Hæstiréttur íslands

Nr. 2021-165

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Benedikt Sveinssyni (Sævar þór Jónsson lögmaður)

Lykilorð

  • Áfrýjunarleyfi
  • Peningaþvætti
  • Sjálfsþvætti
  • Sakartæming
  • Lögskýring
  • Samþykkt

Ákvörðun Hæstaréttar

1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Ingveldur Einarsdóttir, Ása Ólafsdóttir og Sigurður Tómas Magnússon.

2. Með beiðni 11. júní 2021 leitar ákæruvaldið leyfis Hæstaréttar til að áfrýja dómi Landsréttar 4. sama mánaðar í málinu nr. 333/2020: Ákæruvaldið gegn Benedikt Sveinssyni á grundvelli 1. mgr., sbr. 4. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Ákærði leggst gegn beiðninni.

3. Með dómi Landsréttar var staðfest niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu ákærða fyrir brot gegn 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt. Í málinu var ákærða jafnframt gefið að sök brot gegn 1. mgr., sbr. 2. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa ráðstafað, geymt og/eða nýtt ávinning af fyrrgreindu broti. Var héraðsdómur staðfestur um sýknu ákærða af þeim sakargiftum. Í dómi Landsréttar kom fram að þegar brot gegn 1. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga félli saman við frumbrot og ekkert lægi fyrir um viðbótarathafnir af hálfu ákærða yrði að telja að frumbrotið tæmdi tök gagnvart broti gegn 264. gr. laganna. Þar sem sú væri raunin í málinu yrði 1. mgr. 262. gr. laganna látin tæma sök gagnvart 1. mgr., sbr. 2. mgr. 264. gr. Refsing ákærða var ákveðin fangelsi í 15 mánuði en fullnustu 12 mánaða refsingarinnar frestað skilorðsbundið í þrjú ár. Þá var honum gert að greiða 17.500.000 krónur í sekt til ríkissjóðs að viðlagðri vararefsingu.

4. Leyfisbeiðandi telur að fullnægt sé skilyrðum 4. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008 fyrir veitingu áfrýjunarleyfis. Hann byggir á því að verulega almenna þýðingu hafi að fá úrlausn Hæstaréttar um túlkun 264. gr. almennra hegningarlaga og beitingu þess ákvæðis í málinu. Vísar hann til þeirra breytinga sem gerðar voru á ákvæðinu með 7. gr. laga nr. 149/2009 sem meðal annars gerði þvætti manns á ávinningi af eigin brotum refsinæmt. Í málinu reyni í fyrsta sinn á mörk frumbrota og eftirfarandi peningaþvættis og hvort frumbrot tæmi sök gagnvart peningaþvætti. Að mati leyfisbeiðanda sé dómur Landsréttar óskýr um hvenær og hvernig beita megi ákvæðunum saman og því ekki unnt að styðjast við hann sem fordæmi. Þá þurfi að skýra hvaða áhrif þvætti manns af ávinningi af eigin brotum skuli hafa á ákvörðun refsingar. Leyfisbeiðandi telur að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur að efni til.

5. Að virtum gögnum málsins verður að telja að úrlausn í málinu, meðal annars um beitingu 1. mgr., sbr. 2. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga, myndi hafa verulega almenna þýðingu í skilningi 4. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008. Beiðnin er því samþykkt.