24. september. Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur þann 24. september s.l. hafi sakborningur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna allt til dagsins í dag kl. 16:00 en úrskurðurinn hafi verið staðfestur með dómi Hæstaréttar nr. 556/2010.
Upphaf málsins séu tilkynningar frá Íslandsbanka og frá Arionbanka um peningafærslur sem hafi þótt grunsamlegar og ekki samræmast upplýsingum og eða viðskiptum hjá reikningshöfum í bönkunum. Við nánari skoðun lögreglu hafi komið í ljós að um hafi verið að ræða greiðslur inn og út af reikningum tveggja fyrirtækja A, kt. [...], og B, kt. [...]. Hafi reikningsyfirlit sýnt háar fjárgreiðslur frá embætti tollstjóra inn á reikninga þessara tveggja fyrirtækja. Fjárhæðirnar hafi síðan smám saman verið teknar út af reikningunum, að mestu í reiðufé. Innlagnir og úttektir sem til rannsóknar séu áttu sér stað frá október 2009 til júní 2010.
Við upplýsingaöflun lögreglu m.a. hjá skattrannsóknarstjóra hafi komið fram að hinar háu greiðslur inn á reikninga félaganna hafi verið endurgreiðslur á innskatti vegna endurbóta á húsnæði en slíkar endurgreiðslur séu gerðar á grundvelli sérstakrar skráningar á virðisaukaskattsskrá skv. reglugerð nr. 577/1989. Við nánari eftirgrennslan um grundvöll þessara endurgreiðslna hafi komið í ljós að húsnæði það sem félögin tvö hafi fengið endurgreiddan innskatt vegna hafði aldrei verið í eigu félaganna eða þeirra einstaklinga sem þeim stóðu. Endurgreiðslurnar hafi því byggt á röngum og tilhæfulausum gögnum og verið þannig sviknar úr ríkissjóði. Endurgreiðslur á innskatti til A, hafi verið samtals kr. 174.330.155, Endurgreiðslur til B, hafi verið samtals kr. 103.000.000.
Sakborningur, X, sé sá starfsmaður skattstjóra (nú ríkisskattstjóra) sem hafi afgreitt erindi fyrrnefndra tveggja félaga um sérstaka skráningu og endurgreiðslu. Að mati lögreglu sé afgreiðsla þessara erinda afar grunsamleg
Samkvæmt reglugerð nr. 577/1989 sé skylt að leggja fram ýmis gögn áður en unnt sé að afgreiða erindi um sérstaka skráningu. Hjá skattstjóra sé haldið utan um gögn er berast vegna sérstakrar skráningar og þau sett í tilteknar möppur auk þess sem þau hafi verið skönnuð inni í málakerfið, GoPro. Í tilviki B og A finnist hins vegar ekki tilskilin gögn frá félögunum hvorki í tilgreindum möppum né í málakerfinu. Einu gögnin sem finnist séu bréf sem X sjálfur hafi ritað í tengslum við sérstaka skráningu félaganna tveggja. Sakborningur segist hafa móttekið tilskilin gögn en hafi ekki getað skýrt af hverju þau finnist ekki nú né af hverju þau hafi ekki verið skönnuð inn í málakerfi skattstjóra á sínum tíma eins og venja hafi verið.
Að beiðni lögreglu hafi farið fram könnun á vegum skattrannsóknarstjóra ríkisins þar sem farið hafi verið sérstaklega yfir afgreiðslu X á umsóknum A og B um sérstaka skráningu. Í greinargerð frá skattrannsóknarstjóra komi m.a. fram við skoðun á afgreiðslu X á umsóknum um sérstaka skráningu hafi komið í ljós að önnur mál sem X hafi séð um hafi uppfyllt öll skilyrði og gögn vegna þeirra fundust á viðeigandi stöðum. Skjöl sem hafi komið inn vegna umsókna voru skönnuð inn í málakerfi, GoPro, en slíkt ekki verið gert í tilviki B og A. Í greinargerðinni komi einnig fram að samkvæmt upplýsingum starfsmanns skattstjórans hafi samstarfsmaður X lokað númerum A og B vegna sérstakrar skráningar samkvæmt munnlegri beiðni frá X. Á þessu stigi málsins hafi ekki fundist gögn þar sem handhafar númeranna óska eftir að þeim yrði lokað. Vísist að öðru leyti í greinargerð skattrannsóknarstjóra sem liggi fyrir meðal gagna málsins.
