Hæstiréttur íslands

Mál nr. 640/2012


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


                                     

Mánudaginn 8. október 2012.

Nr. 640/2012.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H.B. Snorrason saksóknari)

gegn

Þ

(enginn)

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu L um að Þ skyldi sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðu 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir, Benedikt Bogason og Helgi I. Jónsson.

Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 5. október 2012 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 4. október 2012, þar sem hafnað var kröfu sóknaraðila um að varnaraðili sætti gæsluvarðhaldi og einangrun til fimmtudagsins 11. október 2012 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Sóknaraðili  krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi og varnaraðila gert að sæta gæsluvarðhaldi til kl. 16 fimmtudagsins 11. október 2012 og einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.

Varnaraðili hefur ekki látið málið til sín taka fyrir Hæstarétti.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 5. október 2012.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu krafðist þess fyrir dóminum í gær, 4. október 2012, að Þ, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 11. október 2012 kl. 16. Þá er þess krafist að honum verði gert að sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.

Í greinargerð lögreglustjóra segir að hann hafi nú til rannsóknar mál þar sem meðlimir á vegum vélhjólagengisins A séu undir rökstuddum grun um fyrirhugaða innrás á heimili tilgreindra lögreglumanna, með það fyrir augum að valda þeim og fjölskyldum þeirra líkamstjóni.

Í gærkvöldi hafi lögregla framkvæmt í þágu rannsóknar málsins húsleitir á heimilum og dvalarstöðum manna sem taldir eru tengjast samtökunum, jafnframt sem lögreglan hafi gert leit í húsnæði A. Samtals hafi sextán einstaklingar verið handteknir, þ. á m. kærði, sem þá hafi verið staddur í félagsheimili samtakanna.

Í skýrslutökum hjá lögreglu í dag hafi kærði neitað að svara spurningum lögreglu. Rannsókn málsins sé á algjöru frumstigi, en það liggi þó fyrir áreiðanlegar upplýsingar um fyrirætlan meðlima samtakanna um að ráðast á lögreglumenn og fjölskyldur þeirra, sbr.  upplýsingaskýrslu í rannsóknargögnum málsins. Sömuleiðis liggi fyrir í málinu tölvu­samskipti milli meðlima samtakanna, þar sem sé að finna nöfn tilgreindra lögreglumanna, jafnframt sem verið sé að skipuleggja árás á þá. Um þetta sé nánar vísað til  upplýsingaskýrslu í gögnum málsins. Ekki hafi reynst unnt að bera umrædd gögn undir kærða.

Rannsókn málsins sé á mjög viðkvæmu stigi. Það liggi nú fyrir lögreglu að taka frekari skýrslur af sakborningum og vitnum. Þá sé nauðsynlegt að vinna úr þeim tölvugögnum sem tengjast málinu og bera undir sakborninga. Það sé því afar brýnt að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi þannig að hann fái ekki svigrúm til að torvelda rannsóknina eða spilla henni á nokkurn hátt, s.s. með því að hafa áhrif á aðra sakborninga eða vitni, eða koma undan gögnum sem sönnunargildi hafa.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a-liðar 1. mgr. 95. gr. og b-liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamálamála, sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.

Samkvæmt rannsóknargögnum málsins hafði kærði vitneskju um ásakanir félagsmanns í garð lögreglu um að hafa tekið peninga við húsleit sem var framkvæmd í félagsheimili A, en þessar ásakanir virðast vera rót þess að ráðast átti á tiltekna lögreglumenn og fjölskyldur þeirra. Að mati dómara dugar þetta ekki til þess að kærði teljist undir rökstuddum grun um aðild að fyrirhugaðri árás á lögreglumennina og fjölskyldur þeirra. Þá getur staða kærða sem formaður A ekki leitt til þess að honum verði gert að sæta gæsluvarðhaldi í máli þessu. Verður kröfu lögreglustjóra því hafnað.

Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Úrskurðarorð:

Kröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, um að kærði, Þ, sæti  gæsluvarðhaldi og einangrun allt til fimmtudagsins 11. október 2012, kl. 16:00, er hafnað.