Fleira bendi til að umsóknir félaganna tveggja hafi ekki verið afgreiddar með eðlilegum hætti. Um mjög háar fjárhæðir hafi verið að ræða sem sakborningur virðist hafa afgreitt fljótt án þess að fram færi nokkurs konar könnun á lögmæti þeirra gagna sem sakborningur haldi fram að hann hafi móttekið. Umsóknirnar hafi afgreiddar óvenjulega fljótt samkvæmt framburði yfirmanns virðisaukaskattskrifstofu, C. Í báðum tilvikum hafi verið veitt svokölluð afturvirk skráning sem í raun heimili að endurgreiddur sé innskattur aftur í tímann. Í framburði C hafi komið fram að hún hefði aldrei sjálf afgreitt slíkar skýrslur sem skráðar væru aftur í tímann. Í tilviki A hafi það raunar gengið svo langt að heimiluð skráning var frá 12. febrúar 2009 en félagið hafi ekki verið stofnað fyrr en í desember það ár. Sakborningur segir að þar hafi verið um mistök að ræða af hans hálfu.
Sakborningur hafi við yfirheyrslur hjá lögreglu alfarið neitað sök. Sagðist hann hafa afgreitt þessi erindi með venjubundnum hætti. Hann hafi fengið þau gögn sem krafist er í hendur og samþykkt endurgreiðslur á grundvelli þeirra. Aðspurður um hvort hann hafi ekki gert einhvers konar könnun á lögmæti þeirra gagna sem honum bárust hafi hann neitað því.
Lögregla hafi undir höndum upplýsingar um bankareikning sakbornings á Spáni og meðal gagna málsins liggi fyrir tölvupóstur frá því í október 2009 þar sem hann spyrjist fyrir um reikninginn þar sem hann hafi viljað flytja peninga frá Íslandi inn á reikninginn. Við yfirheyrslur í dag hafi sakborningur tjáð lögreglu að hann hafi í janúar 2009 fundið plastpoka við hlið bifreiðar sinnar þar sem hún hafi staðið utan við vinnustað hans. Í plastpokanum hafi verið um 7,5 milljónir króna í reiðufé sem hann hafi tekið með sér og geymt heima í einhvern tíma. Hann hafi í framhaldi komist í samband við aðila gegnum auglýsingasíðuna barnaland.is sem hafi verið að selja gjaldeyri. Hafi hann afhent þessum aðila samtals um 6 milljónir króna sem hann hafi millifært á reikning sakbornings á Spáni. Sakborningur hafi sagt að á þessum reikningi væru nú um 30.000 evrur (um 4,6 milljónir íslenskra króna).
Þá hafi lögregla nýlega fengið upplýsingar um að sakborningur hafi fengið í sinn hlut töluverðar fjárhæðir vegna brotsins og sé unnið eftir þeim upplýsingum, sjá nánar meðfylgjandi upplýsingaskýrslu.
Með vísan til framangreinds og til gagna málsins telji lögregla sig hafa rökstuddan grun um að sakborningur hafi tekið þátt í eða gert öðrum kleif þau umfangsmiklu brot gegn skattalögum sem hér um ræði þar sem sviknar hafi verið yfir 277 milljónir af ríkissjóði. En með háttsemi sinn kann hann einnig að hafa brotið gegn ákvæðum XIV. kafla almennra hegningarlaga er varði brot í opinberu starfi.
Rannsókn málsins sé margþætt og umfangsmikil. En auk sakbornings sæti fjórir aðrir einstaklingar gæsluvarðhaldi. Gögn og upplýsingar bendi til að hlutverkum hafi verið skipt á milli einstaklinganna í brotum þessum. Rannsókn málsins virðist þó hafa leitt í ljós að maður að nafni Y hafi einn, eða ásamt öðrum, skipt verkum á milli aðilanna, gefið þeim fyrirmæli og móttekið fjármunina frá umræddum einstaklingum. Jafnframt hafir komið fram að Y hafi tjáð einhverjum þeirra að hann þekkti mann hjá skattinum sem myndi sjá til þess að þessi mál gengju greiðlega. Samkvæmt upplýsingum lögreglu hafi sakborningur tengsl við a.m.k tvo aðila sem tengdir séu Y.
Y, sem hafi verið eftirlýstur, hafi verið handtekinn í Venesúela þann 27. september s.l. Samkvæmt upplýsingum frá yfirvöldum í Venesúela muni Y verða vísað brott af landinu á allra næstu dögum og fluttur í lögreglufylgd til Íslands. Y sé í haldi ytra en ekki í einangrun og hafi samkvæmt upplýsingum lögreglu afnot af síma. Að mati lögreglu sé mikilvægt að tryggja að Y verði yfirheyrður áður en hann eigi þess kost að komast í samband við þá sem nú sitja í gæsluvarðhaldi.
Til rannsóknar sé umfangsmikil svikastarfsemi þar sem yfir 277 milljónir króna hafi verið blekktar úr ríkissjóði. Fjölmargir aðilar tengist þeim fyrirtækjum og einstaklingum sem virðist hafa staðið að baki þessari starfsemi. Eigi lögregla enn eftir að yfirheyra nokkra aðila vegna málsins. Þá reyni lögregla nú að rekja slóð þeirra peninga sem sviknir hafi verið úr ríkissjóði en eins og fyrr hafi verið greint sé talið að sakborningur hafi fengið í sínar hendur háar fjárhæðir sem enn séu ófundnar. Megi ætla að ef sakborningur verði látinn laus muni hann eiga þess kost að torvelda rannsókn málsins, svo sem með því hafa samband við samverkamenn eða með því að koma undan gögnum og/eða fjármunum. Lögregla teljir það brýnt fyrir framgang málsins að fallist verði á kröfu um gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna svo unnt sé að ljúka nauðsynlegri rannsókn án þess að sakborningur geti spillt rannsókninni. Af framangreindum ástæðum sé einnig farið fram á að sakborningur sæti einangrun til 13. október n.k.
Í málinu liggi fyrir mat Hæstaréttar Íslands um að lagaskilyrðum a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 séu fullnægt í máli þessu og ekkert nýtt fram komið í málinu sem breytt geti því mati.
Meint sakarefni séu stórfelld skattalagabrot og peningaþvætti en brotin eru talin geta varðað við almenn hegningarlög nr. 19/1940 og lög um virðisaukaskatt nr. 50/1988. Við þessum brotum liggur allt að 6 ára fangelsisrefsing. Um heimild til gæsluvarðhalds sé vísað til a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Um heimild til einangrunar á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur sé vísað til b-liðar 1. mgr. 99. gr. sömu laga.
Til rannsóknar eru stórfelld skattalagabrot og brot gegn peningaþvættisákvæði almennra hegningarlaga, og er rökstuddur grunur um háttsemi kærða sem getur varðað allt að 6 ára fangelsi.
Eins og að framan er rakið kveður lögreglan Y, sem talinn er skipuleggjandi umræddrar brotastarfsemi, verða á næstu dögum vísað frá Venesúela og þá fluttan í lögreglufylgd til landsins. Þá hefur lögregla upplýst að Y sæti hvorki einangrun né símabanni í fangelsi þar ytra. Þá liggur fyrir að lögreglu hafa borist upplýsingar, sem hún metur trúverðugar, um að kærði hafi fengið greidda háa þóknun vegna aðkomu hans að málinu. Ekki hefur enn tekist að hafa upp á þeim fjármunum.
Að öllu framanrituðu virtu er fallist á með lögreglu að brýnir hagsmunir séu fyrir því að kærða verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, enda er rannsókn málsins, sem er allumfangsmikil, á því stigi að líklegt má telja að kærði geti torveldað hana gangi hún laus.
Með vísan til framangreinds, hjálagðra gagna og a- liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, er krafa lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu tekin til greina, að öðru leyti en því að rétt þykir að marka gæsluvarðhaldinu skemmri tíma en krafist er eða til 13. október nk. kl. 16.00.
Þá er með sömu rökum fallist á að kærði sæti einangrun skv. b- lið 1. mgr. 99. gr. laganna.
Arnfríður Einarsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kærði, X, kt. [...], skal sæta gæsluvarðhaldi, allt til miðvikudagsins 13. október n.k. kl. 16:00.
Kærði skal sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.